www.anna.is
ravings of a lunatic
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings of a lunatic movie hall of fame ferilskrá
Part III
Mánudagur, 04. september 2006

Við matarborðið á föstudeginum hafði ég sagt sessunautum mínum að draumaprinsinn minn er illmenni. Svona aðal vondurinn eins og Lex Luthor - nema bara flottari. Einhver sem stefnir á heimsyfirráð og hefur bara einn veikleika: mig.

Ég hafði gaman að viðbrögðum viðmælenda minna. Þegar ég segi fólki þetta ætlast ég til þess að það átti sig á því að ég er að grínast. Ég hélt áfram og sagði þeim að maður sem þessi, maður sem býr yfir hvers kyns framandi illsku, - þannig maður - með konu eins og mig sér við hlið, mun sannarlega ná heimsyfirráðum.

Blasir við.

Ken sat mér á hægri hönd og sagði ekki eitt aukatekið orð, brosti bara. Maðurinn sem sat á móti mér hallaði sér hinsvegar fram á borðið og sagði að þetta væri mjög áhugavert og að hann hefði aldrei hitt konu eins og mig.

Duh.. auðvitað ekki. Það er bara til ein anna.is - í heiminum.

It's a fact.

Ég horfði því næst ástúðlega á Ken og sagði að þar sem svona alvöru kick ass illmenni væru ekki til í alvörunni, ekki svona vondukallar með secret lair og henchmen og herbergi sem breyttust í stjórnstöðvar og þannig, þá væri ég fullkomlega sátt við að hafa mann eins og Ken. Hinir fóru að hlæja en Ken brosti bara áfram. Held að hann sé hættur að taka mark á mér - sem þýðir að þetta gæti orðið mjög farsælt samband uppað vissu marki.

Ég vaknaði seint á laugardaginn með dúndrandi höfuðverk. Fór í heitt bað og leið töluvert mikið betur á eftir. Inná baði fann ég always MAXI dömubindi og tampax í tonnavís svo ég vissi að dagurinn yrði bærilegur. Fann Ken hinsvegar niðri í bókaherbergi og hann fór með mig í út í gamalt fjárhús sem búið var að breyta í rosa spa með lítilli sundlaug og heitum potti. Þar vorum við nudduð þangað til ég var farin að slefa úr nautn. Ég spurði Ken útí hvíthærða manninn frá kvöldinu áður en Ken eyddi því. Þegar ég var að klæða mig eftir nuddið tók ég hinsvegar eftir því að ég var með stunguför á báðum handleggjunum. Það er ekkert sem fær mann til að gleyma þannig smáatriðum eins og rosalega góður matur.

Við vöknuðum snemma á sunnudeginum og fórum í gönguferð þarna á svæðinu. Rétt hjá hótelinu fundum við nokkur mannlaus hús og þar hittum við tvo hrafna sem ég náði myndum af á vídeó. Ofboðslega mikil náttúrufegurð þarna og veðrið var alveg yndislegt. Þegar við komum aftur á hótelið spurði ég Ken hvort ég kæmist á netið. Hann náði í laptop fyrir mig en stóð yfir mér á meðan ég setti myndina inn á netið. Þetta var hálf óþægilegt satt að segja og þegar ég var búin teygði hann sig yfir öxlina á mér, lokaði vélinni og snéri mér í stólnum að sér. Hann settist á hækjur sér, tók í báðar hendurnar á mér og horfði lengi í augun á mér áður en hann sagði mér að það væri sérstök ástæða fyrir því að hann fór með mig þarna útí rassgat.

Ég fann hvernig hjartað í mér byrjaði að hamast. Hvað var Ken að fara að segja mér?

Nú má ekki gleyma þeirri staðreynd að ég er kona og sem slík reyni ég venjulega að..

a) ráða í ALLT sem karlmenn gera og segja
b) hef sjaldnast rétt fyrir mér.
c) Held samt áfram að reyna að skilja þessa dýrategund.
d) Orðið þráhyggja kemur í hugann.

Á split second datt mér í hug eftirfarandi:

a) Hann var að fara að biðja mín.
b) Hann er giftur og vill ekki fara frá konunni sinni.
c) Hann ætlar að setja á laggirnar lúxus hótel þarna útí rassgati og vill að ég flytji með honum þangað (sem ég mun ekki gera)
d) Hann er hommi
e) Hann er með ólæknandi sjúkdóm
f) Hann...

Ég var rétt að byrja að velta fyrir mér möguleikunum á því sem gæti verið að gerast þegar það gerðist - og þó ég hefði fengið nokkra mannsaldra til að velta fyrir mér hvað Ken var að fara að segja mér.. þá hefði ég ekki getað uppá því.

Ekki séns.


| anna | 22:09 |
comments

Thú ert snillingur anna.is. Kemur part IV fyrir midnaetti, eda er óhaett ad fara ad sofa?

Nr. 1 | posted by: Atviksorda-Anna | 4.09.2006 | 22:20:31 | [+] |

btw ég er ekki á forskólaaldri samt, bara threytt laughing

Nr. 2 | posted by: Atviksorda-Anna | 4.09.2006 | 22:22:03 | [+] |

hahahahha á forskólaaldri laughing

Ég er að skrifa part iv, en mun líklega ekkert birta fyrr en á morgun. Ég get eiginlega lofað þér því. wink

Nr. 3 | posted by: anna | 4.09.2006 | 22:25:11 | [+] |

Gú natta thá, nú er ég haett angel

Nr. 4 | posted by: Atviksorda-Anna | 4.09.2006 | 23:02:51 | [+] |

Elskan, hann hefði aldrei sagt þér neitt af þessu með því að setjast á hækjur sér og horfa í augun á þér. Svona nokkru koma menn að út um annað munnvikið undir stýri og gæta þess að skilaboðin séu nógu loðin til að þér endist ekki bíltúrinn til að flá köttinn. Ef þeir á annað borð segja frá því. Oftast þarftu að komast að því sjálf, ekki skrýtið þótt við reynum að lesa í orð þeirra og athafnir.

Líklega hefur hann bara verið að reyna að sjá hvort væri eitthvað hæft í þessari túrskýringu en kunnað sig nógu vel til að góna aðeins í augun á þér áður en hann kom sér að efninu.

Nr. 5 | posted by: Eva | 5.09.2006 | 8:25:47 | [+] |
post a comment


Muna upplýsingar?












smilie winky colgate happy boogie toungue wahahahaha

angel embarassed doubt silent sad guilty shy sour

hmmm evil gnasher sick drunk what cool wave

weepy melodramatic nerd clown chococat nightmare pirate








Tell me, yes or no.








recent ravings
recent comments
monthly archive

links
blogs
links - web