Borat: Cultural Learnings of America for Make Benefit Glorious Nation of Kazakhstan
Miðvikudagur, 20. september 2006
Ég hef það fyrir satt að þessi mynd sé í betri kantinum fyrir fólk sem er ekki hrætt við að hlæja að femínistum, dvergum, hommum, konum, karlmönnum, gyðingum og öllum hinum minnihlutahópunum sem ég gleymi að minnast á.
Þeir sem hafa ekki nú þegar kynnt sér sýnishornið ættu að gefa sér þrjár mínútur í það og þeim sem finnst það hressandi ættu að skoða official heimasíðu kvikmyndarinnar.
Með flottari heimasíðum sem ég hef séð á Internetinu.
Það er kannski ekkert undarlegt að ráðamenn í landinu Kazakhstan eru ekki alveg jafn hressir og allir hinir því þeir vilja meina að lífið í Kazakhstan sé bara alls ekki eins og Borat heldur fram og ef marka má fjölmiðla lítur út fyrir að þetta sé nú þegar orðið milliríkjaves.
Borat birtir ásakanirnar stjórnvalda Kazakhstan á heimasíðunni og svarar þeim í stuttum myndbút sem hægt er að skoða þarna.
Þessi bíómynd inniheldur ruddalegan húmor, það verður að viðurkennast.
Ég ætla nú samt sem áður að fara á hana í bíó.
Ef heimildir mínar eru réttar verður myndin sýnd í kvikmyndahúsum á Íslandi í byrjun nóvember.