Leigubílstjóri er að keyra nunnu og honum er svona svakalega starsýnt á hana í baksýnisspeglinum. Á endanum spyr nunnan af hverju hann horfi svoan rosalega á hana. Leigubílstjórinn verður hálf vandræðalegur og færist undan því að svara, segist ekki kunna við að segja henni það, það sé óviðeigandi. Nunnan brosir vingjarnlega og hvetur Jónas að segja sér af hverju hann starir svona. Á endanum viðurkennir Jónas fyrir nunnunni að hann hafi alltaf dreymt um að kyssa nunnu.
Nunnan segir að það ætti nú ekki að vera vandamál, en bara ef hann er einhleypur og katólskur. Jónas segir það vera tilfellið þannig að hann keyrir útí kant og kyssir nunnuna.
Þegar Jónas keyrir af stað aftur fer hann að hágráta. Nunnan spyr hvað sé eiginlega að og Jónas svarar á milli ekkasoga að hann hafi logið þessu öllusaman, ekki nóg með að hann sé giftur - hann er lúterskur líka.
Það er allt í lagi, segir nunnan, ég heiti Hjalti og ég er á leiðinni á grímuball.
"Well broccoli, mother says you are very good for me - but I'm afraid I am no good for you!"
Tíu dagar eftir og ég er ekki komin á klepp fyrir hugmyndir mínar þó ég telji það eiginlega til heppni miðað við svip þeirra örfáu sem ég hef viðrað þær við.
Hitti mann í dag sem gæti mögulega verið með það sem ég þarf. Got my fingers crossed - enda er ég ekki að biðja um lítið. Ég var ekki að grínast í þér - you got my number.
Nóg að gera hjá mér þessa dagana, ég þarf eiginlega að fá staff fyrir þetta dæmi - tómt rugl!
Djöfull skal ég finna leið til að gera þetta. Var ég búin að segja frá því að ég get verið relentless? Ætli bankarnir styrki.. listræna gjörninga? Spurning.
You know, I have one simple request, and that is to have sharks with frickin' laser beams attached to their heads! Now, evidently, my cycloptic colleague informs me that that can't be done. Can you remind me what I pay you people for?
Honestly. Throw me a bone here.
Ég á aðdáanda sem ég veit ekki hver er, en líkar vel við.
Don't you hate it when that happens?
Annað sem ég var að átta mig á rétt í þessu. Allir sem mér líkar vel við en veit ekki hverjir eru líta af einhverjum ástæðum svona út í hausnum á mér en ekki svona. Þið takið eftir því að þeir eru ALLIR karlkyns - hvort sem þeir eru það eða ekki.
It's the sickest thing really.
--
Update. Þetta með útlitið - it varies. Ég var í baði áðan og þá var það bara svona.
Það sem mig langar mest í öllum heiminum er að eiga eitthvað lítið og loðið sem geltir á mig þegar ég reyni að tala við það og ég get látið mér þykja óendanlega vænt um.
Þar sem ég hef ofnæmi fyrir þannig neyðist ég til að finna mér eitthvað stórt og loðið sem geltir á mig þegar ég reyni að tala við það.
Nú veit ákveðinn maður að mér er illa við byssur og ég hef bannað honum að gefa mér svoleiðis því ég vil ekki hafa byssu á heimilinu - auk þess held ég að það sé bannað með lögum að eiga byssu á Íslandi nema maður sé með allskonar leyfi og ves. Ég læt hann t.d. alltaf að skilja öll skotvopn sem hann er með á sér eftir í bílnum.
Af því hann er svo mikið erlendis hefur hann haft áhyggjur af öryggi mínu og þar sem ég hef líka bannað honum að hafa henchmen við húsið og dyrnar hjá mér gaf hann mér í dag annarskonar sjálfsvörn: fávitafælu delux.
Hann er ekkert smá sætur þessi maður.
Þó ég hafi aldrei snert svona áður, þá vitum við öll hvað ég er fljót að ná færni í þeim íþróttum sem ég tek mér fyrir hendur. Annars er ég alltaf að átta mig betur og betur á því hvernig ég er í raun og veru. Finn til með þeim manni sem heldur virkilega að hann hafi úthaldi í mig.
Ég er hard fricking work.
Þessum manni myndi hinsvegar mjög sjaldan leiðast.
No Name says: Ég ætla í Kringluna að versla
No Name says: vantar þig eitthvað þaðan?
Anna says: nei
No Name says: T.d. kringlur?
Anna says: jú
Anna says: mig langar í nýtt barn
Anna says: ef þú sérð eitthvað
No Name says: ekkert mál
Anna says: ekki eldra en sex mán
Anna says: og helst í góðum vagni
No Name says: er ekki ódýrara að kaupa bara snið?
Anna says: snið?
Anna says: ég er alveg hætt að nenna að sauma nokkurn skapaðan hlut
No Name says: BYOB
No Name says: Build your own baby
Anna says: það er rusl
Anna says: búin að prófa
Anna says: kom bara eitthvað sem var eins og naggrís
Anna says: hef ofnæmi fyrir svoleiðis
No Name says: úps, betra að sleppa því þá
Anna says: heyrðu - reyndu að finna eitthvað sem líkist mér
No Name says: E...
No Name says: geri það
Anna says: hitt gæti orðið smá ves
Ég minntist aðeins á það við Ken í morgun áður en hann fór útá flugvöll að mér fyndist svona Ford GT bíll soldið sætur.
Ken var að senda mér sms frá Svíþjóð, segist vera að tryggja sér svona græju í þessum töluðu orðum - enda er þetta fyrsti bíllinn sem ég bendi honum á sem honum finnst hot líka.
Við höfum oftast mjög ólíkan smekk á bílum.
Þessi fer okkur eiginlega báðum jafn vel hann kostar ekki nema um 30 milljónir - enda t.d. bara 28 eintök til í Bretlandi. Ég á ekki eftir að þora að keyra hann, gæti trúað að ég verði smá hættuleg með svona mörg hestöfl at my disposal - og Ken er einfaldlega betri bílstjóri en ég. Enda karlmaður.
Ken says: did you tell Doddi about the car?
Anna says: yes, showed him the bit on youtube
Anna says: http://www.youtube.com/watch?v=ZfTZt74J71A&mode=related&search=
Ken says: what did he think?
