Laugardagur, 09. september 2006
Ég fór aftur í ræktina í morgun. Það er náttúrlega búið að breyta öllu þarna inni, þ.e. staðsetja tækin annarstaðar og það tók mig heillangan tíma að finna rassatónerinn og þegar ég fann vélina var einkaþjálfari að láta viðskiptavin sinn nota hana - bráðum. Hann var samt svo góður að leyfa mér að nota hana fyrst, enda sá hann sjálfsagt að ég er aumingi sem myndi ekki endast nema í þrjár mínútur að æfa rassinn.
Það var náttúrlega alveg rétt hjá honum. Eða næstum því, ég var þarna í fimm mín.
Eða sjö.
Nema.. svo kom hann til mín þar sem ég lá þarna með rassinn útí loftið og að lyfta lóðunum með fótunum og gaf mér tip um hvernig ég gæti náð betri árangri. Honum finnst rassinn á mér greinilega hafa potential.
Nei, en grínlaust þá fannst mér þetta ferlega sætt af honum.
Mér hefur verið sagt að Laugar séu heitasti pick-up staðurinn í dag. Það má vel vera en so far er þessi einkaþjálfari fyrsta manneskjan sem ég þekki ekki persónulega sem yrðir á mig þarna inni. Ekki kann ég að pikka upp menn á líkamsræktarstöðvum. Síðasta pikkup línan sem ég notaði var "áttu eld" og það var seint á síðustu öld. Sú lína gæti reyndar alveg virkað þarna inni. Viðkomandi myndi allavega pottþétt vita að það byggi eitthvað annað undir, ef hann hefur starfandi heila.
Nema ef ég er búin að stinga mig á.. einhverju og þarf að brenna fyrir æð.