www.anna.is
ravings of a lunatic
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings song movie jokes cv guestbook
Before - and after
Þriðjudagur, 26. september 2006

Ég var búin að lofa að birta before and after myndir af skónum - og ég laug. Þeir heita víst gylltir, þó mér finnst þeir hlandgulir. Einhver litblinda eða eitthvað.

Þetta eru skórnir eins og þeir voru þegar ég keypti þá í morgun.

shoebefore.jpg

Þetta eru skórnir eftir að ég málaði þá hvíta og setti smá silfurlitað duft ofaní.

skorafter.jpg

angelshoes.jpgÉg vissi það ekki þá, en þegar ég málaði skóna hvíta varð loðni parturinn eiginlega húðlitur, þetta sést aðeins á stóru myndinni. Átti ekki alveg von á því en útkoman.. ég gæti satt að segja ekki verið ánægðari. Þetta eru lang flottustu skór sem ég hef skemmt á ævinni og einnig þeir fyrstu.

Fékk nefnilega lánaða hvíta skó í gær, snjóhvíta, og þeir sökka. Ekki fallegt að vera í svona kókaínhvítum skóm - nema kannski innanundir brúðarkjól. Þeir eru nefnilega sjálflýsandi.

Þessir sem ég var að skemma/laga eru hinsvegar æðislegir því þeir eru ekki alveg hvítir og svo eru þeir munstraðir líka. Eða.. loðnir. Þetta getur samt varla kallast loðið lengur, meira.. kleprað. hehehe

Auka bónus er að þetta eru svo þægilegir að þeir munu varla krefjast þess að ég gangi þá til. Sem er alltaf gott þegar kemur að skóm.

Ég er reyndar ennþá að pæla í að spreyja hælinn silfraðann eða hvítann. Held að það gæti komið soldið vel út.


| anna | 18:29 |
comments

Hvítt vélalakk?

Nr. 1 | posted by: AlanHudson | 26.09.2006 | 19:19:22 | [+] |

Hrikalega flott! Ég hef oft skemmt skó, en aldrei með góðum árangri embarassed þeir hafa kannski verið hvítir í byrjun, en eftir að ég hef þjösnast á þeim í eitt skipti eða svo flagnað eða upprunaliturinn gægst fram.

Nr. 2 | posted by: Sigga | 26.09.2006 | 19:59:44 | [+] |

Nei, hvítt hobbylakk og silfurduft smile

Þessir þurfa bara að virka í þetta eina skipti wink

Nr. 3 | posted by: anna | 26.09.2006 | 21:09:40 | [+] |

Æi Anna! er gull þá hlandgult?

En skórnir eru flottir, þú ert snillingur.

Nr. 4 | posted by: Fríða | 26.09.2006 | 21:13:37 | [+] |

Nennirðu að laga fínu rauðu rússskinnsstrigaskóna mína? chococat laughing

Nr. 5 | posted by: Kalli | 26.09.2006 | 21:44:05 | [+] |

takk Fríða!

hehehe Kalli.. og hvernig á ég að gera það? toungue

Nr. 6 | posted by: anna | 26.09.2006 | 21:54:54 | [+] |

Anna, ertu að djóka??? ef þessir skór eru þægilegir, þá prumpar Dorrit hátt og snjallt í fínum veislum what

Nr. 7 | posted by: baun | 26.09.2006 | 22:17:35 | [+] |

Bara... ná burtu blett sour

Ekki bulla baun, það vita allir að konur prumpa ekki. Er Dorrit ekki örugglega kona?

Nr. 8 | posted by: Kalli | 26.09.2006 | 22:22:00 | [+] |

Ég náði þessu nú ekki með Dorrit en já, þeir eru þægilegir. Ég hef aldrei getað gengið um á einhverjum tveggja sentimeters hælum, þá slaga ég um eins og róni. Það er ekki fyrr en við erum komin uppí 8 cm + sem ég næ balance.

Svo þarf maður líka ekki að burðast um með tösku og piparúða þegar maður hefur svona morðvopn á fótunum.

MÚOHOHOHOHOHOHOHOHOHO

Nr. 9 | posted by: anna | 26.09.2006 | 22:22:37 | [+] |

Já akkúrat! Auðvitað náði ég ekki þessari tengingu með Dorrit af því ég veit að konur prumpa ekki, svo þetta dæmi gekk engan vegin upp! cool

Nr. 10 | posted by: anna | 26.09.2006 | 22:23:52 | [+] |

Þið munið líka hvað baunin er fótlaga í sér...

Nr. 11 | posted by: Gestur | 26.09.2006 | 22:51:19 | [+] |

True.. smile

Nr. 12 | posted by: anna | 26.09.2006 | 22:59:31 | [+] |

I feel your love toungue

Nr. 13 | posted by: baun | 27.09.2006 | 8:20:18 | [+] |

Alveg sammála þér með það að aðgerðin hefur tekist afar vel og skórnir eru flottir..
en kommon....Þægilegir skór!!!
Hvílíkur hæll!

Nr. 14 | posted by: LangiSleði | 27.09.2006 | 8:51:23 | [+] |

Það er hællinn sem gerir skóna m.a. svona flotta wink

Nr. 15 | posted by: anna | 27.09.2006 | 9:15:27 | [+] |

flottir, já

þægilegir, no way!

Nr. 16 | posted by: baun | 27.09.2006 | 9:50:02 | [+] |

Actually.. þá á ég fjallaskó sem mér finnst alveg ógeðslega óþægilegir - og myndi frekar vilja dansa á þessum hælum. Af hverju? Jú.. mér finnst það þægilegra. cool

Nr. 17 | posted by: anna | 27.09.2006 | 10:10:15 | [+] |

Það er ljóst að ekki myndi ég treysta mér í þessa skó. Hvað þá ganga á þeim. Fjallgönguskór frekar.

En, vá, hvað þeir passa á þig.

Nr. 18 | posted by: igor | 27.09.2006 | 22:18:06 | [+] |
post a comment


Muna upplýsingar?












smilie winky colgate happy boogie toungue wahahahaha

angel embarassed doubt silent sad guilty shy sour

hmmm evil gnasher sick drunk what cool wave

weepy melodramatic nerd clown chococat nightmare pirate








Tell me, yes or no.








recent ravings
recent comments
monthly archive

links
blogs
links - web