Anna says: at first he asked if the blue car was it and i said no
Anna says: think he was relieved
Anna says: he didn't find the blue one all that exiting
Ken says: hehehe i still think it's pretty nice
Ken says: must be my old age
Anna says: then he saw the red one
Ken says: a bit small
Ken says: and
Anna says: and he just lost the power of speech at first
Ken says: hehehe
Ken says: good
Anna says: and then after a while, when the guy was driving it, doddi just said: "cooooool"
Ken says: hahaha
Anna says: and then he asked if they only come in red
Ken says: ok
Ken says: i actually don't know if they do
Anna says: i don't know either, but i told him yes
Ken says: ok
Anna says: and he said " that is so cooool"
Ken says: hahaha
Anna says: he's gonna freak when he sees it saturday
Ken says: good, very good
Frumburður: hæ, varst þú að reyna að ná í mig?
Anna: já. Ég var að reyna að ná í þig. Ég þarf að láta þig vita að ég er að fara í klippingu eftir vinnu og þið munuð því ekkert sjá mig næstu þrjá sólarhringa.
Ég var svo utanvið mig í lok vinnudags í gær að þegar ég kom heim úr klippingu og litun var ég búin að gleyma að ég hafði bloggað og skildi ekkert í því þegar vinur minn sendi mér á msn "ertu klippt og skorin?".
How the hell did he know, hugsaði ég. Svo hrökk hamsturinn í gír og hjólið fór af stað.
Á meðan liturinn var í hausnum á mér hringdi síminn og ég var beðin um að vera formaður fyrir félagi dauður. Ég ákvað að taka það að mér og á meðan ég beið eftir litnum bjó ég til stefnuskrá fyrir veturinn í höfðinu. Nýta tímann maður - hef ekki of mikið af honum undanfarið.
Elín klikkaði ekki í gær frekar en fyrri daginn. Ekki bara gerði hún mig æðislega fína um hárið heldur plokkaði hún frumskóginn fyrir ofan augun á mér OG tók mig í slökunar höfuðnudd. And I really, really needed that. Búið að vera mikið að gera hjá mér undanfarið. Auðvitað töluðum við varla um annað á meðan en grímuballið á laugardaginn. Ég hlakka svo til. Hlakka svo til að sjá í hverju fólk mætir og það er svo gaman að tala við þá sem ætla að mæta því það er að myndast svo góð stemming. Það verður auðvitað veitt viðurkenning fyrir besta búninginn - but of course.
Eitt sem ég verð eiginlega að minnast á sem snöggvast. Í gegnum fólk sem ég þekki hef ég frétt af nokkrum sem lesa síðuna og dauðlangar að koma á laugardaginn, en þora ekki eða kunna ekki við það vegna þess að þeir þekkja mig ekki persónulega eða hefur ekki verið "formlega" boðið.
Ef þú lest anna.is reglulega þá þekkir þú mig nógu vel til að koma og það eru einfaldlega allir sem lesa síðuna velkomnir. Á næstum hverjum einasta degi býð ég fólki að staldra við í þeim raunveruleika sem ég bý til jafn óðum hér á anna.is en án þess að ég vilji segja of mikið.. þá hef ég ákveðið að taka bloggið mitt skrefinu lengra og bjóða fólki einfaldlega að stíga, að hluta til, inní minn eigin raunveruleika laugardaginn 14. október á efri hæðinni á Sólon.
Confused?
You won't be..
Aðgöngumiðinn er ekkert annað en grímubúningur að eigin vali. Ef þú vilt ekki koma einn, taktu þá vin þinn með þér. Það verður bjór, snakk, skemmtilegt fólk og allt hitt sem þarf til að skemmta sér rækilega í eina kvöldstund.
Ég þekki engan sem bítur (eftir að ég hætti að umgangast Hrafn Gunnlaugsson) svo þér er alveg óhætt.
Fyrir fimm árum síðan hélt ég líka grímuball, þá var ég að halda uppá þrítugsafmælið mitt og fyrrverandi mannsins míns.
Skömmu áður var tveimur flugvélum flogið á World Trade Center. Sá atburður er í daglegu tali kallaður 9/11.
Í gær var lítilli flugvél flogið á háhýsi í NY. Tveir menn látnir.
Ég er að leyfa mér að vona að það verði jafnvel minna manntjón af völdum þess sem flýgur inn í háhýsi í NY fyrir fertugsafmælið mitt.
15. október, 2011:
"Stór fluga flaug innum glugga á háhýsi í NY í dag. Einn maður er illa snúinn á úlnið eftir að hafa misbeitt flugnaspaða. Flugan reyndist vera "flugus morkensis" lirfa mögulega ættuð frá Íran. Bandaríkjamenn íhuga hefndaraðgerðir."
Manninum sem sagði mér að hysja upp um mig buxurnar í morgun er fyrirgefið allt, í nútíð, fortíð og framtíð. Ég var reyndar aldrei fúl útí hann in the first place þó ég hafi orðið HRÆÐILEGA SÁR OG SVEKKT OG SÉ NIÐURBROTIN eftir samtal okkar í háeginu.
(nei,nei,nei - ég er ekki að reyna að láta þig fá samviskubit sko.. ekkert þannig hehe mátt ekki taka þessu alvarlega - no, really)
Hann sagði nefnilega líka "þrjátíu og fimm? Ég hélt þú værir tuttugu og fimm"
Stundum þarf bara ekki meira til að hafa mig ánægða. Meina.. ég var nývöknuð og illa sofin! Með hárið útí allar áttir eins og ég hafi verið nýbúin að fá raflost - eða.. ég fæ mér oft raflost á morgnanna, hef bara ekkert verið að tala mikið um það. Fólk hefur oft engan skilning á þannig málum. Bygons.
Kannski ætti ég að hætta að sofa og vera sem oftast nývöknuð. Gæti orðið trikkí en ég læt það ekki brjóta mig niður.
Auðvitað mun ég taka klassískan konu vinkil á málið og trúa að hann hafi bara sagt þetta til að vera sætur við mig - út af buxnamálinu.
En þegar ég sá hann.. það var alveg magnað, því hann er nákvæmlega og algjörlega eins og..
..en ég er ekkert búin að gefast upp og hef ákveðið að hysja ekki upp um mig fyrr en í fulla hnefana. Nema hvað landslög varðar. Skal hysja uppum mig alveg þar, renna og hneppa og allur pakkinn. Belti og læti.
Ég verð að hætta að gleyma Margeiri svona útá svölum, það gengur ekki til lengdar. Hann nær ekki uppá gluggana svo það er engin leið fyrir hann að láta vita af sér - sem er ágætt. Ónæði alltaf af þessum dverg. En þetta reddaðist. Síðastu tvær vikur hefur hann lifað á jarðaberjarlufsunum af jarðaberjaplöntunni sem ég keypti á Laugarvatni í sumar, graslauk og vatni sem hann hefur safnað saman í útiarininn. Hef hann líka grunaðann um að hafa sleikt grindina á gasgrillinu, ætla að henda henni - just in case.
