Hitti þennan fisk í dag. Ekkert líf í honum.
Ég kann að velja þá.
Ohhhh...sætt... maður sér ástina skína úr glæru líflausu augunum hans þegar hann "horfir" á þig
En þú reyndir samt munn-við-munn aðferðina? Það verður ekki af þér skafið, þú ert góð manneskja
Hvað hef ég ekki oft horft í líflaus augu Elín og hvað hef ég ekki oft reynt að blása lífi í dauða fiska.
Mikið af dauðum fiskum í sjónum. hahahaha
Annars hitti ég þennan á leiðinni á American Style, datt í hug að hann væri eitthvað fyrir mig - en svo reyndist ekki vera.
Hafðu ekki áhyggjur, nægur fiskur í sjónum
Alltaf jafn geðslegt að fara á American Style í Skipholti þegar "peningalyktin" ríkir þarna yfir öllu svæðinu útaf fiskbúðinni við hliðina.
En ég er ekki frá því að þið séuð fallegt par, Anna
Kannast líka við þessa viðbjóðslegu lykt í Skipholtinu, maður veltur inn á AS með æluna í hálsinum. Anna, hárið er aðeins fyrir á myndinni