www.anna.is
ravings of a lunatic
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings of a lunatic movie hall of fame ferilskrá
Overture Spartacus
Miðvikudagur, 20. september 2006

Ég var að horfa á myndina The Hudsucker Proxy um daginn - eða hlusta öllu heldur. Heyrði ég ekki lagið úr Onedin skipafélaginu og fór að kanna málið. Það gat ekkert verið að lag úr sjónvarpsseríu væri notað sem megin uppistaðan í þessari bíómynd - meikaði ekkert sense to me.

Leitin að laginu bar þó ekki árangur fyrr en í kvöld, en þá var ég reyndar búin að komast að því að Onedin skipafélagslagið heitir í raun Overture og er úr ballettnum Spartacus eftir Aram Khachaturian.

Er að hlusta á annað tveggja laga sem ég fann sem eru útsett af Carter Burwell fyrir myndina The Hudsucker Proxy. Soundtrackið úr myndinni er einungis 30 mínútna langt total en ég ætla samt að kaupa mér það.

Carter Burwell útsetur lögin hans Khachaturian alveg stórkostlega vel.

Prologue og Epilogue

Já og svörin við síðustu tveimur getraunum eru hér og hér (sammála þessi var of létt). Til gamans langar mig að koma því áleiðis að getraunin sem er núna er bíómynd frá árinu 1983.

MÚHOHOHOHOHOHOHO


| anna | 22:07 |
comments

bíddu, ég heyri nú ekki betur en þetta sé Katsi sjálfur ómengaður, Burwell hvað? laughing. Eina sem hann gerir er að klippa lagið í sundur, bara einn einasti tónn sem ég kannast ekki við. Epilogue er náttúrlega ekki til í svítunni, bara seinni hlutinn af prólógnum notaður og það án endis. Myndi bara fjárfesta í góðri útgáfu af hljómsveitarsvítunum ef ég væri þú...

Nr. 1 | posted by: hildigunnur | 20.09.2006 | 23:23:04 | [+] |

Ég veit ekki betur en framleiðsla á Onedin skipafélaginu hafi byrjað um svipað leyti og þú fæddist? Ætlarðu að segja mér að þú munir eftir þessum þáttum? Eða?

Nr. 2 | posted by: Gestur | 21.09.2006 | 8:28:55 | [+] |

Heyrðu Hildigunnur.. veistu um einhverja góða útsetningu sem þú mælir með? Ég er greinilega clueless moron þegar kemur að þessu máli!

Hvað get ég sagt Gestur, ég er bara svo gömul sál angel

Nr. 3 | posted by: anna | 21.09.2006 | 9:07:15 | [+] |

Hm. Gömul sál með tónminni. happy

Nr. 4 | posted by: Gestur | 21.09.2006 | 10:06:36 | [+] |

Ég ætlaði einmitt að fara að segja þetta. Annars hefðirðu bara getað spurt mig um Onedin-lagið.

Ég er núna að leita að þessu á netinu og er í þessum töluðu orðum að hlaða niður nokkrum eintökum.

Nr. 5 | posted by: Elias | 23.09.2006 | 1:22:03 | [+] |

Ég ætlaði einmitt að fara að segja þetta. Annars hefðirðu bara getað spurt mig um Onedin-lagið.

Ég er núna að leita að þessu á netinu og er í þessum töluðu orðum að hlaða niður nokkrum eintökum.

Nr. 6 | posted by: Elias | 23.09.2006 | 1:36:16 | [+] |

Ég ætlaði einmitt að fara að segja þetta. Annars hefðirðu bara getað spurt mig um Onedin-lagið.

Ég er núna að leita að þessu á netinu og er í þessum töluðu orðum að hlaða niður nokkrum eintökum.

Nr. 7 | posted by: Elías | 23.09.2006 | 11:06:08 | [+] |

Klukkan þin er vitlaus, sýnist mér. Þetta er póstað 13:40 þann 23. Eða þurftirðu að samþykkja kommentið?

Nr. 8 | posted by: Elias | 23.09.2006 | 13:40:06 | [+] |

Þessi ætti að vera góð, þessi líka. Þekki reyndar hvoruga útgáfuna en þetta eru góðir flytjendur.

Nr. 9 | posted by: hildigunnur | 26.09.2006 | 22:25:46 | [+] |

Takk fyrir þetta Hildigunnur, þetta fer í næstu pöntun wink

Nr. 10 | posted by: anna | 26.09.2006 | 22:27:09 | [+] |
post a comment


Muna upplýsingar?












smilie winky colgate happy boogie toungue wahahahaha

angel embarassed doubt silent sad guilty shy sour

hmmm evil gnasher sick drunk what cool wave

weepy melodramatic nerd clown chococat nightmare pirate








Tell me, yes or no.








recent ravings
recent comments
monthly archive

links
blogs
links - web