Var að redda mér pössun fyrir hann áðan, get ekki veri að hafa hann á grímuballinu að þvælast fyrir fótunum á fólki rekandi við stybbu sem gæti svæft nashyrning. Það eru náttúrlega allir sem ég þekki boðnir á grímuballið þannig að ég skrapp niður á hlemm áðan og fann þessa líka indælu konu. Ætlar að gera þetta fyrir tvo brúsa af spritti. Verð að komast í apótek í fyrramálið. Veit ekki hvað hún heitir en hún sagðist eiginlega eiga heima þarna og að ég mætti koma með Margeir hvenær sem er.
Þvílík snilld - ég get svo pikkað hann upp á leiðinni heim af ballinu!
Ég á engin orð yfir það hvað ég skemmti mér vel í kvöld og mig grunar að ákveðnir atburðir verði til þess að fólk gleymir þessu kvöldi seint.
TAKK FYRIR FRÁBÆRT KVÖLD!
Ken. You really know how to surprise a girl - and I have the ring to proove it.
Ég, í samstarfi við World Domination Corp, gerðum allt sem í okkar valdi stóð til að gera kvöldið ógleymanlegt - en trúið mér.. það voruð þeir sem mættu sem gerðu mitt kvöld ógleymanlegt.
Vá hahaha ég er ennþá að ná þessu. Það er svo langt síðan ég hef haldið partí að ég var hrædd um að ég væri orðin smá ryðguð en WD-40+, sérsveit miðaldra karlmanna hjá World Domination Corp, klikkar ekki svo þetta gekk eins og smurt.
Mér þætti æðislega vænt um ef þeir sem voru með myndavélar í gærkvöldi myndu senda mér afrit af sínum myndum á anna (hja) anna.is. Ég mun setja upp myndasíðu á lokuðu svæði eins og síðast fyrir alla þá sem komu í partíið - þannig að þið sem ég hef ekki netfangið hjá, senda mér það líka svo þið fáið aðgang að myndasíðunni. Endilega verið dugleg að senda mér myndir og ef einhver náði myndum þegar Ken kom, það væri æði. Ég hélt í alvöru að það væri búið að taka Ken fastan í Svíþjóð, helvítis fíflið að ljúga þessu að mér.
Þó hann hafi fengið serious and professional fólk til að taka þetta allt uppá vídeó langar mig að eiga kannski eina mynd af okkur saman. Ég vona líka að engin hafi orðið hræddur við strákana hans Ken, ég var líka búin að segja þeim að þeir mættu ekki meiða neinn af mínum gestum en ég sagði þeim reyndar að ef einhver myndi koma og vera með leiðindi eða að snapa slagsmál mætti skjóta hann. Allavega í fótinn.
HVERNIG LÍST YKKUR Á KEN? FINNST YKKUR HANN EKKI ÆÐISLEGUR?
HANN GAF MÉR FRICKIN BÍLINN Í AFMÆLISGJÖF!
Það er svo.. líkt honum.
ÉG ER AÐ FARA AÐ GIFTA MIG! Trúi því nú eiginlega ekki - en getur maður neitað svona manni?
Oh.. ég held að ég finni ekkert betri mann, svo næmur og blíður. Hann skilaði sér seint í nótt.. refsaði mér sundur og saman fram á morgun - ekki að ég sé neitt að kvarta. Annars kom soldið í ljós í morgun þegar Ken var að skoða myndirnar úr partíinu og fannst hann þekkja henchmen frá erkióvin sínum Dr. Kjarnverk. Ég bara.. vó! Vissi ekki einu sinni að Ken þekkti Dr. Kjarnverk - jújú.. kemur í ljós að Ken var víst ekki að selja rækjur í húsinu fyrir neina tilviljun! Alltaf frétti ég allt síðust..
Þetta hús er náttúrlega pínu eins og the twilight zone. Ekkert grín að búa innaní Ikea sexkanti.
Er það bara ég, eða hljómaði þetta smá perralega?
Bygons.
Strákarnir voru samt svo frábærir allt kvöldið að mér er persónulega alveg slétt sama þó þeir séu að hench-ast eitthvað fyrir Kjarnverk, langar að þakka þeim sérstaklega fyrir komuna og gjöfina sem er alveg æðisleg - og bendi á að World Domination Corp er alltaf að auglýsa eftir illmennum - og ég held að Ken borgi betur en Dr. Kjarnverk. Bara svo þið vitið það strákar *blikk*
Annars eru þetta þeir, og ef einhver þekkir þá, þrátt fyrir þetta svarta sem virðist koma sjálfkrafa fyrir augun á þeim á öllum myndum sem teknar voru, vill sá hin sami vinsamlega senda póst á info@worlddomcorp.com eða bara beint á bob@worlddomcorp.com
Þessir menn hafa balls of steel - og undanfarna daga hef ég komist að hversu sjaldgæfir þannig karlmenn eru á þessum síðustu og verstu tímum.
Eins og ég sagði í gær. Hat's off too you guys! Frábærir!
Mig langar líka að þakka manninum sem gekk föstum, ákveðnum skrefum uppað mér á barnum, heilsaði og dró upp andrésblað í plasti og gaf mér í afmælisgjöf. Mér þótti mjög vænt um það og að þú hafir komið og ég vona að þú hafir skemmt þér vel - en.. ég er smá perri og meira fyrir dönsk andrésblöð. Er einhvernvegin þannig að þegar ruglið er svo mikið að maður skilur ekkert, eins og danska er, mér finnst það mest spennandi þannig.
Vel til fundið að hafa blaðið í plasti - I'm a safety girl.
Mig langar að skila innilegu þakklæti til þeirra sem hjálpuðu mér að láta þetta gerast. Fólkinu hjá WDC sem bæði vann á barnum, sá um hljóðkerfið og myndatöku fyrir Ken. Skilst að myndbandið verði tilbúið síðar í vikunni. Ken er með slatta af fólki í því máli. Trúi ekki að hann hafi gert mér þetta - en mér finnst það smá sætt líka.
Allt starfsfólkið á Sólon, þar sem partíið var haldið, var algjörlega og alveg frábært. Ég get mælt eindregið með þessum stað fyrir einkasamkvæmi, ég var mjög ánægð með salinn og alla aðstöðu.
