Miðvikudagur, 16. ágúst 2006
Um daginn var ég spurð hvort ég ætlaði ekki að sjá the chippendales.
Eh.. nei. Þá var mér sagt að sumir þeirra séu að leita sér að eiginkonu!
Já! Ég er einmitt manneskja sem fer að sjá the chippendales með það að markmiði að eignast eiginmann..
SEM ER FATAFELLA.
Ég er of upptekin til að taka þátt í svona rugli.
Þarf að lakka á mér táneglurnar og horfa á lakkið þorna.