Var að tala við Ken á skype og spyrja hann af hverju í fjandanum hann lætur klippa inní lokin á þriðja myndbandinu "now blow, blow, blow, blow."
Ég vissi reyndar strax af hverju - en ég vildi heyra hann segja það.
Ef einhver efaðist, þá sannar setningin hér fyrir ofan að ég er - in fact - kona.
Þetta er ekta "konu" modus operandi - no, really.
Hann viðurkenndi að hann lét gera þetta til að stríða mér, eins og ég vissi - og heyrði að hann var skíthræddur um að ég væri mökk fúl - sem ég er reyndar ekki, en hann má alveg halda að ég sé það, hehehe - ég er svo mikil padda. Hann er það líka. Eigum svo vel saman..
Við sáum nefnilega grín auglýsingu um daginn í sjónvarpsþætti, minnir að það hafi verið Family Guy, nema í auglýsingunni er maður að gefa konu demantshring. Þegar hringurinn er kominn á fingurinn þá kyssast þau voða kát, horfa á hvort annað.. og svo byrjar konan að færa sig niður. Yfir skjáinn kemur textinn:
"Diamonds. She'll pretty much have to."
Mér fannst þetta auðvitað alveg óborganlega fyndið og dó næstum úr hlátri.
Well.. Ken gaf mér bæði demant.. og sportbíl.
touché!
Helvítis asni sem þetta er. Mér fannst þetta nú samt meinfyndið - var bara ekkert að segja honum það. Strax.
Ég sagði honum hinsvegar að ég myndi að sjálfsögðu standa í skilum og þar sem hann er ekki Á LANDINU frekar en fyrri daginn, yrði ég að borga henchmönnunum sem hann skildi eftir á ganginum hjá mér og láta þá um að koma greiðslunni til hans.
Ég er viss um að þeim leiðist ekkert ef ég.. blæs á þá.
Heitt frammi á gangi og svona.
Ken var ekki skemmt.
MUHAHAHAHAHAHAHAHAHAHHAHAHAHAHHAHAHHA
Djöfull er það ógeðslega gott á hann.
Ég fæ dauðarefsinguna fyrir þetta, hehehe
| anna | 21:16 |
comments
Djöfull getur þú verið, óborganlega, fyndin.
Nr. 1 | posted by: igor |
24.10.2006 | 22:46:39 | [+] |
Jafn skemmtilegt og þetta Ken ævintýri þitt er, þá verð ég að segja að ég sakna kvikmyndagetraunanna.