Ég er sjálf búin að vera í botlausum undirbúningi síðustu vikur, setja saman tónlist og.. fleira, en þurfti utanaðkomandi aðstoð til að fullkomna búninginn: hair and makeup. Fékk tvær serious og professional konur í það mál og veitti ekki af. Fyrst fór ég til hennar Elínar minnar hjá HárFókus sem tók hárið á mér gjörsamlega í gegn og gerði mig guðdómlega. "Rúllaði mig upp", eins og hún orðaði það. Steinunn hjá MAC í Debenhams tók svo við og málaði á mig sannkallaða englaásjónu.
Ég var orðin titrandi taugahrúfa úr stressi yfir því hvort Ken myndi lenda á réttum tíma fyrir afmælið og saman tóku þessar konur höndum saman og breyttu mér í engil.
Allir reikningar voru gefnir út á World Domination Corp sem mér fannst í sjálfu sér ekkert leiðinlegt.
Við Ken sváfum út í gær og ákváðum svo að hafa vöffluveislu og liggja í leti allan sunnudaginn. Sem við gerðum.
Á milli þess sem ég stari á hringinn, stari ég í augun á Ken. Hann er að fara út aftur í fyrramálið, ætlar að skoða eitthvað flugmóðurskip sem hann fann á góðu verði í Sviss. Hann segist þurfa að eiga þannig. Helst nokkur. Ég vil fá Toblerone, helst risastórt og eitt er alveg nóg. Þarna sést hver grundvallarmunurinn á mér og Ken er.
Í kvöld ætlar hann að fara með mig í bíltúr til Keflavíkur að skoða aðstöðu sem var víst að losna sem hann er að spá í að nota fyrir nýju höfuðstöðvarnar. Var að skoða einhverjar loftmyndir í dag sem hann fékk í tölvupósti. Mjög spenntur yfir þessu öllu saman. Stundum held ég að hann sé smá ofvirkur, en það skilar sér alveg á réttu staðina líka þannig að mér finnst það kostur.
Ég á eftir að skrifa um svo margt sem gerðist á laugardaginn, bíð aðeins með það þangað til Ken er farinn. Ætla að nýta þessar stundir sem ég á með honum í eitthvað uppbyggilegt -og mannfjölgandi.
Eitt af því sem fer öööörlítið í taugarnar á mér við Ken er að hann er rosalega mikið í símanum, en þegar Ken ákveður að eyða kvöldi með mér, þá slekkur hann á báðum símunum sem hann er með.
Mig langar að muna þetta þegar við erum búin að gifta okkur og hann er hættur að slökkva fyrir mig, því það kemur að því.
Hef ég minnst á hvað ég er mikil bjartsýnismanneskja?
Með þessu móti get ég sagt einn daginn:
"Ég man þá tíð.. þegar þér þótti ég þess virði að slökkva á helvítis símanum fyrir - en þaaað er nú eitthvað síðan það var! EITT ÁR, TVÆR VIKUR, SEX DAGAR OG FIMMTÍU OG ÁTTA MÍNÚTUR!"
Ég er viss um að honum finnist það sætt. Að ég skuli taka eftir svona hlutum. Karlmenn eru þannig.
Ég hló svo mikið áðan á leiðinni útá völl. Ken fór að segja mér að honum fyndist ógeðslega fyndið ef við myndum fá Jude Law til að leika sig þegar hann verður búin að ná heimsyfirráðum og lætur gera bíómynd um sig.
Tóti says: hæ.
Anna says: hæhæ
Tóti says: heyrðu.. ertu til í að útskýra fyrir mér hvað gerðist á laugardaginn?
Anna says: hvað meinarðu?
Tóti says: gaf þetta merkikerti þér í alvöru þennan bíl?
Anna says: já
Tóti says: get ég þá fengið pusjóinn?
Anna says: eh.. nei. Fordinn er tveggja sæta, á ég að geyma Dodda í skottinu?
Tóti says: ah ok. vissi það ekki
Tóti says: Það halda allir að þetta sé leikfangabíll og þú hafir photoshoppað myndina sem þú birtir
Anna says: lol já einmitt. Ég er nefnilega SVO góð í photoshop. Bentu þeim bara á síðuna mína þegar ég birti myndbandið, erfitt að photoshoppa það. Verður tilbúið seinna í vikunni. Fannst þér ræðan góð hjá mér?
Tóti says: mjög fín
Anna says: hjúkk, ég var smá stressuð
Tóti says: þú gerðir þetta mjög vel
Tóti says: hefði verið ennþá betra ef þessi mannfýla hefði sleppt því að láta sjá sig
Tóti says: hann er nú drullu ófríður og pervisin eitthvað
Tóti says: leiðinlegur líka gæti ég trúað
Anna says: láttu ekki svona, hann er ágætur. Getur ekki verið að láta hann fara í taugarnar á þér
Tóti says: allt hægt ef viljinn er fyrir hendi og þú veist hvernig ég er
Anna says: true
Ég er að fara á límingunum. Hugi stakk uppá að ég myndi láta negla mig, þessar límingar halda ekkert - gæti verið punktur, en Ken er ekki á landinu svo ég þarf líklega að out-sorsa það mál.
Ekki var Hugi nú að bjóða fram aðstoð þó hann sé öllum tólum búinn.
Þetta kallar maður vini sína.
Náði í Ken rétt áður en ég fór á fyrsta fundinn í félaginu sem ég er að fara að stjórna. Hann náði að róa mig töluvert og útskýrði fyrir mér að svona gengur lífið, það er allt til sölu og það þýðir ekkert að ráðast á kaupandann heldur finnur maður seljandann og veldur honum verulegu hugarangri. Hann sagðist alltaf halda nákvæma skrá yfir ættingja og ástvini starfsmanna sinna því það er ekkert gaman að kvelja gerandann, miklu skemmtilegra að kvelja þá sem honum finnst vænst um.
Hann er svo klár. Og vondur.
Ken lofaði mér að það myndu ekki fleiri bútar úr afmælinu mínu leka á vefinn. Ég trúi honum.
Hann er svo æðislegur og ég er hætt að pæla í þessu og svo lét hann líka bara stela þessu til baka. Er svo mikil dúlla.
Þetta er líka ógeðslega töff myndband sem hann er að láta búa til.
