Mánudagur, 24. júlí 2006
Eitthvað undarlegt er að koma fyrir mig sem hefur aldrei komið fyrir mig áður. Líklega er sveltið farið að segja til sín en.. basically I'm getting turned on..
by a car!
Ef þetta væri Jagúar yrði ég ekkert hissa, þó Jagúar hafi nú aldrei beinlínis haft nein feremónísk áhrif á mig þó mér finnist þeir mjög fallegir, en þetta er ekki Jagúar. Þetta er bíll sem mér fannst einu sinni alveg ógeðslega ljótur. Þetta er Ford Mustang.
Já. Ég er að tala um nákvæmlega ÞETTA.
Ford Mustang 2005 og meira segja fokking silfur grár!
What the fuck is happening to me?
Um daginn var ég að keyra inná Miklubraut og sá einn af þessum bílum á rauðu ljósi fyrir aftan mig. Ég hægði actually á mér og keyrði þannig að þegar kom grænt ljós tók þessi bíll framúr mér - og ég.. ég fékk hraðan hjartslátt, fann fyrir fiðringi í maganum og gott ef ég varð ekki *censored* líka, þrátt fyrir að vera á lyfjum sem eiga að ná að þurrka alla slímhúð líkamans upp!
Getur verið, meina.. getur það í alvöru verið.. að ég sé bílkynhneigð?
Þetta væri ekki vandamál ef ég sæi ekki svona bíl í hvert einasta helvítis sinn sem ég fer út úr húsi og málið er að þegar ég skoða myndir af bílnum á netinu (já ég er actually það langt leidd).. þá er það ekki beinlínis bíllinn sem ég er hrifin af. Mig langar t.d. ekki að eiga svona bíl, nei, mig langar að eiga MANN SEM HEFUR SÖMU EIGINLEIKA OG ÞESSI BÍLL - í minnst tólf klukkutíma.
Og hvað segir það ykkur?
Vitiði hvað þetta eru kraftmiklir bílar?
Vitiði hvað það er stór vél í þessu? Ha?
ha?
ha?
ha?
SJÁIÐI HVAÐ ÞETTA ER ILLSKULEGUR BÍLL!!!???
Testersterone-ið hreinlega lekur af honum.
Magnað. Það eru actually til hlutir sem kveikja í mér - en ekki karlmenn.
Nema Ken auðvitað, hvernig læt ég.. hehehe sjís!