www.anna.is
ravings of a lunatic
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings of a lunatic movie hall of fame ferilskrá
Finally!
Föstudagur, 08. september 2006

Var að koma heim úr líkamsrækt áðan. Í fyrsta skiptið síðan ég fór á þessi ógeðslegu lyf.

Ég er náttúrlega orðin líkamlegur aumingi. Móð og másandi eftir þrjár mínútur á skíðavélinni og hún flassaði í sífellu: "please slow down to reduce your heart rate". Hefði það nú ekki verið klassískt ef ég hefði bara drepist þarna?

Verð í tvo mánuði að komast í form.

Eða einn.

Fer eftir því hvað ég er dugleg að mæta.

Það vinnur með mér að ég fer þarna til að fá endorfín kikk. Ég þarf endorfín til að vega upp á móti því að ég fæ ekkert heróín sem maður fær þegar maður er ástfangin/geðfatlaður.

Meina.. give me a break! Ég þarf eitthvað fíkniefni!


| anna | 21:03 |
comments

Keep it up - þetta er svaka fljótt að koma! Svo er endorfínið betra en ekkert eins og þú bendir wave

Nr. 1 | posted by: Simmi | 9.09.2006 | 1:06:52 | [+] |

ooohhh, ég vildi að ég fyndi fyrir þessu fræga endorfínkikki. Eina sem ég finn er að mig hitar smá um skrokkinn, ekki nóg til að þola kvölina og pínuna til að vinna fyrir því. No where close... weepy

Nr. 2 | posted by: hildigunnur | 9.09.2006 | 1:18:46 | [+] |

hmm, átti þetta ekki að vera: Nowhere?

Nr. 3 | posted by: hildigunnur | 9.09.2006 | 1:19:33 | [+] |

Anna, þú verður bara að fara að stunda göngur með góðu fólki...(rétt, Simmi?)

ekkert sem jafnast á við fjallgöngu til að pumpa gleði í æðarnar smile

Nr. 4 | posted by: baun | 9.09.2006 | 12:07:14 | [+] |

Ég á engar græjur í fjallgöngur, á hinsvegar allt í hitt wink

Hildigunnur. Þú þarft bara að vera duglegri, þetta kemur. smile

Nr. 5 | posted by: anna | 9.09.2006 | 13:35:26 | [+] |
post a comment


Muna upplýsingar?












smilie winky colgate happy boogie toungue wahahahaha

angel embarassed doubt silent sad guilty shy sour

hmmm evil gnasher sick drunk what cool wave

weepy melodramatic nerd clown chococat nightmare pirate








Tell me, yes or no.








recent ravings
recent comments
monthly archive

links
blogs
links - web