www.anna.is
ravings of a lunatic
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings of a lunatic movie hall of fame ferilskrá
Á límingunum
Þriðjudagur, 17. október 2006

Ég er að fara á límingunum. Hugi stakk uppá að ég myndi láta negla mig, þessar límingar halda ekkert - gæti verið punktur, en Ken er ekki á landinu svo ég þarf líklega að out-sorsa það mál.

Ekki var Hugi nú að bjóða fram aðstoð þó hann sé öllum tólum búinn.
Þetta kallar maður vini sína.

Náði í Ken rétt áður en ég fór á fyrsta fundinn í félaginu sem ég er að fara að stjórna. Hann náði að róa mig töluvert og útskýrði fyrir mér að svona gengur lífið, það er allt til sölu og það þýðir ekkert að ráðast á kaupandann heldur finnur maður seljandann og veldur honum verulegu hugarangri. Hann sagðist alltaf halda nákvæma skrá yfir ættingja og ástvini starfsmanna sinna því það er ekkert gaman að kvelja gerandann, miklu skemmtilegra að kvelja þá sem honum finnst vænst um.

Hann er svo klár. Og vondur.

Ken lofaði mér að það myndu ekki fleiri bútar úr afmælinu mínu leka á vefinn. Ég trúi honum.

Hann er svo æðislegur og ég er hætt að pæla í þessu og svo lét hann líka bara stela þessu til baka. Er svo mikil dúlla.

Þetta er líka ógeðslega töff myndband sem hann er að láta búa til.

Annars grunar mig að ég hafi gert mistök þegar ég sagði mönnunum í hvítu göllunum frá því hvað Ken er hræddur við ryksuguhljóð. Dr. Kjarnverk er búinn að vera í allan dag á ganginum svoleiðis að djöflast á ryksugunni að það hálfa væri nóg. Sem betur fer byrjaði hann ekki fyrr en Ken var farinn. Má vera að ég hafi verið að fara á límingunum útaf þessu myndbandi áðan, en það er nú bara skerí hvað Ken fer í verulegt uppnám nálægt ryksugu sem er í gangi. Tengist eitthvað unglingsárunum og eðlislægri forvitni drengja - hann er voða duló þegar ég spyr hann útí þetta. Næ engu útúr honum.


| anna | 19:24 |
comments

Mér til varnar. Já, mér til varnar. Þá var ég annars hugar og fattaði ekki hvað ég hafði skrifað fyrr en tveimur sekúndum of seint. Verst að líkurnar á að einhver, einhversstaðar trúi því einhverntíman eru einstaklega litlar.

Og að auki lánaði ég hamarinn minn.

Nr. 1 | posted by: Hugi | 17.10.2006 | 20:37:22 | [+] |

jájá, segir mér það...

Nr. 2 | posted by: anna | 17.10.2006 | 20:41:00 | [+] |
post a comment


Muna upplýsingar?












smilie winky colgate happy boogie toungue wahahahaha

angel embarassed doubt silent sad guilty shy sour

hmmm evil gnasher sick drunk what cool wave

weepy melodramatic nerd clown chococat nightmare pirate








Tell me, yes or no.








recent ravings
recent comments
monthly archive

links
blogs
links - web