Mánudagur, 30. október 2006
Líkurnar á því að ég fái öll komment til baka hafa aukist um 164% síðan í gær.
Allt starfsfólkið hér á anna.is er í viðbragðsstöðu fyrir flutningana sem munu að öllum líkindum fara fram seinna í dag. Þetta gæti þýtt að heimasíðan www.anna.is hverfi af Internetinu í einhverja klukkutíma.
Lesendur geta búist við einhverjum fráhvarfseinkennum og fyrir þá sem finna fyrir verulegum óþægindum vill höfundur koma því á framfæri að síðan verður aldrei lengur niðri en í 24 tíma.
Við erum með flota af afburðagreindum mönnum sem hafa lagt nótt við dag til að gera þessa hluti mögulega og þeir munu halda sér gangandi á kóki (coca-cola - hvað er þetta!), eða öðrum vökva sem inniheldur mikið magn af koffeini, þangað til síðan er komin í örugga höfn á nýjum nafnaþjónum.
Þetta er sögulegt móment.
anna.is hefur verið hýst á sama stað frá upphafi - en nú er hún orðin svo stór - að hún er að flytja að heiman. Vill svo skemmtilega til að á morgun er Halloween og mér finnst eiginlega fátt eins viðeigandi og að anna.is setjist formlega að á nýjum stað á þessum degi.
Oh.. þau eru svo fljót að stækka, þessi börn.
VÚHÚ! ÉG ER AÐ FLYTJA AÐ HEIMAN!
Úúúú..
Hvað gerist þá?