www.anna.is
ravings of a lunatic
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings of a lunatic movie hall of fame ferilskrá
Part II
Mánudagur, 04. september 2006

Ken vakti mig snemma á föstudagsmorguninn. Á bílaplaninu var svartur Hummer.

Held að ég hafi látið hafa eftir mér, oftar en einu sinni, að mér finnst Hummer glataðir bílar, well... ég verð víst að taka það til baka allt saman.

Ég settist uppí bílinn og sagði Ken að mér fyndist nú ekkert spes að sitja í þessum sætum. Hann sagði mér að fikta í stillingunum sem eru hurðarmegin á sætinu. Holy motherfucking shit, það er hægt að stilla þetta útí hið óendanlega, grínlaust. Þegar ég var búin að stilla sætið langaði mig ekki að standa upp úr því aftur. Sure.. þetta eru ekki bílar sem þú ert að taka einhverjar handbremsubeygjur á, en við vorum ekki að fara að gera neitt þannig hvort sem er. Ég vissi reyndar ekkert hvert við vorum að fara en Ken virtist hafa allt á hreinu - eða staðsetningartækið í bílnum hafði allt á hreinu. Við keyrðum útúr bænum.

Eftir fimm klukkutíma keyrslu vorum við stödd fyrir framan lítið sveitahótel. Ég veit ekki nákvæmlega hvar við vorum á landinu. Ken lagði bílnum fyrir framan rauðan dregil sem lagður hafði verið yfir tröppurnar og útá plan. Virðulegur maður í butler galla opnaði fyrir mig hurðina og hélt í höndina á mér þegar ég steig útúr bílnum. Í sama mund fékk ég svakalegan verk í kviðinn þannig að ég hálf datt útúr bílnum en virðulegi maðurinn í mörgæsafötunum greip mig. Sætt af honum.

Þegar við komum inn mættu okkur.. vá eitthvað um þrjátíu manns. Ég fékk strax svona.. bad feeling, veit ekki af hverju og þegar ég var komin uppá herbergi áttaði ég mig á því að ég var byrjuð á blæðingum. Oh great.

Samt.. bólur vs blæðingar. Blæðingar vs bólur. Má ég þá biðja um blæðingar. Þarna vissi ég auðvitað ekki að þetta átti eftir að verða blóðbað. Ég hringdi niður í lobbí og fékk dömubindi send upp - ultra thin eitthvað. Það eina sem var til. Fine.

Þegar ég kom niður kynnti Ken mig fyrir alveg rosalega mörgum, ég náði ekki helmingnum af nöfnunum. Um kvöldið borðaði ég einn þann besta fiskrétt sem ég hef á ævinni smakkað og í eftirrétt var súkkulaðikaka sem bráðnaði uppí manni.

Mér fannst þetta allt saman hálf unreal. Ég var á Íslandi, á íslensku hóteli en það var ekki einn Íslendingur á hótelinu. Síðustu þrjátíu kílómetrana að hótelinu hafði ég ekki séð einn bíl, ekki eitt hús, ekki eitt umferðarskilti, ekki einu sinni eina fokking rollu og það var ekkert signal á gsm símanum mínum. Síðustu fimm kílómetrana að hótelinu höfðum við keyrt eftir einhverju sem gat tæplega kallast vegur og ég fór að skilja af hverju við vorum á Hummer. Hefðum aldrei komist þetta nema á svona skriðdreka. Fannst líka skrítið að allt þetta fólk virtist bera óttablandna virðingu fyrir Ken. Þar fyrir utan var ég að drepast úr verkjum og leið frekar illa. Þessi ultra thin dömubindi voru ekki að virka því það leit út fyrir að mér væri að blæða út, ég er ekki að ýkja. Eftir matinn færðum við okkur yfir í stórt bókasafn og þar leið ég útaf.

Ég rankaði við mér í rúmi uppi á herbergi. Hvíthærður maður, sem ég hafði séð við matarborðið fyrr um kvöldið, stóð yfir mér og brosti góðlega. Ken sat við rúmið og hélt í höndina á mér. Hvíthærði maðurinn sagði mér að ég ætti að taka því rólega um kvöldið, svo sprautaði hann einhverju í handlegginn á mér. Mér leið eins og heilinn á mér væri loðinn, fann að líkaminn slaknaði allur en Ken hélt ennþá fast utanum höndina á mér. Get svo svarið að ég heyrði í þyrlu fyrir utan áður en ég datt út.


| anna | 14:32 |
comments

úúú... maður þorir nú varla að lesa svona.

Nr. 1 | posted by: Fríða | 4.09.2006 | 21:11:47 | [+] |
post a comment


Muna upplýsingar?












smilie winky colgate happy boogie toungue wahahahaha

angel embarassed doubt silent sad guilty shy sour

hmmm evil gnasher sick drunk what cool wave

weepy melodramatic nerd clown chococat nightmare pirate








Tell me, yes or no.








recent ravings
recent comments
monthly archive

links
blogs
links - web