Sunnudagur, 29. október 2006
Sá ömurlegi atburður átti sér stað í kringum miðnætti hér á anna.is að öll komment frá upphafi gufuðu upp af síðunni.
Ég er að vona að það sé hægt að ná í þetta úr gagnagrunninum.
Ætla að bíða og sjá, áður en ég fer að gráta.
Annars leið mér verulega illa í kvöld. Veit ekki af hverju. Þetta með kommentin kom ekki í ljós fyrr en um miðnætti en vanlíðanin kom uppúr níu - minnir mig.
Ég er ekki að tala um að ég hafi verið veik.
Hafiði einhvertíma fengið.. bad feeling. Fundið.. sting, sting í maganum eins og það sé eitthvað verulega mikið að - en þú veist ekki hvað það er. Eins og eitthvað hræðilegt hafi verið að gerast sem tengist þér beint. Þú kemst venjulega að því eftirá hvað gerðist - því þegar þú finnur svona, þá er eitthvað að. Bæði börnin mín eru hjá mér, annars væri ég viðþolslaus. Sjaldan sem ég hef fengið svona svakalega slæma tilfinningu uppúr þurru.
Ekki kommentin, það er séns á að ná þeim aftur (- afneitun rúlar)
Það var eitthvað annað sem gerðist í kvöld.