Laugardagur, 05. ágúst 2006
Ég elska Reykjavík um verslunarmannahelgi. Fór í matarboð í gærkvöldi á hæðina fyrir neðan. Tók gasgrillið með mér og lærði að grilla nan brauð. Ég á eftir að búa til svoleiðis aftur.
Þetta var mjög gott matarboð, góður matur og skemmtilegur félagsskapur. Var samt orðin mjög þreytt í lokin og ég mér líður ennþá.. undarlega.
Mér hefur verið sagt að það taki líkamann ca tvær vikur að "balansera sig" eftir viðvarandi hormónagjöf. Skrítið samt að finna hvað þetta hefur mikið að segja.
Ég er hálf slösuð, finn til en all in all er ég... dead calm. Furðuleg værð yfir mér.
Sef mikið.
Þetta var hárrétt ákvörðun.