Miðvikudagur, 13. september 2006
Ef súrefni er ósýnilegt og allt í kringum okkur, getur verið að fólk sem er blint sé ekki blint heldur sjái bara svo vel - að það sjái súrefnið.. þannig að allt verður svart?
Getur maður rekið sig í atóm og meitt sig? Ég hrapaði á gólfið áðan og meiddi mig. Þetta var töluvert fall, leggjahæð. Ég held að þegar fólk dettur þá sé það stundum að hrasa um súrefni eða önnur óskilgreind, ósýnileg efni eins og aether
Mér finnst þessi mál alls ekki fá nógu mikla umfjöllun í fjölmiðlum. Af hverju má bara tala um þegar einhver skýtur einhvern og meiðir hann en ekki þegar einhver dettur um atóm?
Mig langar líka að vita af hverju ég segi stundum bakarí þegar ´g meina apótek og öfugt.
Ég er eiginlega alveg viss um að þessi rammi sé skakkur. Er hann skakkur? eða er ég skökk? hvort er hann skakkari þegar ´g er drukkin eða ódrukkin? eða skiptir það ekki máli? brenglast innbygð skekkjumörk eistaklinga þgear þeir neyta áfengis í of miklum mælil sein og ég, eða er þetta einsatklings bundðð og takav erði inn ´ijöfnuna að sumir sjá allt skakkt alltaf.
Þá verður maður að giftast náttúrulega jafn skökkum einstaqkling og maður er sjálfur eða einhverjum sem hefur mikið umburðalyndi fyrir skökkum hlutum.
É gæ tla að prufa að nota máttinn ti lað laga þetta.