Þriðjudagur, 08. ágúst 2006
Stundum þegar norn fær áfall þarf hún að fá hjálp frá annarri norn. Ég er búin að fatta hvað kom fyrir mig, ég fékk áfall á fimmtudaginn. Ég fór á stað þar sem ég hef alltaf verið algjörlega örugg, eins og friggin dömubindi með vængjum - sem er einmitt orðið hluti af mínum reynsluheimi, og ég kom út meidd og sár, hissa og.. í áfalli. Þess vegna er ég búin að vera skrítin undanfarna daga. Það er gott að hitta aðra norn þegar manni líður svona.
Hún minnti mig á að ég er búin að vera með króníska fokking ljótu mánuðum saman. Hún lagði spil fyrir mig og þegar ég sá spilið sem sýnir líðanina mína var það svart. Mér fannst það fallegt. Fallegt munstur í því og mér finnst svart hlýlegt. Það var eins og spilið væri.. mjúkt. Plús.. ég er fallegust í myrkri. Ég hefði auðvitað átt að gerast vampíra í staðinn fyrir að snúa mér að skrifstofustörfum. Svona þreytist ég ekki á að taka rangar lifestyle ákvarðanir og algjörlega úr takt við það sem hjartað mitt segir.
Ég jafna mig auðvitað, geri það alltaf. Nú get ég t.d. talið niður dagana sem ég þarf að vera á þessum lyfjum og þetta hefði líka gerst ef ég hefði t.d. farið til tannlæknis sem ég væri búin að fara til árum saman, manns sem meiðir mig aldrei. Átt von á smávægilegum óþægindum þegar hann deyfir - en hann hefði sleppt deyfingunni og borað beint í taug í ca tíu mínútur.
Krrrrrrrrrrrrrryptonite!
Það er engin maður í spilunum. Bara hugmynd um mann.
Hún dæsti. Þetta gengur ekki svona með þig lengur! Er engin?
Ég hugsaði málið. Hallaði undir flatt.
Nei. Ég þekki engan mann sem lætur mig fá fiðrildi í magann. Ekki einn.
Hún valdi dag og ég er með mjög skýr fyrirmæli. Þennan föstudag á ég að hætta snemma í vinnunni, fara í dekur, vera búin að kaupa mér kjól og fara með henni út.
Við ætlum að skála.
Annars fékk ég tölvupóst í dag frá konu sem vildi ekki gefa upp nafnið sitt. Hún sagði mér hvar ég gæti fundið Margeir og sure enough.. ég fann hann í hádeginu á karókí slash stripp bar. Þegar ég kom þarna inn meikaði nafnleysi konunnar fullkomið sense. Aldrei myndi ég viðurkenna að ég hefði komið inn á svona stað, vissi ekki að svona óhugnaður væri til! Er ekki frá því að ég hafi fengið annað áfall. Sumt vill maður ekki sjá - eins og t.d. Margeir í of litlum g-streng að syngja Dancing Queen.
Nú er ég með þetta fokking lag á heilanum.
Allavega. Það fer vel um hann núna í ruslaskápnum í eldhúsinu og ég er búin að segja honum að það sé algjörlega undir honum komið hversu leku húsnæði og illa lyktandi hann býr í. Þessi skápur er ekki mitt vandamál. Lengur.
Having the time of your life.. úúúúúhúúú see that girl... watch that scene..
dig in the dancing queen..