Sunnudagur, 27. ágúst 2006
Klukkan ellefu í fyrramálið er ég búin að eyða engu s.l. þrjá sólarhringa.
Ég undirbjó mig ekki sérstaklega og átti af þeim sökum ekkert gott að borða, ekkert gott að drekka, ekkert nammi og ekkert bensín - eða.. lítið bensín. Nágranni minn bauð mér í hádegismat lau og sun og ég fór í matarboð á laugardeginum. Bensínið dugði. Ég drakk vatn alla helgina, sem ég geri hvort sem er.. fyrir utan þegar ég drekk trönuberjasafa og borðaði skyr og eggjaköku. Ef ég ætti ekki börn gæti ég haldið áfram í leiknum út mánuðinn án þess að eyða krónu, ég á hinsvegar ekkert hollt í nesti handa þeim svo það gengur ekki upp. Auk þess á ég afmæli á þriðjudaginn og ég mun halda uppá það á hátt sem ég get ekki gefið upp. Ken kemur við sögu og ég veit eiginlega ekki sjálf hvað mun gerast.
Um helgina kláraði ég að búa til Galdradúkkur svo Nornabúðin verður komin með svoleiðis þegar hún opnar á mánudaginn og ég sneið kjólinn sem ég ætla að vera í á grímuballinu. Djöfull er ég búin að vera ógeðslega dugleg - já.. og síðast en EKKI síst.. ég gekk frá fokking jóladótinu niður í geymslu.
Það er ekkert hægt að toppa svona productivity.
Þetta var pís of fokking keik og ógeðslega gaman eiginlega. Ég er búin að fá svona "ÉG VERÐ AÐ KAUPA MÉR "eitthvað random thing" NÚNA!" En ég stóðst freistinguna every time. Það er ótrúlega góð tilfinning að hafa stjórn á sjálfum sér. Með fimmþúsund kall í vasanum alla helgina sem ég gerði nákvæmlega ekkert við.
Neglurnar á mér hafa sjaldan verið flottari. Reglulegir lesendur vita hvað það þýðir.