Búin að kaupa mér kjól..
Fimmtudagur, 10. ágúst 2006
Auðvitað fór ég í flottustu kjólabúðina á Íslandi (Coast í Smáralind) í hádeginu og vafraði þar í smá stund, staðnæmdist heilluð við þennan og spurði hvort ég mætti máta. Þegar ég var komin í hann var þetta bara orðin spurning um hvað hann kostaði, því mig langaði að kaupa hann - en ég þekki sjáfa mig og minn dýra smekk - vissi að ég hefði mjög líklega ekki efni á honum.
Anna: Hvað kostar hann?
Afgreiðslukona: "Hann kostaði upprunalega þrjátíu og níu og níu...
(Ef ég held áfram að fá svona áföll enda ég líklega á Kleppi eftir mánuðinn)
..en hann er kominn niður í ellefu þúsund."
Ellefu þúsund! Ég var skjótari en skugginn að rétta henni debetkortið.
Meina.. ég þarf ekki að senda Margeir að strippa nema í tvö kvöld til að eiga fyrir þessu!
Vinkona mín, þessi sem skipaði mér að kaupa mér kjól og fara með sér út þegar lyfin eru frá, fær líklega sjokk þegar hún sér mig í þessum - en aftur á móti sagðir hún að ég ætti að vera alveg ógeðslega flott og við grínumst ekki með svona mál hérna á anna.is.
This is serious and I am a professional.
Þá er bara að finna viðeigandi dekur..