www.anna.is
ravings of a lunatic
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings of a lunatic movie hall of fame ferilskrá
Góð helgi
Sunnudagur, 23. júlí 2006

Byrjaði daginn í dag á að fara í golf með Ken rétt fyrir hádegi. Fórum á æfingarvöllinn á Korpúlfsstöðum. Mikið hrikalega var þetta gaman.

Tókum níu holu æfingarvöllinn, hann tók völlinn á þremur yfir pari, ég tók hann á 7923. Nei ég er að ljúga þessu. Hann varð mjög impressed yfir hvað mér gekk vel, sagði að ég væri natural. Veit nú ekki hvort ég trúi því alveg, hann veit hver refsiramminn er fyrir að segja mér að ég sökki í einhverju.

Það er allt í lagi þó ég sökki í golfi. Það skiptir líka greinilega engu máli og Ken sagði að ég virðist hafa mjög gott lundarfar til að spila golf því þó ég væri að slá vindhögg hingað og þangað eða púttaði framhjá holunni þá tók ég því með einstöku jafnaðargeði - ólíkt Ken sem hoppaði upp og niður og reytti hár sitt og skegg þegar hann missti marks. Mér fannst það nú bara sætt. Eitt það skemmtilegasta við þetta sport er að standa fyrir aftan Ken þegar hann er að fara að sveifla kylfunni.

Killer behind á manninum.

Skutlaði Ken til vinar síns til að klára að klæða þetta loft og náði svo í Hörpu. Fórum í Ikea (legg það helvíti ekki á manninn sem ég elska) og keyptum bókaskápa sem ég hef verið á leiðinni að kaupa lengi. Blaðamaðurinn kom með Dodda í heimsókn og eldaði fyrir mig á meðan ég var að stússa í að koma skápunum fyrir. Ken kom heim þegar við vorum að borða og dauðbrá, en jafnaði sig fljótt og komst að því að blaðamaðurinn er helvíti skemmtilegur, ég var reyndar búin að segja honum það. Á meðan þeir voru shooting the breeze byrjaði ég að raða bókum í nýju hillurnar, þeir hjálpuðu mér aðeins að koma skápunum fyrir áður en þeir fóru aftur. Blaðamaðurinn til síns heima með Dodda og Ken að klæða þetta friggin loft. Ekki amalegt samt að vera umkringd karlmönnum sem vilja hjálpa - sem minnir mig á laugardagskvöldið.

Ken var reyndar ekki heima allan laugardaginn, var að hjálpa vini sínum að klæða loftið á efri hæðinni á raðhúsinu sem hann var að kaupa. Ég bauð hinsvegar Huga og Hörpu í grill áður en við fórum að kveðja Elínu. Hugi og Harpa eru sammála um að ég hefði ekki átt að kaupa mér grill, þar sem ég er haldin sjúklegri gas-hræðslu. Af þeim sökum var aðkoma Huga töluverð þegar átti að kveikja á grillinu og vera nálægt því og svona. Ég var alltaf á klósettinu að pissa, eins og fólk gerir sem er mjög hrætt. Hugi hefur sagt mér að yfirleitt er hægt að finna skýringu á allri svona hræðslu, og þegar málin eru skoðuð af vandvirkni kemur oftar en ekki í ljós að viðkomandi var laminn sem barn með því sem hann er hræddur við. Ég hef sumsé líklega verið lamin með gasi. Gasgrilli jafnvel. Kannast nú reyndar ekki við það, en öllu óhugnarlegri finnst mér hræðsla Huga við dverga.

Þetta var reyndar MJÖG spes því iðnaðarmennirnir eru komnir aftur utaná húsið og á meðan við vorum að grilla var einn maður að mála gluggana og annar í e.k. lyftu utaná húsinu. Ég fékk hálfgerðan móral yfir því að vera að grilla með þá þarna og ef ég hefði haft meiri mat hefði ég boðið þeim að borða með okkur. En þeir fóru bara að hlæja þegar ég sagði þeim að þetta væri náttúrlega rugl og viðurkenndu að hafa velt því fyrir sér að ræna matnum og fara með hann niður í lyftunni. Létu sig hverfa rétt á meðan við borðuðum og komu svo aftur á svalirnar og hlustuðu á okkur spjalla saman þangað til við fórum í partíið.

