www.anna.is
ravings of a lunatic
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings song movie jokes cv guestbook
Alvöru innkoma
Laugardagur, 21. október 2006

Smá tækniörðugleikar hafa hindrað mig í að birta myndbandið núna en það kemur. Ég var hinsvegar að skoða myndirnar sem ég fékk í staðinn fyrir hin myndskeiðin. Gaman að eiga digital myndir af þessu líka - hægt að smella á til að stækka flestar.

Fyrir aftan bílinn (minn) er lífvarðabíllinn hans Ken. Hann fer ekki útí sjoppu án þeirra.

Þetta eru leifar frá því hann bjó í París, alltaf verið að reyna að ráða hann af dögum þar. Erfiðir í skapinu sumir karlmenn sem búa þar.

Ken að stíga útúr bílnum. Þessi fremsti þarna heitir David og hann er sá eini af þeim sem hefur actually bjargað lífi Ken og lifað. Það var þegar Ken gleypti hljóðnema. Óvart. Löng saga. Er ekkert viss um að Ken vilji að ég segi frá þessu þegar ég hugsa útí það. Þetta var samt ekkert svo stór hljóðnemi. Þeir náðu honum á snúrunni.

Bygons.

Ég er alveg í góðum höndum þannig lagað þó hann sé ekki á landinu. Eruði að sjá handleggina á þessum mönnum? Jesús María og allir hinir dvergarnir..

punisher.jpg

Gaman að segja frá því að Ken klæðir sig bara í BOSS föt. Ég var búin að stríða honum endalaust á því að BOSS framleiðir ekki grímubúninga - nei - helvítis maðurinn lét prenta "the punisher" hauskúpuna á fricking BOSS bol til að geta verið í BOSS all the way!

Ekkert smá sætt að hann hafi mætt sem the punisher. Þó það sé í raun bannað að mæta á grímuball sem eitthvað sem maður er í alvörunni. Það sleppur samt því hann refsar bara mér - þannig.


| anna | 0:18 |
comments

Jú, það verður að viðurkennast, Ken er sætur.

hihi "eruði að sjá handleggina á þessum mönnum?"
Já, ég var löngu búin að taka eftir þeim happy

Nr. 1 | posted by: Fríða | 21.10.2006 | 9:37:24 | [+] |

Takk fyrir að lána mér bílinn í gær Anna. Ekkert smá skemmtilegur kaggi!

Nr. 2 | posted by: Ingolfur Juliusson | 21.10.2006 | 10:07:17 | [+] |

Ég verð að taka hattinn að ofan fyrir þessum manni að hafa mætt sem herra Frank Castle.

Herra Badabing.is hefði kannski getað mætt sem Daredevil og þeir tveir hefðu svo getað slegist aðeins og hoppað á milli þaka í 101.

Nr. 3 | posted by: Bastarður Víkinga | 21.10.2006 | 10:22:24 | [+] |

tíhíhí oh þessir handleggir.. ÞESSIR UPPHANDLEGGIR!

No prob Ingó, elska að keyra þennan bíl.

Oh Bastarður, hann er bara æði!

Nr. 4 | posted by: anna | 22.10.2006 | 22:32:23 | [+] |
post a comment


Muna upplýsingar?












smilie winky colgate happy boogie toungue wahahahaha

angel embarassed doubt silent sad guilty shy sour

hmmm evil gnasher sick drunk what cool wave

weepy melodramatic nerd clown chococat nightmare pirate








Tell me, yes or no.








recent ravings
recent comments
monthly archive

links
blogs
links - web