Hún er þrjátíu'og fimm ár'í dag..
Þriðjudagur, 29. ágúst 2006
Í gærkvöldi fékk ég eftirfarandi sent á msn:
"3 billion human lives ended on August 29th, 1997. The survivors of the nuclear fire called the war Judgment Day. "
(mér fannst cool að heyra þetta í bíó á sínum tíma - sue me)
"Old age is creeping up on you my friend"
Ah.. so what? Í mínu tilfelli hefur lífið farið skánandi so far og það er ennþá töluvert svigrúm fyrir meiri svona "skánandi" hluti. Ég er búin að eiga blátt áfram ömurlegt ár hvernig sem á það er litið, búin að vera hálfgerður sjúklingur á ógeðs lyfjum, hef ekki mátt vera í sól og bla bla bla. Nenni ekki að telja upp þessar SKELFILEGU HÖRMUNGAR sem eru nú á enda. Oh.. ég fæ verk í allar tilfinningarnar mínar og má helst ekki hugsa útí þetta án þess að vera með klínex á staðnum. Bygons.
Í kvöld er ég að fara út að borða.
Í gær djöflaðist ég í klukkutíma í badminton. Í morgun bjóst ég við að handleggurinn á mér myndi detta af, en nei. Ekki til strengir í þessum handlegg.
Old age.. iss.