Miðvikudagur, 23. ágúst 2006
veistu hvað ég held að maður þurfi að gera til að verða óhamingjusamur?
nei
ekki neitt
það er alveg nóg
--
Í dag fékk ég tilkynningu frá póstinum um að vængirnir mínir væru komnir til landsins.
JIBBÍ!
Annað. Lítill fugl hvíslaði að mér að tveir heitustu mennirnir í fatabransanum séu að fara að opna grímubúningaleigu. Skilst að hún verði búin að opna þegar grímuballið skellur á. Þetta eru reyndar óstaðfestar fréttir en koma frá góðum sors. Meira um þetta þegar ég veit meira.