Laugardagur, 16. september 2006
Ég vaknaði klukkan níu í morgun og nennti ekki frammúr. Fór aftur að sofa. Ég ætla að fara aftur að sofa þegar ég er búin að skrifa þetta.
Ekkert fleira hefur gerst so far í dag.
--
Vaknaði klukkan níu og byrjaði daginn á að fara í Laugar. Þegar ég kom heim gerði ég þrjár morðtilraunir sem mistókust allar og svo spilaði ég kana við börnin mín.
Eftir hádegi fórum við í Bónus og Mál og Menningu til að kaupa skólatösku fyrir frumburðinn.
Ekkert fleira hefur gerst so far í dag.
--
Vaknaði klukkan tvö með dúndrandi höfuðverk og mitt fyrsta verk var að æla inná baði. Þegar ég kom fram blöstu við mér bjórdósir og öskubakkar í stofunni og ég ákvað að ég myndi mögulega nenna að laga til þarna á morgun. Eða hinn. Ég veit ekki hver var dauður í sófanum en það var einhver.
Hann er allavega farinn núna. Ég fór aftur að sofa og var að vakna. Ætla að horfa á vídeó eða eitthvað.
Ekkert fleira hefur gerst so far í dag.