Annars grunar mig að ég hafi gert mistök þegar ég sagði mönnunum í hvítu göllunum frá því hvað Ken er hræddur við ryksuguhljóð. Dr. Kjarnverk er búinn að vera í allan dag á ganginum svoleiðis að djöflast á ryksugunni að það hálfa væri nóg. Sem betur fer byrjaði hann ekki fyrr en Ken var farinn. Má vera að ég hafi verið að fara á límingunum útaf þessu myndbandi áðan, en það er nú bara skerí hvað Ken fer í verulegt uppnám nálægt ryksugu sem er í gangi. Tengist eitthvað unglingsárunum og eðlislægri forvitni drengja - hann er voða duló þegar ég spyr hann útí þetta. Næ engu útúr honum.
Ég var að klára fyrsta phone-conference-call-ið mitt.
Fékk svo góðar fréttir, að þær hljóta eiginlega að vera fitandi.
Annars hef ég verið að sinna almennu viðhaldi. Finnst gott að gera svoleðis þegar Ken er ekki á landinu, þá geng ég um með bómull á milli lakkaðra tánna, háreyðingarkrem á efri vörinni og plokka á mér augabrúnirnar. Það fer engin smá tími í svona rugl og um leið og við Ken erum orðin legit hjón mun ég ráða konu sem gerir þetta fyrir mig á meðan ég horfi á sjónvarpið. Þangað til mun hann halda að ég sé bara svona æðisleg og hárlaus by nature.
Hann veit alveg að ég er það ekki, hann er ekkert fífl. Einu sinni t.d. gleymdi ég að fjarlægja hárin af stórutá og eitt kvöldið, þegar hann var um það bil að stinga stórutá á vinstri fæti uppí sig - eins og hann á til að gera - sagði hann "what the.. " og glotti svo smá. Helvítis. Hann sá þessi fimm hár sem eru þar. FIMM HÁR! Hvaða helvítis RUGL er það? Þetta líf.
Leikur mig grátt. Ef þau væru grá væru þau hinsvegar ekki eins áberandi.
Ég er náttúrlega dökkhærð og því fylgja ýmis vandamál. Ljóshærðar konur komast upp með að sinna svona viðhaldi miklu sjaldnar, það er þaðan sem frasinn "blondes have more fun" kemur. Þær hafa einfaldlega meiri tíma til að skemmta sér því það sér engin hárin.
Ken vill hafa brúðkaupið um áramótin á eyju sem hann er að kaupa þar sem hann ætlar að hafa HQ. Vill ekki segja mér hvaða eyja það er, en lofaði að innfæddir myndu svoleiðis lýsa upp himininn í tilefni af brúðkaupi okkar. Ég er ennþá að ná utanum þá staðreynd að í byrjun árs 2007 verð ég aftur orðin gift kona, nema í þetta sinn.. Mrs Bentley.
-Eða Mrs. World. Fer eftir hversu fljótur Ken verður að ná takmarki sínu.
Það eina sem ég hef smá áhyggjur af er þetta kjarnaoddabrölt alltaf á honum. Mig langar ekki að frumburðurinn okkar verði geislavirkur.
a) þegar límingarnar halda ekki og maður þyrfti helst að láta negla sig..
b) þá er ekki mjög gott að fara á fund með þremur lögfræðingum..
c) sem voru allir mjög serious and professional..
e) þegar kærastinn minn vill sjá sjálfur um allar neglingar í okkar sambandi..
f) sem mér finnst reyndar kostur
g) og oft væri gott að kunna stafrófið
Tvö mál afgreidd útaf borðinu. Myndbirtingar úr grímuballinu mínu og kaupmálinn.
Ekki séns að ég láti Ken komast upp með að giftast mér og hafa af mér allt sem ég á. Maður er nú ekki alveg fæddur í gær.
Djöfull geta lögfræðingar flækt hin einföldustu mál. Óþolandi vesen á þessum mönnum. Ef þeir væru ekki svona serious og professional myndi ég svoleiðis... já nei.
Bygons.
Þetta hafðist þó á endanum. Niðurstaðan er að ég fæ myndirnar sem systir þessa manns tók fyrir utan Sólon s.l. laugardag og fæ að gera við þær það sem mér sýnist. Ein hugmynd leaps to mind: stækkun.
Hann fær í staðinnn að birta tvö myndskeið af þremur úr veislunni. Hann er bílasali og mér finnst ferlega sætt hvað hann er spenntur að fylgjast með þessu. Grunar að hann hafi nú ekkert trúað mér aaalveg þegar ég var að útskýra fyrir honum aðdragandann. Gretti sig þegar ég minntist á fjarbúðina mína með Lifur, hann er giftur, veit ekki hvað fjarbúð er náttúrlega. Já svo fannst honum Lifur eitthvað asnalegt nafn - skil það nú ekki - og spurði hvað ég meinti þegar ég sagði að Hugi hefði drepið Ken einu sinni en Franklín Steinn hafi lífgað hann við. Meina.. SHIT HAPPENS.
Allavega, það eru allir sáttir.
Ég var að skoða myndbandið með lögfræðingunum og þeim sem eru að klippa í morgun, það á eftir að klára smá breytingar á stærsta hlutanum (sem ég ein hef birtingarrétt á) þannig að ég set þetta allt inn í kvöld.
Smá tækniörðugleikar hafa hindrað mig í að birta myndbandið núna en það kemur. Ég var hinsvegar að skoða myndirnar sem ég fékk í staðinn fyrir hin myndskeiðin. Gaman að eiga digital myndir af þessu líka - hægt að smella á til að stækka flestar.
Fyrir aftan bílinn (minn) er lífvarðabíllinn hans Ken. Hann fer ekki útí sjoppu án þeirra.
Þetta eru leifar frá því hann bjó í París, alltaf verið að reyna að ráða hann af dögum þar. Erfiðir í skapinu sumir karlmenn sem búa þar.
Ken að stíga útúr bílnum. Þessi fremsti þarna heitir David og hann er sá eini af þeim sem hefur actually bjargað lífi Ken og lifað. Það var þegar Ken gleypti hljóðnema. Óvart. Löng saga. Er ekkert viss um að Ken vilji að ég segi frá þessu þegar ég hugsa útí það. Þetta var samt ekkert svo stór hljóðnemi. Þeir náðu honum á snúrunni.
Bygons.
Ég er alveg í góðum höndum þannig lagað þó hann sé ekki á landinu. Eruði að sjá handleggina á þessum mönnum? Jesús María og allir hinir dvergarnir..
Gaman að segja frá því að Ken klæðir sig bara í BOSS föt. Ég var búin að stríða honum endalaust á því að BOSS framleiðir ekki grímubúninga - nei - helvítis maðurinn lét prenta "the punisher" hauskúpuna á fricking BOSS bol til að geta verið í BOSS all the way!
