Miðvikudagur, 13. september 2006
Nú er ég búin að koma mér fyrir hérna í baðkarinu, er að byrja að láta renna í það.
Bíðum aðeins, ætla að skrúfa frá krananum.
...
Ahh.. nice. Ég er með lítið kælibox hérna við baðið og þar sem ég hef fjárfest í þessari líka fínu fartölvu ætti þetta að vera vel geranlegt. Ég hef skorðað hilluefni á milli baðbrúnanna sem ég mun nota sem borð FOKK er að gleyma að setja froðu.
....
That was close. Já. Í kæliboxinu er coca cola - þetta eina sanna og hér á baðbrúninni er flaska af bacardi. Ég er líka með þrjá pakka af camel lights og tvo kveikjara. Ég er nefnilega gjörn á að tína kveikjurum.
Takmarkið er að drekka alla flöskuna og blogga reglulega á meðan ég er að því áður en þessi dagur er úti - án þess að drepast og drukkna í baðinu.
Ég mun að sjálfsögðu fara þess á leit að mín verði minnst í sögubókum sem fyrsta baðdrykkjubloggróna Íslands - ef þetta heppnast hjá mér.
Annars er það.. game over.
Skál í baðinu!