www.anna.is
ravings of a lunatic
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings of a lunatic movie hall of fame ferilskrá
Vantraustyfirlýsing
Fimmtudagur, 21. september 2006

Það er til fólk sem heldur að daginn sem börn verða unglingar verði þau sjálfkrafa geðveik.

Ég hef hinsvegar komist að því, the hard way, að það er hægt að gera börn geðveik með því að..

a) draga allt sem þau segja í efa
b) væna þau um að gera hluti sem eru gjörsamlega útí hött
c) vera með stöðugt og yfirþyrmandi eftirlit
d) láta þau stöðugt finna að þú treystir þeim ekki

Þegar einhver kemur svona fram við þig þegar þú hefur ekkert gert til að eiga inni fyrir því er gjörsamlega og algjörlega óþolandi og ekki nokkurri manneskju bjóðandi að búa við það. Ég verð að viðurkenna að ég myndi gera uppreisn á þeim aldri sem ég er Í DAG gegn manneskju sem kæmi svona fram við mig. Mín uppreisn yrði einfaldlega að hætta að umgangast viðkomandi.

Börn hafa því miður ekki alltaf það frelsi.

Það gerðist líklega alveg óvart, og mögulega vegna þess að ég hef aldrei lesið bók um uppeldi, en ég ákvað að sýna börnunum mínum sömu virðingu og ég sýni öllu fólki. Ég treysti þeim þangað til þau gefa mér ástæðu til annars. Á meðan þau gefa mér enga ástæðu til að efast um heilindi þeirra gagnvart mér er engin ástæða til að efast. Á meðan þau standa við allt sem þau segja, er engin ástæða til að vantreysta þeim. Það er ekkert flóknara.

Mér finnst gróf móðgun við manneskju að koma fram við hana eins og afbrotamann - bara af því hún er unglingur og ef mín aðferð veldur því að barnið mitt verður geðveikt get ég allavega huggað mig við það að hin aðferðin hefði gert það líka.

Ég held samt að ég hafi séð einhverstaðar að vantraust aðferðin sé með 100% guarantee: your kid will go insane or you get your money back.


| anna | 14:07 |
comments

nákvæmlega! hef alveg sömu stefnu í uppeldi, virkar velsmile

hef annars lent í svipuðu sjálf, þ.e. það hefur verið komið fram við mig af tortryggni og vantrausti án þess ég hafi nokkuð fyrir því unnið...held að fólk sem er t.d. sjúklega afbrýðisamt treysti ekki öðrum af því að það sjálft er ekki traustsins vert (margur heldur mig sig, eins og sagt er)

Nr. 1 | posted by: baun | 21.09.2006 | 14:33:12 | [+] |

Gott að heyra að þessi aðferð virkar hjá þér, ég hef sjálf trölla trú á henni!

Já, og eins og einhver sagði "treystu fólki sem treystir þér". smile

Nr. 2 | posted by: anna | 21.09.2006 | 14:36:26 | [+] |

"treystu fólki sem treystir þér" - þetta finnst mér frábær speki smile

Nr. 3 | posted by: baun | 21.09.2006 | 15:35:53 | [+] |

Ég á einmitt mömmu með svona uppeldisaðferð, treysti mér alltaf 100% jafnvel þótt ég hafi ekki alltaf átt það skilið.
Ég get vottað fyrir það að þetta á eftir að margborga sig.

angel

Nr. 4 | posted by: Elín | 21.09.2006 | 16:28:34 | [+] |

Spáið í það ef maður væri á vinnustað þar sem væri komið svona fram við mann eins og Anna er að lýsa. Þá sér maður hvað þetta er fáránlegt. Og samt líðst svona á mörgum heimilum! Ekki bara gagnvart börnunum, heldur líka makanum.

Nr. 5 | posted by: Fríða | 21.09.2006 | 17:33:38 | [+] |

ég er sko unglingur þannig smile ÞETTA ER 100% SATT melodramatic nerd embarassed angel

Nr. 6 | posted by: Anna Andrea | 21.09.2006 | 19:15:59 | [+] |

Það er mín reynsla að:

1) Fólk sem hefur aldrei notið trausts mun alltaf eiga erfitt með að treysta öðrum.

2) Fólk sem nýtur trausts mun yfirleitt gera sitt besta til að standa undir því. Einfaldlega vegna þess að traust er eitt það dýrmætasta sem hægt er að gefa og það er fæstum sjálsagt mál að bregðast því.

3) Ef þú gefur einhverjum til kynna að þú treystir honum ekki, þá er líklegra að hann bregðist traustinu en ef þú gefur til kynna að viðkomandi eigi allt þitt traust.

Ég reyni að lifa samkvæmt þessum reglum. En hef brugðist trausti annarra, og það er það sárasta sem hægt er að gera.

Nr. 7 | posted by: Hugi | 21.09.2006 | 19:16:15 | [+] |

Fer eftir sömu reglu, ekki bara í uppeldinu heldur líka í kennslunni. Hvernig eiga börn að læra að sýna virðingu er engin er sýnd þeim, ég bara spyr?

Ég hef líka brugðist trausti og tek undir með Huga, það er ekki góð tilfinning. really sad

Nr. 8 | posted by: hildigunnur | 21.09.2006 | 20:23:48 | [+] |

Ég er svo innilega sammála! Verð reglulega brjáluð yfir hvað unglingum er sýnd mikil vanvirðing og vantraust. Ekki síst af fjölmiðlum. Segi það aftur og segi það enn... þeir hafa ekki vott af áhuga þegar maður segir frá því að hundrað unglingar hafi sett upp West Side Story með 24 manna hljómsveit... en slagsmál, dóp eða kynlíf. Það er önnur saga. Þá er hægt að setja það í helstu fréttir... taka fleiri Kastljós undir málið og býsnast með helv... umvöndunartóninn endalaust. Djö... verð ég reið. Fyrirgefið blótið, er bara pissed gnasher

Nr. 9 | posted by: Sigga | 22.09.2006 | 10:36:36 | [+] |

Ofbeldi selur. Sad but true.

Nr. 10 | posted by: anna | 22.09.2006 | 11:01:08 | [+] |
post a comment


Muna upplýsingar?












smilie winky colgate happy boogie toungue wahahahaha

angel embarassed doubt silent sad guilty shy sour

hmmm evil gnasher sick drunk what cool wave

weepy melodramatic nerd clown chococat nightmare pirate








Tell me, yes or no.








recent ravings
recent comments
monthly archive

links
blogs
links - web