www.anna.is
ravings of a lunatic
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings of a lunatic movie hall of fame ferilskrá
Heilbrigð sál í hraustum líkama
Mánudagur, 18. september 2006

Líklega verður það mitt helvíti. Ég mun lifa of lengi.

Ég var sumsé uppí Hjartavernd að fá niðurstöður úr mælingum og blóðprufum. Ég gæti eiginlega ekki verið heilbrigðari. Líkurnar á kransæðasjúkdómi næstu tíu árin eru 0.1% og þar sem engin fær 0.0% líkur þá hlýt ég að vera sátt.

Vonda kólesterólið er ekki í miklu magni í æðunum og S-Þríglýseríðar, sem er efni sem bendir til offitutilhneigingu, var langt undir hættumörkum. Einnig er ég með einstaklega lágan blóðþrýsting, efri mörk eru 108 og neðri 62. Ég er greinilega ekkert að stressa mig á hlutunum - sem er rétt. Oftast.

Ég er líklega ekki nógu vel gefin til að fara ein að sækja svona niðurstöður því ég spyr svo asnalegra spurninga, eins og "er hægt að vera með of lítinn blóðþrýsting?" Læknirinn hummaði aðeins og sagði jú.. en það er oftast bara vandamál hjá fólki sem er mjög veikt og stendur ekki í lappirnar. Ég fór að hlæja. Þar sem ég stend alveg í lappirnar er ég líklega ekki í stórhættu. Ég fæ svona aðsvifstilfinningu stundum ef ég stend snöggt upp - sem gerist nánast aldrei því ég er svo róleg - en mér skilst að það sé bara eðlilegt og hið besta mál. Ég reyni að sitja sem mest bara.

Ég hef hinsvegar akkúrat lægsta "leyfilega" gildið í blóðmagni. Ég spurði hvort það væri slæmt og hann sagði.. jja.. nei alls ekki. Þú ert nú ekki mjög stór eða feit þannig að þetta er örugglega bara mjög normalt fyrir þig. Þá veit ég það. Staðfesting frá hlutlausum þriðja aðila: "ég er ekki stór og feit".

Ég er innan "æskilegra gilda" í öllum málaflokkum, langt innan hættumarka með allt ógeðið og með þyngdarstuðul 20,4 sem telst víst mjög gott þar sem hann á að vera lægri en 25.

Ég er með gott hjarta. Vissi það nú alveg.

Þegar ég var á leiðinni aftur í vinnuna varð mér hugsað til þess að á leiðinni niður í Hjartavernd keyrði í veg fyrir mig kona og ég rétt náði að nauðhemla. Hefði verið skondið að deyja í bílslysi á leiðinni að sækja gögn sem lofa nokkuð góðum lífslíkum næstu tíu árin. Í alvöru, ég hefði kunnað að meta húmorinn í því.

Innst inni er ég mjög þakklát. Finnst ég varla eiga svona niðurstöður skilið.


| anna | 16:35 |
comments

gott að heyra að þú rúllaðir upp öllum þessum prófumsmile

Nr. 1 | posted by: baun | 18.09.2006 | 17:01:41 | [+] |

Og lærðir ekki einu sinni fyrir þau happy

Nr. 2 | posted by: Kalli | 18.09.2006 | 17:47:27 | [+] |

Uss það er ekkert mál að falla, þeir eru alltaf með sjúkrapróf.

Nr. 3 | posted by: AlanHudson | 18.09.2006 | 18:39:17 | [+] |

Þetta komment læknisins er nú betra en eftirfarandi:

Sjúklingur: ég vill annað álit!

Læknir: ....þú ert líka ljótur!

Nr. 4 | posted by: Svenni | 21.09.2006 | 23:56:20 | [+] |
post a comment


Muna upplýsingar?












smilie winky colgate happy boogie toungue wahahahaha

angel embarassed doubt silent sad guilty shy sour

hmmm evil gnasher sick drunk what cool wave

weepy melodramatic nerd clown chococat nightmare pirate








Tell me, yes or no.








recent ravings
recent comments
monthly archive

links
blogs
links - web