Laugardagur, 26. ágúst 2006
Vaknađi fyrst klukkan sex í morgun. Líklega ţarf ég bara sex tíma svefn en trúi ţví aldrei, svo ég fór ađ sofa aftur. Vaknađi klukkan hálf níu og fannst klukkan hljóta ađ vera hálf tvö eđa eitthvađ.
Eftir tvo klukkutíma verđ ég búin međ einn sólarhring í leiknum mínum og ég er búin ađ standast ÓTRÚLEGUSTU freistingar. Klukkan ellefu á mánudagsmorgun verđur eyđslubanninu aflétt - nei bara, for the record.
Alan Hudson stakk uppá ţví ađ lesendur myndu skjóta saman í pizzu fyrir mig. Ekkert vera ađ ţví. Auk ţess virkar bjallan heima hjá mér ekki og pizzusendillinn myndi bara fara ađ gráta.
Fékk mér skyr í morgunmat. Óblandađ. Ţegar mér datt í hug ađ gera ţetta var ég fyrst ađ velta fyrir mér ađ hella mökk af sykri útá til ađ gera lífsreynsluna bćrilega en mér til mikillar furđu fannst mér skyriđ ekkert vont. Eitt og sér. Finnst samt glatađ ađ eiga ekki trönuberjadjús ţví Husk í vatn er viđbjóđur. Ćtla samt ađ láta mig hafa ţađ. Annars fć ég hćgđartregđu og ţá get ég ekki notađ allan ţennan klósettpappír!