www.anna.is
ravings of a lunatic
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings of a lunatic movie hall of fame ferilskrá
To clarify
Fimmtudagur, 28. september 2006

Já.

Það er kannski rétt að taka fram strax að auðvitað kemur leikarinn Jude Law ekki á grímuballið. Jude hefur enga ástæðu til að koma þangað, ég er löngu búin að gera honum grein fyrir því að ég vil ekkert með hann hafa og myndi líklega láta henda honum út ef hann væri nógu vitlaus til að láta sjá sig.

Get ekki ímyndað mér annað en að hann sé upptekinn þessa dagana við að prómótera nýjustu mynd sína þar sem hann leikur Sean Penn í tætlur. Hann má nefnilega eiga það sem hann á, og hann er helvíti góður leikari eins og ég hef sagt frá upphafi.

Ken og Jude eru einfaldlega ekki sami maðurinn eins og ég hef ítrekað tekið fram. Ég hef ekki svo mikið sem talað við Jude Law síðan við hættum saman í fyrrasumar og það stendur ekki til að endurnýja kynni mín við hann.

Hann er bara.. of ruglaður fyrir minn smekk.

Ken er Jude reyndar málkunnugur enda eru þeir samlandar og eiga til að hanga með sama fólkinu. Það, að ég skuli hafa líkt þeim saman útlitslega hérna á síðunni er einkahúmor þar sem lagið "Hey Jude" er lagið okkar Ken, eiginlega fyrir kaldhæðni örlaganna. Allir vita að Jude Law er skírður í höfuðið á því annars ágæta lagi. Þeir sem vissu það ekki fyrir, vita það þá núna.

Þessir tveir menn eru ekki líkir í útliti.

Ég var að tala við Ken síðast í kvöld og hann ætlar auðvitað að gera hlé á alþjóðlegri hryðjuverkastarfsemi sinni og koma í partíið mitt. Meina.. mér fyndist verulega óeðlilegt ef maðurinn sem er búinn að vera að refsa mér sundur og saman undanfarna mánuði kæmi ekki í afmælið mitt og ég myndi jafnvel sjá ástæðu til að slíta sambandinu fyrir þær sakir.

Ástæðan fyrir því að ég hef ekki birt myndir af Ken á vefnum eins og hann lítur raunverulega út er að hann er eftirlýstur í 28 löndum fyrir glæpi bæði gegn mannkyninu og litlum nagdýrum. Staðreynd sem setur oft strik í hans ferðaplön. Ég neyðist til að sýna þessu skilning hvað varðar myndbirtingar. Blasir við.

Uppátækið sem mér datt í hug í dag er háð því að ég finni fyrirtæki sem getur gert þetta in time. Fékk bara leyfi frá Sólon fyrir þessu í dag.

Ef það klikkar skal ég bæta upp fyrir það með því að syngja fyrir Alan. Ég lofa.

Þetta er loforð sem ég mun reyna til hins ítrasta að þurfa ekki að standa við - samt hef ég ágætis söngrödd og held vel lagi. Ég er bara ekkert spennt fyrir að syngja á almannafæri.

Það sem ég kallaði "nothing short of insane" hér í færslunni á undan er hinsvegar eitthvað sem ég reikna ekki með að fá vilyrði fyrir. Því miður. Það hafði ekkert með leikarann Jude Law að gera. Það sem var á milli okkar Jude er einfaldlega búið. Hann verður að skilja það maðurinn.


| anna | 23:05 |
comments

Glæpi gegn nagdýrum? Skepna! melodramatic

Nr. 1 | posted by: Kalli | 29.09.2006 | 11:18:27 | [+] |

Ég veit love

Nr. 2 | posted by: anna | 29.09.2006 | 11:42:10 | [+] |

Djö... spennandi colgate

Nr. 3 | posted by: Sigga | 29.09.2006 | 12:47:18 | [+] |


recent ravings
recent comments
monthly archive

links
blogs
links - web