www.anna.is
ravings of a lunatic
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings song movie jokes cv guestbook
Paradís á jörð
Fimmtudagur, 20. júlí 2006

paradise.jpg

paradise1.jpg

paradise2.jpg

Í gærkvöldi átti ég eitt skemmtilegasta sumarbústaðarkvöld sem ég hef upplifað. Harpa og systir hennar komu með mér á óðalið og um kvöldið höfðum við það notarlegt í sveitinni. Í morgun röltum við útá golfvöll í brjálaðri blíðu. Rassgat að vera svona sólarfatlaður.

Harpa er sammála mér, þetta er paradís á jörð. Klikkaður sumarbústaður. Gróin skógur allt í kring, lækur, leiktæki fyrir börnin, sundlaug, golf, kaupfélag og killer gott veður. Harpa er brunarúst eftir daginn. Ég sat náttúrlega inní tjaldi eða úti í jakka. Hitinn að drepa mig. Það var of gott veður á óðalinu og spáð áframhaldandi hlýjindum svo ég ákvað að fara í bæinn. Það gengur ekki upp að mega ekki vera í sól og sitja inní tjaldi í 25 stiga hita í skugga. Ég þarf að fara að galdra fram rigningu aftur, þetta er rugl.

Djöfull er ég samt sátt við þetta óðal. Ken sló enn einu sinni í gegn á grillinu, gamla kolagrillinu sem var ónotað á svölunum hjá mér - það er nú komið á óðalið.

Oh.. OH!

Good times!


| anna | 21:44 |
comments

Kufffélög eru stálið. Velkomin aftur wave

Nr. 1 | posted by: Kalli | 20.07.2006 | 22:03:19 | [+] |

Geturðu ekki bara fengið þér svona blátt sunblock 5000 ( ref: Higlander II - The Quickening ) og makað því duglega á þig ? Þá geturðu verið úti hvenær sem þig lystir smile

C.a. svona...

http://www.orku.net/~thor/new_anna.jpg (Anna með sólarvörn 5000)

Sætt, ekki satt ? wink

Nr. 2 | posted by: Þór | 20.07.2006 | 23:16:02 | [+] |

Ókídókí... ekki hægt að nota img src smile

Þú getur amk séð hvað img src urlið er ( geri ég ráð fyrir ) þótt aðrir geti það ekki wink

Og btw, hafirðu ekki séð þessa mynd sem ég vitnaði í...

...

... ekki fara og sjá hana.

Bara plís. Ég vil ekki láta væna mig um að hafa endanlega eyðilagt líf þitt með heimsins þriðju verstu mynd allra tíma ( á eftir Ed Wood/Plan 9 og Robocop myndunum... )

Og velkomin til baka happy

Nr. 3 | posted by: Þór | 20.07.2006 | 23:19:45 | [+] |

hehehehe MJÖG sætt. laughing

Nr. 4 | posted by: anna | 20.07.2006 | 23:34:21 | [+] |

Þetta minnir á eitthvað úr Star Trek. Erum við að tala um arftaka 7-of-9 ??

Nr. 5 | posted by: Hugz | 21.07.2006 | 12:21:01 | [+] |

Takk fyrir yndislegan tíma á óðalinu Anna mín. Varstu búin að fatta að þegar við kvöddumst í gær þá vorum við búnar að eyða heilli viku saman? smile

Sjáumst aftur á morgun wave

Nr. 6 | posted by: Harpa | 21.07.2006 | 13:21:24 | [+] |

Nei, Hugz, þetta er eins og bláa útgáfan af Orion Slave Girls. Wrarrrrr...

Ekki að ég sé að dissa Jeri Ryan. Alls ekki en hún var betri í mistæku en samt góðu Dark Skies en undirmálsTrekkinu Voyager.

Nr. 7 | posted by: Kalli | 21.07.2006 | 19:39:31 | [+] |
post a comment


Muna upplýsingar?












smilie winky colgate happy boogie toungue wahahahaha

angel embarassed doubt silent sad guilty shy sour

hmmm evil gnasher sick drunk what cool wave

weepy melodramatic nerd clown chococat nightmare pirate








Tell me, yes or no.








recent ravings
recent comments
monthly archive

links
blogs
links - web