Ekkert smá sætt að hann hafi mætt sem the punisher. Þó það sé í raun bannað að mæta á grímuball sem eitthvað sem maður er í alvörunni. Það sleppur samt því hann refsar bara mér - þannig.
Ég held bara áfram að dæla inn ljósmyndum þangað til ég fæ vídeóið í hendurnar.
Smá hreyfð mynd hér að ofan en ég held samt að það sjáist hvað ég er gjörsamlega lost. Ótrúlegur að plana þetta. Gjörsamlega ótrúlegur. Þarna var hann sumsé búinn að stela mér úr veislunni til að sýna mér afmælisgjöfina mína.
Þetta er náttúrlega insane - Ken er smá þannig.
Ég var ekki alveg að trúa öllu því sem var að gerast þetta kvöld.
Þetta er take charge man - eins og ég hef sagt - en þegar hann gnæfir svona yfir mér eins og vampíra og kyssir mig.. hvað get ég sagt... þetta er besta víma sem til er. Maður kiknar í hnjáliðunum, gengur um eins og róni og þetta tæmir gjörsamlega alveg hugann. Gerir kraftaverk fyrir æðakerfið og hjartað - sem hamast eins og það ætli útúr brjóstinu á þér. Þvílík og önnur eins áhrif, hef aldrei vitað annan eins karlmann.
Annars finnst mér lang sætast það sem frumburðurinn sagði við mig þegar við vorum að borða pizzu með Huga í gærkvöldi. Hún sagði "You simply haven't lived fyrr en þú hefur staðið á svölunum á Sólon og fylgst með Ken kyssa mömmu þína, sem er klædd eins og engill, og uppvið geðveikan sportbíl."
Við fórum öll að hlæja þegar Hugi bætti við: "Já. ég er ekki viss um að mamma mín hefði púllað það off."
Þarna er David að fá einhver skilaboð. Tala rosalega mikið í talstöðvar þessir menn.
Mér finnst það cool og ógeðslega töff bolir sem þeir nota. Það skiptir máli.
Þarna er ég að horfa á eftir honum keyra í burtu. Ennþá í hálfgerðu losti.
Þetta er mynd af mjög hamingjusamri konu. Með rétta manninum gerði hún svolítið sem hefur, skv. öllum heimildum, aldrei verið gert áður.
Í heiminum.
Ég veit ekki hvort orðið "töff" nær nægilega vel utanum það.
(Hér gef ég mér að Ken sé að segja satt þegar hann segist aldrei hafa beðið konu um að giftast sér fyrr.)
Jæja.. þá er ég loksins komin með réttar myndir í hendurnar, so here goes..
Fyrir fimm árum síðan ákvað ég að halda grímuball þegar ég yrði þrjátíu og fimm ára. Ég lifi nefnilega eftir mottóinu "I plan ahead, that's why I never do anything right now". Þetta virkar - í alvöru.
Það stóð alltaf til að Ken kæmi í afmælið mitt, við erum búin að vera saman síðan í júní svo það er alveg komin tími til að kynna hann fyrir öllum. Hann þurfti hinsvegar að fara til Svíþjóðar til að sprengja upp Færeyjar (sem tókst ekki) og flytja kjarnaoddana sína á milli húsa. Vesen á þessum karlmönnum alltaf - nema hann ætlaði að lenda á Íslandi seinnipartinn þann 14. október svo hann gæti komið í afmælið mitt.
Klukkan hálf níu hringdi hann hinsvegar í mig og sagði mér að hann hefði verið handtekinn í Svíþjóð og hann kæmist augljóslega ekki á grímuballið. Ég var náttúrlega með fullt hús af fólki í grímubúningum og ákvað að ég gæti ekki verið að láta þetta brjóta mig niður.
En... Á meðan ég var að halda ræðu og bjóða fólkið í afmælinu mínu velkomið gerðist þetta:
Helvítis kvikindið var náttúrlega búinn að ráða menn til að taka allt saman uppá vídeó því hann vissi að hvað ég yrði hissa þegar hann kæmi. Hérna fyrir neðan er upptaka úr veislunni minni, byrjar á ræðunni sem ég hélt. Um kvöldið var ég í öðrum skóm en þeim sem ég hafði tilkynnt að ég ætlaði að vera í. Ég held að stór prósenta gesta hafi spurt mig hvar hvítu skórnir væru eiginlega en þegar ég byrjaði að halda ræðuna var ég auðvitað komin í réttu skóna. Ég átti hinsvegar ekki von á því sem gerðist þegar leið á ræðuna mína.. (þetta er ca 8 mín að lengd)
Hann bað mín!
Vá ég trúi því varla ennþá. Hringurinn sem Ken gaf mér er með sjaldgæfum demanti sem kallast blóðdemantur, sá eini sinnar tegundar í heiminum og er ca 78 milljarða virði í evrum. Gullið í hringnum er ekki alveg svo verðmætt enda meira en eitt gull til í heiminum síðast þegar ég vissi. Samt ekki.. ef þú bræðir allt gullið saman er það orðið eitt gull... bygons.
Hann fullvissaði mig um að hann hafi ekki stolið hringnum en sagði mér að þetta er svo merkilegur demantur að það er verið að gera bíómynd um hann.
Hann lét þetta nú þetta ekki duga heldur gaf mér líka geðveikan sportbíl í afmælisgjöf við mikinn fögnuð viðstaddra en svo frétti illþýðið hans að löggan væri að koma svo hann var keyrður í öðrum bíl í burtu. Æ mér er alveg sama. Það er vesen á honum, en ég vil samt meina að það séu til svo miklu verri kærastar en þetta.
Var að tala við Ken á skype og spyrja hann af hverju í fjandanum hann lætur klippa inní lokin á þriðja myndbandinu "now blow, blow, blow, blow."
Ég vissi reyndar strax af hverju - en ég vildi heyra hann segja það.
Ef einhver efaðist, þá sannar setningin hér fyrir ofan að ég er - in fact - kona.
Þetta er ekta "konu" modus operandi - no, really.
Hann viðurkenndi að hann lét gera þetta til að stríða mér, eins og ég vissi - og heyrði að hann var skíthræddur um að ég væri mökk fúl - sem ég er reyndar ekki, en hann má alveg halda að ég sé það, hehehe - ég er svo mikil padda. Hann er það líka. Eigum svo vel saman..
