Jæja.. þá er ég loksins komin með réttar myndir í hendurnar, so here goes..
Fyrir fimm árum síðan ákvað ég að halda grímuball þegar ég yrði þrjátíu og fimm ára. Ég lifi nefnilega eftir mottóinu "I plan ahead, that's why I never do anything right now". Þetta virkar - í alvöru.
Það stóð alltaf til að Ken kæmi í afmælið mitt, við erum búin að vera saman síðan í júní svo það er alveg komin tími til að kynna hann fyrir öllum. Hann þurfti hinsvegar að fara til Svíþjóðar til að sprengja upp Færeyjar (sem tókst ekki) og flytja kjarnaoddana sína á milli húsa. Vesen á þessum karlmönnum alltaf - nema hann ætlaði að lenda á Íslandi seinnipartinn þann 14. október svo hann gæti komið í afmælið mitt.
Klukkan hálf níu hringdi hann hinsvegar í mig og sagði mér að hann hefði verið handtekinn í Svíþjóð og hann kæmist augljóslega ekki á grímuballið. Ég var náttúrlega með fullt hús af fólki í grímubúningum og ákvað að ég gæti ekki verið að láta þetta brjóta mig niður.
En... Á meðan ég var að halda ræðu og bjóða fólkið í afmælinu mínu velkomið gerðist þetta:
Helvítis kvikindið var náttúrlega búinn að ráða menn til að taka allt saman uppá vídeó því hann vissi að hvað ég yrði hissa þegar hann kæmi. Hérna fyrir neðan er upptaka úr veislunni minni, byrjar á ræðunni sem ég hélt. Um kvöldið var ég í öðrum skóm en þeim sem ég hafði tilkynnt að ég ætlaði að vera í. Ég held að stór prósenta gesta hafi spurt mig hvar hvítu skórnir væru eiginlega en þegar ég byrjaði að halda ræðuna var ég auðvitað komin í réttu skóna. Ég átti hinsvegar ekki von á því sem gerðist þegar leið á ræðuna mína.. (þetta er ca 8 mín að lengd)
Hann bað mín!
Vá ég trúi því varla ennþá. Hringurinn sem Ken gaf mér er með sjaldgæfum demanti sem kallast blóðdemantur, sá eini sinnar tegundar í heiminum og er ca 78 milljarða virði í evrum. Gullið í hringnum er ekki alveg svo verðmætt enda meira en eitt gull til í heiminum síðast þegar ég vissi. Samt ekki.. ef þú bræðir allt gullið saman er það orðið eitt gull... bygons.
Hann fullvissaði mig um að hann hafi ekki stolið hringnum en sagði mér að þetta er svo merkilegur demantur að það er verið að gera bíómynd um hann.
Hann lét þetta nú þetta ekki duga heldur gaf mér líka geðveikan sportbíl í afmælisgjöf við mikinn fögnuð viðstaddra en svo frétti illþýðið hans að löggan væri að koma svo hann var keyrður í öðrum bíl í burtu. Æ mér er alveg sama. Það er vesen á honum, en ég vil samt meina að það séu til svo miklu verri kærastar en þetta.
Ég gæti allavega ekki verið hamingjusamari.
(Já mamma, hann er sjálfstæðismaður.)
| anna | 21:49 |
comments
Sjálfstæðismaður? Ég vissi að hann væri evil, en ekki svona evil!
hvað ER þetta! Uss! Ég er bara að segja þetta svo mamma fari ekki að bögga mig með hann! - hún finnur eitthvað að öllum mönnum sem ég fell fyrir. dísus..
Blasir ekki við að Ken stendur örlítið fyrir utan hefðbundin flokkakerfi? Meina.. hann ætlar að stjórna öllu sjálfur!
..og hann stjórnar svo vel..
Nr. 6 | posted by: anna |
23.10.2006 | 10:38:04 | [+] |
Ég hefði talið hann frjálhyggjuanarkista. Burt með ríkisvaldið.
Nr. 8 | posted by: anna |
23.10.2006 | 15:29:12 | [+] |
Skiliggi. Er íslenski hreimurinn partur af dulargervinu/grímubúningnum, eða er hann búinn að búa svo lengi hérna að hann er kominn með hreim, greyið?
Hann verður að minnsta kosti að gera eitthvað róttækt í þessu maðurinn, því ef hann ætlar sér virkilega að ná heimsyfirráðum dugar ekkert nema yfirstéttarenska, Texas, eða verulega bjagaður franskur eða asískur hreimur... Þetta vita öll alvöru illmenni, ertu viss um að hann sé alveg jafn ívil og þú vonar?
Ég var að vona að það tæki engin eftir þessu, en.. Ken á nokkra tvífara sem hann notar þegar hann þarf að vera á mörgum stöðum á sama tíma. Engin þeirra talað jafn fallega ensku og hann - enda fengu þeir ekki sama uppeldi og menntun.. Ég er reyndar ekki aaalveg viss.. en hef grun um að þetta hafi verið einn af þeim. Get samt ekki fullyrt það, þessi kyssti mig alveg rosalega kunnuglega.
Kannski var hann bara illa haldin af swenglish þarna úti og hún var að brá af honum.
Svo segja menn að ég sé dramadrottning. Sumar konur myndu nú eipa ef staðgengill væri sendur til að bera upp bónorðið - en ég er alveg róleg yfir því. Maður verður að kompromæsa stundum.
Ég lét lögfræðingana samt setja í kaupmálann að Ken verði að vera á staðnum - í eigin persónu - þegar hann giftist mér. Hann verður ógeðslega bissí í þessum mánuði og næsta vegna þess að hann er að græja hluti fyrir árlega gala dinnerinn sem EMS (Evil Men's Scociety) heldur í London í lok nóvember. Hann vill hafa eitthvað ógeðslega cool og evil til að geta talað um þegar við förum þangað.
Annars stefnum við á að halda brúðkaupið um áramótin, og þú ert að sjálfsögðu boðin Elín!
Nr. 11 | posted by: anna |
23.10.2006 | 20:27:56 | [+] |
Vá, þetta er alveg rosalega flott hjá þér/ykkur. Ég fékk gæsahúð við að horfa á ykkur kela upp við þetta rauða. Takk
En þeir eru vinsælir hjá kvenþjóðinni, viðurkenni það alveg.
Nr. 19 | posted by: anna |
24.10.2006 | 18:04:06 | [+] |
Jæja tölvan loksins komin almennilega í lag og ég var að skoða.
Þvílíkur draumur. Sannkallaður rómans. Ég kikna í hnjánum. Ó Anna mín þú átt hann svo sannarlega skilið!
Auk þess veit ég að þú getur án efa orðið honum innan handar við skipulag á alheimsyfirráðum - þú er endalaus brunnur af hugmyndum.