Vonandi leiddist þeim ekki mikið.

Á eftir fórum við að kveðja Elínu, sem er mikill höfðingi heim að sækja. Hún svoleiðis bar í fólk drykkina að halda mætti að hún sé búin að vera að birgja sig upp árum saman til að halda þetta partý. Mjög vel heppnað verð ég að segja og í geðveikislega flottum garði á bak við húsið sem hún býr í með vinkonu sinni og ketti - sem varð þess valdandi að ég fór snemma heim. Fékk að sjálfsögðu ofnæmi og hlustaði ekki á Kalla sem sagði mér að tékka á hvort Elín ætti ofnæmislyf, ég fattaði ekki að það yrði kalt í garðinum og partíið myndi flytjast aftur inn.

My badd.

Við Ken ætlum að kanna þetta golf dæmi meira í vikunni. Ég ætlaði að hitta fullt af öðru fólki um helgina en hún bara hvarf, svo ég mun láta í mér heyra á næstu dögum. Þetta er búið að vera gott frí.

En nú er Ken komin heim. Sveittur.

Við vitum öll.. hvað það þýðir.


| anna | 22:10 |
comments
Skutlaði Ken til vinar síns til að klára að klæða þetta loft og náði svo í Hörpu. Fórum í Ikea (legg það helvíti ekki á manninn sem ég elska) og keyptum bókaskápa sem ég hef verið á leiðinni að kaupa lengi.

Hvað með KONUNA sem þú elskar! melodramatic weepy tíhíhí

Geggjuð helgi að baki, takk fyrir dásamlegan mat og félagsskap Anna og Hugi! (P.s. spes kveðjur til litháans sem hangir utan á húsinuwink

Nr. 1 | posted by: Harpa | 24.07.2006 | 1:26:32 | [+] |

Munurinn á þér og Ken er að þér finnst GAMAN í Ikea Harpa. toungue

Skila kveðjunni til litháans! wave

Nr. 2 | posted by: anna | 24.07.2006 | 9:09:28 | [+] |

Neinei, My bad, Anna. Ég hefði auðvitað ekkert átt að hlusta á þig og fara og tala við gestgjafana og spyrja eftir töflum. Svo þegar ég hefði fengið þær hefði ég bara komið með þær og vatnsglas til þín og SAGT þér að taka þær wink

Nr. 3 | posted by: Kalli | 24.07.2006 | 14:56:15 | [+] |

Þú manst það bara næst. Konur fíla svona take charge menn, ég var búin að segja þér það, en þú hlustaðir bara ekki á mig. wink toungue

Nr. 4 | posted by: anna | 24.07.2006 | 14:58:08 | [+] |

Spegill!

Nr. 5 | posted by: Kalli | 24.07.2006 | 15:35:09 | [+] |

Takk fyrir komuna Anna mín wave

Ohh það er svo gott að eiga svona þroskaða vini, spegill spegill....hí hí hí

Af hverju vissi ég ekki að þú værir með kattaofnæmi? á maður ekki að deila svona upplýsingum með konum sem maður ætlar að læra til lesbíu með? doubt

Nr. 6 | posted by: Elín | 24.07.2006 | 17:39:26 | [+] |

Það er nauðsynlegt. Ég held að allergy to pussy hindri mann frá inngöngu í námið.

Nr. 7 | posted by: Kalli | 24.07.2006 | 17:45:24 | [+] |

Hræddur við dverga? Hvílík vitleysa, ég elska dverga (samt ekki þannig).

En ef svo ólíklega vildi til að ég væri hræddur við dverga, þá máttu vita að það eru tölfræðilega meiri líkur á að dvergur springi en gasgrill.

Nr. 8 | posted by: Hugi | 24.07.2006 | 22:03:56 | [+] |
post a comment


Muna upplýsingar?












smilie winky colgate happy boogie toungue wahahahaha

angel embarassed doubt silent sad guilty shy sour

hmmm evil gnasher sick drunk what cool wave

weepy melodramatic nerd clown chococat nightmare pirate








Tell me, yes or no.








recent ravings
recent comments
monthly archive

links
blogs
links - web