Við sáum nefnilega grín auglýsingu um daginn í sjónvarpsþætti, minnir að það hafi verið Family Guy, nema í auglýsingunni er maður að gefa konu demantshring. Þegar hringurinn er kominn á fingurinn þá kyssast þau voða kát, horfa á hvort annað.. og svo byrjar konan að færa sig niður. Yfir skjáinn kemur textinn:
"Diamonds. She'll pretty much have to."
Mér fannst þetta auðvitað alveg óborganlega fyndið og dó næstum úr hlátri.
Well.. Ken gaf mér bæði demant.. og sportbíl.
touché!
Helvítis asni sem þetta er. Mér fannst þetta nú samt meinfyndið - var bara ekkert að segja honum það. Strax.
Ég sagði honum hinsvegar að ég myndi að sjálfsögðu standa í skilum og þar sem hann er ekki Á LANDINU frekar en fyrri daginn, yrði ég að borga henchmönnunum sem hann skildi eftir á ganginum hjá mér og láta þá um að koma greiðslunni til hans.
Ég er viss um að þeim leiðist ekkert ef ég.. blæs á þá.
Heitt frammi á gangi og svona.
Á meðan ég þrammaði um hlemm og nágrenni í kvöld, að leita að helvítinu honum Margeiri, helltist yfir mig þvílíkur efi og ég er viðþolslaus núna. Hvað ef þetta er tómt rugl? Ég hef oft sagt að ég sé á móti cross cultural samböndum, nenni ekki öllu veseninu sem því fylgir. Af hverju nenni ég því þá með Ken?
Af því hann er spennandi?
Það er samt ekkert rosalega spennandi að lifa einhverju spennufíklalífi for the rest of your life. Nenni ég því? Vera í stöðugri lífshættu og komast ekki í bónus nema með lífverði. Hvaða rugl er það eiginlega? Hvað gerðist eiginlega? Síðast þegar ég vissi langaði mig bara í lítið hús með gróðurhúsi og litlum garði og hvítu grindverki!
Hvað hefur komið fyrir mig? Þetta er rosalega ólíkt mér. Sure, ég hef verið að leita að öryggi, komist nálægt því og blekkt sjálfa mig með því að halda að ég hafi fundið það, en í hvert sinn reyndist það vera.. innantóm þvæla.
Hvað ef Ken er líka innantóm þvæla? Hvað ef ekkert sem hann segir gengur eftir? Hvað ef hann er.. bara eins og hinir?? ÉG ER AÐ GEÐBILAST OG ÉG FINN EKKI MARGEIR!
Kræst ef Ken er eins og restin þá er ég bara hætt. Ég nenni þessu ekki lengur. Fokk. Ég get ekki bakkað útúr þessu núna og samt er ég skíthrædd við að taka skrefið til fulls. Gifta mig aftur? HVAÐ ER ÉG AÐ PÆLA? En af hverju er ég svona hrædd við það? Er ég svona hrædd við að vera í alvörunni hamingjusöm? Er ég hrædd við að ég gæti hafa fundið mann sem er for real og þá get ég ekki höndlað það?
Ég er eins lost og hægt er að vera.
THE FUCK IS WRONG WITH ME!
Rosalega eru lesendur mínir duglegir að raka sig, ég þarf að taka mig á!
--
Anna átti til að hugsa mikið án þess að komast að vitrænni niðurstöðu.
"you really sort it out to tape, your immagination and dialogue into pictures.
i really wish i could turn back time and run into the scene
with the scull t-shirt and angel feathers
saying that i am able to combine heaven and hell
/ white and black /
happiness and sadness
of this wonderful woman called anna ..."
Stundum þarf að velja allan textann á anna.is til að sjá heildarmyndina og til að skilja hvað ég er að tala um.
Sumir skilja ekki orð af því sem ég skrifa, en skilja mig samt betur en ég sjálf.
Var að lesa um fyrsta sleikinn hennar Barbie Clinton. Rifjaðist upp fyrir mér hvenær ég fór fyrst í sleik.
Ég var fjórtán ára. Ég var búin að kyssa þennan strák nokkrum sinnum á "saklausa" mátann og vorum orðin bona fide kærustupar. Þetta kvöld tróð hann tungunni upp í mig og ég ýtti honum í burtu og sagði stórhneyksluð: "ertu eitthvað vangefinn?"
Man ennþá hvað mér fannst hann steiktur í hausnum að gera þetta.
Hann hló taugatrekktum hlátri, man ennþá hvað hann var.. hissa.. á því að ég hafði greinilega aldrei prófað þetta áður. Svo reyndi að útskýra fyrir mér að það væri eiginlega.. ég.. sem væri vangefin ekki hann. Ég var nú ekki alveg tilbúin að kaupa það.
Hann þurfti að beita töluverðum fortölum til að fá mig til að prófa þetta, aumingja strákurinn.
Ég var svo græn.
Get varla talist græn lengur og fortölur eru hættar að virka á mig. Ef mig langar ekki, þá langar mig ekki og ekki séns að fá viðbrögð frá mér. Má samt segja að þessi strákur hafi gert mig að þeim kyssara sem ég er í dag, enda lögðumst við í stífar æfingar eftir þetta eins og við værum að fara á ólympíuleikana í sleik. Slitnaði ekki slefið á milli okkar. Það var ekkert smá gott að kyssa hann og það er ekki gefið.
Samt er þetta ekki flókið.
Jú. Þetta er flókið. Ég get allavega ekki lýst því hvernig á að gera þetta rétt.
Líklega hafa sumir þetta í sér og aðrir ekki. Kannski passar fólk einfaldlega misjafnlega saman. Það sem mér finnst gott finnst öðrum kannski ekkert sérlega gott og vice versa.
Ég veit það ekki. Ég sé yfirleitt í augunum á viðkomandi hvort mér finnst gott að kyssa hann. Ég veit áður en ég er svo mikið sem snert hvort það virkar fyrir mig eða ekki. Það er þetta.. óskilgreinda sem engin hefur orð yfir og sú staðreynd að koss er ekki bara koss. Hann er svo miklu meira en það. Þetta er eins og þú getur ekki byrjað á því að setja krem á köku áður en þú bakar hana. Góður koss hefur ákveðinn aðdraganda og þú þarft að vita hvenær rétta mómentið er. Þessi aðdragandi getur verið nokkrar vikur, dagar, klukkutímar eða jafnvel nokkrar mínútur. Fer allt eftir hvað mikið kemistrí er í gangi og þú feikar ekki kemistrí.
