www.anna.is
ravings of a lunatic
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings of a lunatic movie hall of fame ferilskrá
Recruiting
Miðvikudagur, 27. september 2006

Síðast þegar ég fór á djammið í lok júlí var ég stödd á ónefndum veitingastað þegar ég ákvað að ganga uppað ákveðnum karlmanni og tala við hann.

Anna: "Hvað tekurðu fyrir kvöldið?"
Maður: hikar "Eh.. ég get ekki tekið minna en *censored*"
Anna: "Flott, má ég fá símann hjá þér?"
Maður: "heh, ég er bókaður alla helgina"
Anna: glottir "Ég þarf þig ekki um helgina, ég þarf þig í október"
Maður: "Ó.. ertu með blað og penna?"

Veit ekki af hverju ég gerði þetta. Ég deita ekki dj's (hef fordóma gegn þeim) og ég þarf ekki á honum að halda í október.

Kemur útá eitt - er búin að týna númerinu.


| anna | 22:02 |
comments

Af hverju ertu með fordóma gegn dj's? Er það eftir þetta svar frá þessu eintaki eða eitthvað eldra?

Og hver þarf annars yfirleitt á karlmönnum að halda sem svara svona?

Nr. 1 | posted by: Fríða | 28.09.2006 | 9:18:48 | [+] |

Neinei, það voru bara svo fáir fordómar undir "d" þannig að ég þurfti að gerast creative. colgate

Nr. 2 | posted by: anna | 28.09.2006 | 9:30:20 | [+] |

hihihi svona fólk sko!

Nr. 3 | posted by: Fríða | 28.09.2006 | 9:32:33 | [+] |

Djáknar, dyraverðir, dýralæknar, danskennarar .. það er fullt af d-fólki sem er eðlilegt að hafa varan á gagnvart.

Nr. 4 | posted by: Hugz | 28.09.2006 | 10:53:01 | [+] |

Dyraverðir - eiga ekki séns í helvíti,
danskennarar - mjög varhugaverðir,
djasspíanistar - hehe,
drama coaches - matröð,
dansarar - no way,
deildarstjórar - aldrei aftur,
djókarar - einstaklega ófyndnir,
dómarar - of dómínerandi,
draumagæjar - eru það aldrei for real,
dýratemjarar - mjög spes,
dönskukennarar - kem ekki nálægt svoleiðis rugli,
demantasmyglarar - aldrei heima,
designers - of bíond,
drúídar - bara skerí,
drykkjumenn - ekki aftur,
djammarar - no thanx,
draumráðningarmenn - held ekki bara,
drag drottningar - ekki fyrir mig,
drengir - nope, ég vil karlmann,
djúd law - been there, done that.

Sá eini í d-um sem ég hef ekki fordóma gagnvart og myndi mögulega fara á deit með.. er líklega djöfullinn sjálfur.

Hann er með númerið mitt.

Nr. 5 | posted by: anna | 28.09.2006 | 11:39:31 | [+] |

Vantar líka dúklagningamenn á listann.

Nr. 6 | posted by: Hugz | 28.09.2006 | 11:54:59 | [+] |

Þeir eru alveg stórhættulegir með þessa hnífa sína.

Nr. 7 | posted by: anna | 28.09.2006 | 11:58:25 | [+] |

En hvað með diskódansara? Ég held að hann myndi henta þér vel. Þú gæti amk. dansað trylltan diskódans við hann!

Nr. 8 | posted by: eddið | 28.09.2006 | 13:24:28 | [+] |

djúd law colgate

en úr því déið lítur svona út hjá þér, hvernig ætli t.d. effið líti út?

Nr. 9 | posted by: Fríða | 28.09.2006 | 13:34:30 | [+] |

hvort var þetta í síðasta skipti sem þú djammaðir í júli mánuði eða í síðasta skipti sem þú djammaðir?

Nr. 10 | posted by: Halldóra | 28.09.2006 | 23:19:00 | [+] |

Síðasta skipti sem ég djammaði.

Nr. 11 | posted by: anna | 28.09.2006 | 23:21:51 | [+] |
post a comment


Muna upplýsingar?












smilie winky colgate happy boogie toungue wahahahaha

angel embarassed doubt silent sad guilty shy sour

hmmm evil gnasher sick drunk what cool wave

weepy melodramatic nerd clown chococat nightmare pirate








Tell me, yes or no.








recent ravings
recent comments
monthly archive

links
blogs
links - web