Föstudagur, 29. september 2006
NASA Finds Direct Proof of Dark Matter.
Þann 29. ágúst s.l. var blað brotið í heimssögunni þegar NASA náði í fyrsta skipti gervihnattamynd af tveimur klösum af ósýnilegum sólkerfum þegar þau rákust saman úti í geimnum. Ástæða þess að hægt var að mynda atburðinn er að við áreksturinn gáfu sólkerfin frá sér geisla sem hægt er að mynda, þó sólkerfin sjálf séu ósýnileg.
Þetta sannar tilvist þess sem vísindamenn kalla "dark matter".

Lítið fór fyrir þessum atburði í fjölmiðlum þar sem þennan sama dag varð Anna Helgadóttir, stundum köllum anna.is, þrjátíu og fimm ára og þótti fjölmiðlum það einfaldlega áhugaverðari frétt en einhver sólkerfi sem engin sér.
Eðlilega.
Aðrar tilkynningar:
anna.is óskar eftir karlkyns dverg til leigu. Hann þarf að ansa nafninu Margeir frá klukkan 21 til 23 þann 14. október næstkomandi. Æskilegt er að viðkomandi hafi ekki persónuleika, húmor né skoðanir af neinu tagi og tjái sig með gelti. Áhugasamir sendið umsóknir á anna [at] anna.is.
Ég er tilbúin til að borga allt að fimm hundruð krónur fyrir rétta dverginn.