Mánudagur, 11. september 2006
Ég byrjaði daginn í Hjartavernd þar sem tekið var hjartalínurit og blóðprufa.
Er víst með mjög fínan blóðþrýsting. Frekar lágan, sem er gott fyrir hjartað. Gæti trúað að það minnki líkur á heilablóðfalli líka. Ekki að ég hafi haft rænu á að spyrja að því.
Þessi tafla er stolin af doktor.is og
þar er hægt að reikna út bmi gildið.
| Aldur |
Vannæring
(auka þarf þyngdina) |
Heilbrigði |
Ofeldi
(aukin dánartíðni) |
Offita
(verulega aukin dánartíðni) |
| Yfir 35 ára |
BMI undir 19 |
BMI: 19 - 26
|
BMI: 27 - 30
|
BMI yfir 30 |
| 18-34 ára |
BMI undir 19 |
BMI: 19 - 24
|
BMI: 25 - 30
|
BMI yfir 30 |
Ég er með 20,7 í BMI gildi sem er eðlilegt og telst heilbrigt - samt talar fólk um að ég sé of grönn og sumir hafa áhyggjur af því að ég sé vannærð. Ég er síétandi, bara ekki mikið í einu og það sem ég borða er ekki mjög fitandi.
Minn nánasti núlifandi ættingi sagði við mig í dag að hann veit alveg hvernig hann vill vera í laginu og honum er slétt sama um hvað öðrum finnst um það. Ég hef tekið upp þessa afstöðu.
Auk þess er ég eiginlega akkúrat eins og ég vil vera.
Til að halda uppá þessa frábæru útkomu í heilbrigði hef ég keypt mér tvær Bacardi flöskur, kippu af kók, carton af Camel lights og þrjá snakkpoka.
Hvað ég ætla að gera við þessa hluti er óljóst.