Föstudagur, 25. ágúst 2006
Ein af reglunum í leiknum er að það má ekki betla. Ég þarf auk þess að gera allskonar þrautir til að vinna mér inn.. stig.. svo ég fái.. að eyða peningum AFTUR EINHVERTÍMA! JÁ!
Höfum það þannig.
Um helgina á ég að þrífa í íbúðinni og finna til pappíra og gera galdradúkkur. Já og sinna eðlilegu viðhaldi á sjálfri mér. Ef ég geri þetta ekki fæ ég aldrei að eyða peningum aftur! Vúhú! Og dey úr hungri!
Ég er svöng. Var eiginlega að vonast til þess að það myndi ekki gerast - óhófleg bjartsýni, veit.
Ég er ekki búin að vera heima nema í rétt rúman klukkutíma og strax búin að losa mig við kassa sem hafa verið hérna mánuðum saman. Já, ég er að reyna að gleyma hvað ég er svöng því mig langar ekki í neitt af því sem ég á til að borða. En hversu svöng er ég þá? Það er nefnilega spurningin. Ef ég bíð aðeins.. þá verður þessi heinz niðursuðudós full af bökuðum baunum örugglega miklu lystugri.
Ætla að þrífa inná baði núna, fæ alveg mökk af stigum fyrir það - örugglega.