www.anna.is
ravings of a lunatic
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings song movie jokes cv guestbook
Fleiri myndir
Laugardagur, 21. október 2006

Ég held bara áfram að dæla inn ljósmyndum þangað til ég fæ vídeóið í hendurnar.

ut.jpg

Smá hreyfð mynd hér að ofan en ég held samt að það sjáist hvað ég er gjörsamlega lost. Ótrúlegur að plana þetta. Gjörsamlega ótrúlegur. Þarna var hann sumsé búinn að stela mér úr veislunni til að sýna mér afmælisgjöfina mína.

Þetta er náttúrlega insane - Ken er smá þannig.

Ég var ekki alveg að trúa öllu því sem var að gerast þetta kvöld.

Þetta er take charge man - eins og ég hef sagt - en þegar hann gnæfir svona yfir mér eins og vampíra og kyssir mig.. hvað get ég sagt... þetta er besta víma sem til er. Maður kiknar í hnjáliðunum, gengur um eins og róni og þetta tæmir gjörsamlega alveg hugann. Gerir kraftaverk fyrir æðakerfið og hjartað - sem hamast eins og það ætli útúr brjóstinu á þér. Þvílík og önnur eins áhrif, hef aldrei vitað annan eins karlmann.

Annars finnst mér lang sætast það sem frumburðurinn sagði við mig þegar við vorum að borða pizzu með Huga í gærkvöldi. Hún sagði "You simply haven't lived fyrr en þú hefur staðið á svölunum á Sólon og fylgst með Ken kyssa mömmu þína, sem er klædd eins og engill, og uppvið geðveikan sportbíl."

Við fórum öll að hlæja þegar Hugi bætti við: "Já. ég er ekki viss um að mamma mín hefði púllað það off."

Þarna er David að fá einhver skilaboð. Tala rosalega mikið í talstöðvar þessir menn.

Mér finnst það cool og ógeðslega töff bolir sem þeir nota. Það skiptir máli.

anna_ken1.jpg

Þarna er ég að horfa á eftir honum keyra í burtu. Ennþá í hálfgerðu losti.

Þetta er mynd af mjög hamingjusamri konu. Með rétta manninum gerði hún svolítið sem hefur, skv. öllum heimildum, aldrei verið gert áður.

Í heiminum.

Ég veit ekki hvort orðið "töff" nær nægilega vel utanum það.

(Hér gef ég mér að Ken sé að segja satt þegar hann segist aldrei hafa beðið konu um að giftast sér fyrr.)


| anna | 18:27 |
comments

Ótrúlega skemmtilegt að fylgjast með þessu.
Hvers vegna ertu ekki kvikmyndastjarna?

Nr. 1 | posted by: Ljúfa | 21.10.2006 | 19:41:28 | [+] |

Ég á ekki orð yfir hvað ég er ánægð yfir hamingju þinni þessa dagana. Ég vona að einn daginn komi ég til með að upplifa svona fullkomið líf og þú núna angel

Nr. 2 | posted by: Harpa | 21.10.2006 | 20:44:09 | [+] |

Eruði að dansa lambada upp við bílinn? doubt

Nr. 3 | posted by: Kalli | 22.10.2006 | 0:04:36 | [+] |

Ég sé að grímuballið hefur tekist vel hjá þér. Flott.

Nr. 4 | posted by: igor | 22.10.2006 | 2:04:53 | [+] |

Tekist vel Igor??
Þú hefðir betur verið á staðnum drengur!! cool

Nr. 5 | posted by: Harpa | 22.10.2006 | 14:31:37 | [+] |

Takk Ljúfa. smile

Af hverju er ég ekki kvikmyndastjarna? Kannski á ég það eftir tíhíhí

Oh já Harpa.. ég bara get ekki hætt að brosa. Og þú veist hver verður brúðarmær hjá mér! wink

Kalli. Þetta heitir dirty dancing. angel

HÆ IGOR! Já það tókst æðislega, vildi óska að þú hefðir geta mætt! Þú kemur bara næst, díll?

Nr. 6 | posted by: anna | 22.10.2006 | 22:34:50 | [+] |

Ég vil benda þér á fordæmi; Mae West "púllaði það off" að gerast kvikmyndastjarna og kyntákn í þokkabót eftir fertugt. Semsgt fjölmörgum árum eldri en þú ert núna.

Nr. 7 | posted by: Elías | 23.10.2006 | 0:23:16 | [+] |

Það er magnað, vissi þetta ekki.

Nr. 8 | posted by: anna | 24.10.2006 | 9:28:07 | [+] |
post a comment


Muna upplýsingar?












smilie winky colgate happy boogie toungue wahahahaha

angel embarassed doubt silent sad guilty shy sour

hmmm evil gnasher sick drunk what cool wave

weepy melodramatic nerd clown chococat nightmare pirate








Tell me, yes or no.








recent ravings
recent comments
monthly archive

links
blogs
links - web