Miðvikudagur, 13. september 2006
í gamla daga voru menn að spöklera í hvernig geislar sólarinnar kæmust til jarðarinnar og þessir menn ákváðu að geislarnir færu í gegnum óskilgreint efni sem kallast aether.
nú þykjast menn geta sannað að geimurinn er mest megnis tómur nema þegar þú ert komin niður í stærð sem er töluvert minni en atómið, þá kemur óreiðan í ljós.
Datt þetta í hug þegar ég sá hárið á mér í speglinum áðan. Held að ég sé búin að kæla baðið nóg og gott ef það er ekki runnið af mér. Best að hita upp í kolunum.