Laugardagur, 14. október 2006
Ég verð að hætta að gleyma Margeiri svona útá svölum, það gengur ekki til lengdar. Hann nær ekki uppá gluggana svo það er engin leið fyrir hann að láta vita af sér - sem er ágætt. Ónæði alltaf af þessum dverg. En þetta reddaðist. Síðastu tvær vikur hefur hann lifað á jarðaberjarlufsunum af jarðaberjaplöntunni sem ég keypti á Laugarvatni í sumar, graslauk og vatni sem hann hefur safnað saman í útiarininn. Hef hann líka grunaðann um að hafa sleikt grindina á gasgrillinu, ætla að henda henni - just in case.
Var að redda mér pössun fyrir hann áðan, get ekki veri að hafa hann á grímuballinu að þvælast fyrir fótunum á fólki rekandi við stybbu sem gæti svæft nashyrning. Það eru náttúrlega allir sem ég þekki boðnir á grímuballið þannig að ég skrapp niður á hlemm áðan og fann þessa líka indælu konu. Ætlar að gera þetta fyrir tvo brúsa af spritti. Verð að komast í apótek í fyrramálið. Veit ekki hvað hún heitir en hún sagðist eiginlega eiga heima þarna og að ég mætti koma með Margeir hvenær sem er.
Þvílík snilld - ég get svo pikkað hann upp á leiðinni heim af ballinu!
Ef ég man eftir því.