www.anna.is
ravings of a lunatic
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings of a lunatic movie hall of fame ferilskrá
Hvítir skór
Föstudagur, 15. september 2006

Í gærkvöldi flippaði ég út þegar ég heyrði Family Guy raddirnar inní stofu og sagði börnunum að ég gæti þetta ekki lengur. Nú yrði slökkt á sjónvarpinu - í tvo daga.

"You're evil", sagði frumburðurinn.
"Hvað eigum við þá að gera?", spurði einkasonurinn.

"Þið getið talað saman - eða við mig", svaraði ég.

Ég hafði ákveðið að sauma blessaðan englakjólinn minn og gerði það. Á reyndar eftir að setja rennilásinn í og klára faldinn en var ótrúlega snögg að þessu. Einkasonurinn fylgdist með og hafði þungar áhyggjur af því að ég væri að sauma of hratt og myndi bræða úr vélinni. Það fór ekki svo.

Mig vantar hinsvegar skó, er búin að þræða skóbúðirnar helgi eftir helgi og finn ekkert.

Hvar finn ég fallega hvíta skó?


| anna | 9:34 |
comments

Gleymdu þessu !
Brúðkaupsseasonið er búið.... chococat

Nr. 1 | posted by: eddið | 15.09.2006 | 12:22:20 | [+] |

Leyfirðu börnunum þínum að horfa á Family Guy? Ef ég væri foreldri myndi ég aldrei leyfa börnunum mínum að horfa á Family Guy eða Happy Tree Friends (www.happytreefriends.com).

Sennilega öruggast að hafa þau læst í herberginu sínu, án internet sambands smile

Var einhver spjall-öryggisráðgjafi hérna í Danmörku handtekinn fyrir að lokka til sín ungar stelpur.... maður er hvergi óhultur lengur melodramatic

Nr. 2 | posted by: Andri | 15.09.2006 | 13:28:52 | [+] |

Mér finnst nú happytreefriends töluvert mikið annað mál en family guy. Family guy er rökrétt framhald af simpsons - hitt er splatter.

Ég er alveg á móti því að læsa börnin inní herberginu sínu, miklu betra að læsa þau niður í geymslu.

Nr. 3 | posted by: anna | 15.09.2006 | 13:39:36 | [+] |

Svörtu bomsurnar og tipp-ex ?

Happy Tree Friends rokka laughing

Nr. 4 | posted by: Þór | 15.09.2006 | 14:16:30 | [+] |

Ókei, Happy Tree Friends rokkuðu... einusinni.

Núna fæ ég bara Navy Seals auglýsingar.. Þær sökka feitar ömmur drunk

Nr. 5 | posted by: Þór | 15.09.2006 | 14:21:15 | [+] |

Ég á eitt par - frekar háir - veit ekki hversu vel þú myndir meika þá........ en þeir standa þér til boða wink

Nr. 6 | posted by: Lindablinda | 15.09.2006 | 18:30:48 | [+] |

Veistu ekki að það er bannað að vera í hvítu eftir Labor day? what

Nr. 7 | posted by: farfuglinn | 15.09.2006 | 18:53:33 | [+] |

Labour day? Það er allt í lagi. Svo langt í 1. maí.

Og börn þurfa að sjá Family Guy. Skylduáhorf sem ætti að koma í stað „trúarbragðafræðslu“ í skólum.

Nr. 8 | posted by: Kalli | 16.09.2006 | 0:45:12 | [+] |

Vissirðu ekki Kalli að til þess að draga úr alþjóðlegri samstöðu verkalýðsins þá endurskilgreindu Bandaríkjamenn verkalýðsdaginn og höfðu hann á haustin?

Nr. 9 | posted by: Elías Halldór | 16.09.2006 | 10:52:25 | [+] |

Og heimurinn ætti að taka upp ameríska verkalýðsdaginn. Miklu sniðugra kerfi. Alltaf á mánudegi. Alltaf þriggja daga helgi. Engin hætta á að það lendi á helgi.

Hverjar sem tilætlanir samsæringamenn Ameríkustjórnvalda hafa verið, þá var útkoman mun sniðugri.

Sumt gera kanar rétt, t.d. Buffy.

Nr. 10 | posted by: Bastarður Víkinga | 16.09.2006 | 12:37:41 | [+] |

Ekki fá þér hvíta skó... vertu frekar í rauðu skónum þínum, það er miklu miklu meira kúl colgate

hey eða gull eða silfur, það gengur líka.

Nr. 11 | posted by: Elín | 16.09.2006 | 22:58:17 | [+] |
post a comment


Muna upplýsingar?












smilie winky colgate happy boogie toungue wahahahaha

angel embarassed doubt silent sad guilty shy sour

hmmm evil gnasher sick drunk what cool wave

weepy melodramatic nerd clown chococat nightmare pirate








Tell me, yes or no.








recent ravings
recent comments
monthly archive

links
blogs
links - web