Ókey..
Fimmtudagur, 28. september 2006
Ég viðurkenni að ég hef ímyndunarafl sem jaðrar við geðveiki en það er ekkert eins gaman og þegar fólk tekur vel í hugmyndirnar mínar og gefur grænt ljós á hluti sem mig langar að gera. Búin að fá samþykki á aðra af þeim hugmyndum sem ég fékk í dag, sem er góð þó ég segi sjálf frá, hin er náttúrlega nothing short of insane.
Ég er að vona að þeir aðilar sem þurfa að koma við sögu séu akkúrat það. Þeir eru að hugsa málið. Ég hef krosslagða fingur. Fæ svar á morgun.
Oh ég vona svo heitt að ég fái já.
Það yrði eiginlega.. snilld í sinni tærustu mynd.
Varð náttúrlega eitthvað ófyrirséð að gerast á þessu grímuballi. Segir sig sjálft.