Þegar Ken kyssti mig fyrst á grímuballinu, þegar hann hafði gefið mér hring og rós, það var alveg yndislegur koss - svona - "ég elska þig" koss. Varfærnislegur og þrunginn tilfinningu. Við bílinn kyssti hann mig öðruvísi kossi, ekkert minna tilfinningaþrunginn en það var "ég þrái þig" koss og ég er sucker fyrir þannig kossum, skilst að það sé heróín skylt efni sem heilinn framleiðir við þannig koss.
Þriðji kossinn sem hann kyssti mig var "verð að fara en mig langar ekki til þess" koss. Samlegðaráhrif þessara kossa er hægt að beinlínis sjá á mér í lok þriðja og síðasta myndbandsins. Maður sem getur látið mig geisla svona.. hann hefur það sem þarf.
Við lifum bara einu sinni. Einu sinni.
Mistök eru dýr.
Held að það sé rosalega verðmætt að þekkja tilfinningar sínar. Ekkert eins ömurlegt og að átta sig á því að þú ýttir þessum rétta í burtu frá þér, af því þú varst fáviti. Ég ætla ekki að vera fáviti. Og ég ætla bara að kyssa Ken, for the rest of my life. Það er svo auðvelt.
Mig langar ekki að kyssa neinn annan en hann hvort sem er.
Sá ömurlegi atburður átti sér stað í kringum miðnætti hér á anna.is að öll komment frá upphafi gufuðu upp af síðunni.
Ég er að vona að það sé hægt að ná í þetta úr gagnagrunninum.
Ætla að bíða og sjá, áður en ég fer að gráta.
Annars leið mér verulega illa í kvöld. Veit ekki af hverju. Þetta með kommentin kom ekki í ljós fyrr en um miðnætti en vanlíðanin kom uppúr níu - minnir mig.
Ég er ekki að tala um að ég hafi verið veik.
Hafiði einhvertíma fengið.. bad feeling. Fundið.. sting, sting í maganum eins og það sé eitthvað verulega mikið að - en þú veist ekki hvað það er. Eins og eitthvað hræðilegt hafi verið að gerast sem tengist þér beint. Þú kemst venjulega að því eftirá hvað gerðist - því þegar þú finnur svona, þá er eitthvað að. Bæði börnin mín eru hjá mér, annars væri ég viðþolslaus. Sjaldan sem ég hef fengið svona svakalega slæma tilfinningu uppúr þurru.
Ekki kommentin, það er séns á að ná þeim aftur (- afneitun rúlar)
Þá er riddarinn á hvíta hestinum mættur á svæðið, hann er meira að segja með sverð!
Mér finnst það cool.
Hann er í þessum skrifuðu orðum að reyna að koma lag á gagnagrunninn - fræddi mig um það að síðan er keyrð á kóða sem er frá árinu 1994. Það fer um mig hrollur við tilhugsunina.
Ekki nóg með að hann ætli að reyna að laga gagnagrunninn fyrir mig (no pressure - thihi) hann hefur líka boðið mér permanent hæli fyrir anna.is og mun ég flytja til hans sem pólitískur flóttamaður innan tíðar.
Þetta eru alveg rosalega góðar fréttir fyrir mig af ástæðum sem verða ekki tíundaðar hér frekar. Ég vona svo af öllu hjarta að það sé hægt að bjarga kommentunum mínum, þau skipta mig miklu máli.
Allir sem þekkja mig vel vita hvað anna.is er órjúfanlegur hluti af höfundi bloggsins þannig að ég vona svo sannarlega að það sé nóg pláss fyrir húsgögnin mín líka - og svo þurfa börnin eiginlega sitthvort herbergið. Ekki séns að ég skilji risastóra hornbaðkarið eftir og svo þarf ég náttúrlega líka pláss fyrir búrið hans Margeirs.
DOH!
Ég gleymi alltaf að sækja hann til löggunnar.
Bygons.
Hver man þannig smáatriði?
Ég á ekki rúm svo ég gæti þurft að krassa í rúminu hans - en ég fer oft í bað svo það er sæmilega góð lykt af mér oftast og ég er ferlega góður nuddari svo það ætti að reddast - einhvernvegin.
Já og Ken þarf líka bílskúra fyrir bílana sína og mína og svefnaðstöðu fyrir 50 manns. Hlýtur að vera hægt að redda því.
Ég er btw ekki manneskja sem tek allan handlegginn þegar mér er réttur litli fingur - fannst rétt að taka þetta fram - ef það er ekki augljóst.. nú þegar.
Ekki allir sem hafa bona fide riddara á msn - onei..
Mánudagur, 30. október 2006
Anna says: ég verð að fara að sofa
Anna says: gengur eitthvað að finna tólin?
Riddarinn says: ef ég væri ekki önnum kafinn við að leita að þessum tólum, þá gæti þessi spurning verið ansi kómísk
Anna says: hahahaha nú sprakk ég úr hlátri
Riddarinn says: Farðu að sofa, ég skal gera mitt allra besta til að reddessu
Anna says: æ takk
Riddarinn says: my pleasure.
Riddarinn says: fæ að klifra á bak gamla hvíta hestinum
Riddarinn says: Etta er challenge sko
Anna says: ég er með fingers crossed
Riddarinn says: ok Gnótt
Anna says: góða nótt riddari
Riddarinn says: *vriiinsk*
--
Ég veit eiginlega ekki hvað ég hef gert til að eiga skilið að þekkja jafn frábært fólk og ég þekki.
Líkurnar á því að ég fái öll komment til baka hafa aukist um 164% síðan í gær.
Allt starfsfólkið hér á anna.is er í viðbragðsstöðu fyrir flutningana sem munu að öllum líkindum fara fram seinna í dag. Þetta gæti þýtt að heimasíðan www.anna.is hverfi af Internetinu í einhverja klukkutíma.
Lesendur geta búist við einhverjum fráhvarfseinkennum og fyrir þá sem finna fyrir verulegum óþægindum vill höfundur koma því á framfæri að síðan verður aldrei lengur niðri en í 24 tíma.
Við erum með flota af afburðagreindum mönnum sem hafa lagt nótt við dag til að gera þessa hluti mögulega og þeir munu halda sér gangandi á kóki (coca-cola - hvað er þetta!), eða öðrum vökva sem inniheldur mikið magn af koffeini, þangað til síðan er komin í örugga höfn á nýjum nafnaþjónum.
Þetta er sögulegt móment.
anna.is hefur verið hýst á sama stað frá upphafi - en nú er hún orðin svo stór - að hún er að flytja að heiman. Vill svo skemmtilega til að á morgun er Halloween og mér finnst eiginlega fátt eins viðeigandi og að anna.is setjist formlega að á nýjum stað á þessum degi.