Föstudagur, 25. ágúst 2006
Ég held að fyrsti klukkutíminn sé verstur. Mig er búið að langa að eyða alveg rosalega mikið af peningum - í tómt rugl - síðan ég ákvað að eyða engum peningum yfir eina helgi.
Fór heim í hádeginu og borðaði vínber og ost, eins og Rómverskur keisari, nema ég var ekki í laki. Þegar ég var búin með ostin og vínberin leit ég í skápana í eldhúsinu og sá strax eftir að hafa farið í þennan leik. Fann ekkert sem mig langaði að borða og ég klikkaði á að versla mér hráefni í boost yfir helgina áður en leikurinn byrjaði.
DOH!
En ég vil ekki tapa leiknum á innan við klukkutíma svo ég fékk mér bara tyggjó og fór að græja galdradúkkur fyrir Nornabúðina. Á leiðinni í vinnuna kviknaði bensínljósið á bílnum og nú verður spennandi að vita hvar ég verð bensínlaus um helgina því ég er boðin í mat á laugardagskvöldið í heimahús sem er staðsett annarstaðar en í mínu póstnúmeri. Ég ætla ekki að kaupa bensín á bílinn.
Ég á hinsvegar nóg af klósettpappír. Var að tékka. Hjúkk alveg.
Í kvöld ætla ég að þrífa íbúðina eins og ég geri alltaf þegar börnin fara til pabba síns yfir helgi og leggja lokahönd á nokkrar galdradúkkur líka. Ég spái því að ég muni poppa í kvöld og kvöldmaturinn verður líklega... egg.
Eða pasta.
Ég sá líka niðursoðin túnfisk þarna.