www.anna.is
ravings of a lunatic
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings of a lunatic movie hall of fame ferilskrá
Tilraunastarfsemi
Mánudagur, 25. september 2006

Ég hef áttað mig á því að ég fæ ekki hvíta skó og ég hef sætt mig við það.

Í staðinn ákvað ég að kaupa skó sem eru einhvernvegin á litinn og lita þá hvíta. Fór í Kringluna í dag eftir vinnu til að finna skó sem væru hentugir í þetta verkefni. Fann þá. Nema þeir voru til í brúnu og hlandgulu. Ég keypti brúnu vegna þess að mér fannst þeir fallegri. Þegar ég kom heim áttaði ég mig hinsvegar á því að mér finnst þeir actually mjög fallegir. Áhugavert annars hvernig þetta orð "falleg" breytist eftir því hvort þú bætir ri eða ir fyrir aftan.

Bygons.

Ég get ekki skemmt skó sem mér finnst fallegir. Það gengur þvert á allt sem ég trúi og er ekki í eðli mínu. Þetta þýðir að á morgun fer ég og kaupi hlandgulu skóna og skemmi þá. Enda eru þeir ógeðslega ljótir á litinn en mjög flottir í laginu.

Sem betur fer eru þessir skór á hálfvirði á útsölu.

Hlakka nú doldið til að reyna að galdra þessa hlandgulu hvíta. Þeir eru nefnilega.. loðnir.

Ég mun birta before and after myndir - sama hvernig til tekst. Í langversta falli klæði ég þá að utan með hvítum vinyl.

Reyndar gæti það komið helv vel út..


| anna | 19:22 |
comments

Vá, hvað þetta verður spennandi! smile

Nr. 1 | posted by: Sigga | 25.09.2006 | 19:42:32 | [+] |

Alveg fann ég á mér að þú værir að brasa eitthvað svona, því ég fann áðan skyndilega hjá mér mikla þörf fyrir að leita að frelsisstyttubúningnum sem ég keypti í New York sama dag og við fyrrverandi ákváðum að skilja. Tengdi það tvennt reyndar ekki fyrr en nýlega.

En hlandgulir loðnir skór, ekki hljómar það fallega

Nr. 2 | posted by: Fríða | 25.09.2006 | 20:48:04 | [+] |

Nei, þeir eru ógeðslega ljótir. Þetta er verðugt verkefni.

Nr. 3 | posted by: anna | 25.09.2006 | 20:58:02 | [+] |

Þá er bara að galdra smile

Nr. 4 | posted by: Fríða | 25.09.2006 | 21:31:15 | [+] |
post a comment


Muna upplýsingar?












smilie winky colgate happy boogie toungue wahahahaha

angel embarassed doubt silent sad guilty shy sour

hmmm evil gnasher sick drunk what cool wave

weepy melodramatic nerd clown chococat nightmare pirate








Tell me, yes or no.








recent ravings
recent comments
monthly archive

links
blogs
links - web