www.anna.is
ravings of a lunatic
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings song movie jokes cv
Pönnur út ævina
Mánudagur, 03. júlí 2006

Um daginn þurfti ég að fara í Ikea að kaupa litla pönnu. Kostar 290 kall, og ég hef gert þetta fjórum sinnum áður. Það liggur við að þetta séu einnota pönnur en mér finnst gott að eiga svona litla pönnu - nema..

Þegar ég kom inná planið hjá Ikea sá ég endalausan hafsjó af bílum, samt var ég snemma á ferðinni, rétt um hádegið. Ég sat í bílnum mínum og dæsti - hugsaði: "Ég nenni þessu ekki. Nenni ekki þarna inn til að kaupa eina skitna pönnu."

En mig vantaði pönnu og ég er búin að lifa án svona pönnu lengi núna því síðasta panna sem ég keypti var gölluð og það festist allt við hana. Hvað gerði ég? Jú. Ég fór í Bræðurna Ormsson og fullnægði öllum mínum pönnuþörfum út ævina.

anna_panna.jpg

ponnnnnur.jpg

Svona á að fara að þessu!

Finnst ykkur þær ekki guðdómlega fallegar? Ég hef ekki skápapláss fyrir þær, á svo mikið af eldhúsdóti, svo ég hengdi þær bara upp fyrir ofan eldavélina. Málið dautt. Mjög þægilegt að hafa þær þarna reyndar, miklu þægilegra en að hafa þær uppí skáp.

Annars finnst mér merkilegt hvað lítil áhöld sem virðast hálf ómerkileg geta gert gæfumuninn í lífinu. Þannig hef ég t.d. komist að því að ég get ekkert lifað án þess að eiga litla sleikju eins og þessa sem er á meðfylgjandi mynd með blendernum. Ég fékk þessa sleikju í jólagjöf og þó ég hafi ekki notað hana mikið fyrst breyttist það all verulega eftir að ég keypti mér blenderinn. Þetta er akkúrat rétta áhaldið fyrir boost framleiðslu.

Það munar bókstaflega öllu að eigan viðeigandi tæki þegar maður er að elda. Nú er ég búin að elda slatta á þessum pönnum og ég ber það ekki saman við að elda á gömlu stál pönnunni (eva trio rándýr stál panna) og Ikea pönnunni. Enda ekkert sambærilegt. Hlakka til að búa til eggjaköku á þessari litlu.

Það er svo gaman að elda þegar maður á réttu græjurnar.

Var að spá í hvað mig vantaði í eldhúsið núna og mér dettur ekkert í hug. Datt í hug örbylgjuofn, en satt að segja þá notaði ég aldrei örbylgjuofninn sem ég átti á meðan ég var gift og hef aldrei saknað hans. Ég poppa nefnilega í sér popp potti sem býr til alveg ofboðslega gott poppkorn. Ég fékk þann pott þegar pabbi og mamma skildu, enda löngu búin að eyðileggja hann með því að vera alltaf að poppa í honum.

Örbylgjupopp hefur nefnilega alltaf farið frekar illa í mig og það versnaði eftir að ég stal fyrsta barninu mínu úr Kringlunni. Þegar ég er búin að borða örbylgjupopp fæ ég bjúg og líður almennt mjög illa. Á námskeiði hjá næringarfræðingi sem ég fór á fyrir einhverjum árum síðan var okkur sýnd mynd af innihaldi popppakkans. Það sér nefnilega engin innihaldið með berum augum fyrr en það er búið að poppast, hafiði pælt í því?

Það sem er inní popppakkanum áður en þú opnar rjúkandi heitt og ljúffengt poppkorn er basically lítill smjörlíkisklumpur með maís. Samt var þetta mynd af pakka með "light" poppi. Svo er þetta brimsalt og ég þoli salt ekki vel, nema Maldon. Nota samt mest Herbamere saltið þegar ég er að salta mat. Krakkarnir kjósa það orðið framyfir hefðbundið salt. Nota samt Maldon þegar ég er að elda.

Merkilegt að það virðast allir eiga örbylgjuofn í dag. Ég þekki fólk sem segist ekki geta verið án örbylgjuofnsins. Er fólk mikið að nota þetta til að afþýða eða svoleiðis? Meinaða.. ég átti örbylgjuofn í fimm ár og afþýddi aldrei nokkurn skapaðan hlut í honum.

Það eina sem ég sakna úr eldhúsinu frá því ég skildi er mínútugrillið. Bjó til killer samlokur í því og nei, ég vil ekki fá samloku grill. Þau eru nefnilega ekki eins góð og mínútugrill. Kremja oft brauðið í köku og setja eitthvað mongo munstur í það. Fyrrverandi maðurinn minn hélt því fram að ég væri rugluð þegar við fengum á sínum tíma samlokugrill í jólagjöf og ég tók ekki annað í mál en að skipta því í mínútugrill. Við þurftum að borga sem samsvaraði öðru samlokugrilli á milli en ég hélt fram, að það væru betri kaup, þegar til lengri tíma er litið.

Það eina sem hann óskaði sérstaklega eftir að fá úr eldhúsinu þegar við skildum var þetta ákveðna mínútugrill. Enda er hann löngu búinn að komast að því að ég hafði rétt fyrir mér, samlokur úr samlokugrilli og samlokur úr mínútugrilli eru sitthvor hluturinn. Hljómar ótrúlega, en þetta er satt.

Já. Næsta græja sem ég kaupi í eldhúsið verður akkúrat svoleiðis græja. Ég spái því að krakkarnir verði mjög kátir. Þau elska samlokurnar sem ég geri í þannig grilli. Verður gaman að sjá hvort Ken mun elska það líka..


| anna | 15:15 | send to facebook |
comments

I like your style í pönnum og grillum. Samlokugrill eru verkfæri djöfulsins og mínútugrill miklu betri til að grilla samlokur.

Svo held ég að þetta sé eins Tefal panna og ég á nema mín er ekki lengur ný og fín wink

Nr. 1 | posted by: Kalli | 3.07.2006 | 15:50:38 | [+] |

Akkúrat, þetta er nefnilega ekkert grín, þetta með muninn á samlokugrillum og mínútugrillum.

Veistu.. ég er svo hrifin af þessum pönnum að líklega kaupi ég mér potta næst, í staðinn fyrir mínútugrill.

Það er nefnilega hægt að búa til svona samlokur á pönnum líka wink

Að elda á þessu er bara engu líkt! Gæti ekki verið fullnægðari - pönnulega séð.

Nr. 2 | posted by: anna | 3.07.2006 | 16:00:18 | [+] |

Ég man enn eftir fjárfestingu sem mamma og pabbi gerðu í Malmö – í dagsferð frá København: Rowenta mínútugrill. Það var svona rauðorange á litinn og þjónaði í mörg ár. Síðan var því lagt og samlokugrill keypt í staðinn. Síðan hef ég ekki fengið virkilega góða samloku með skinku og osti heima hjá mér.

Ég prófa kannski bara Tefal pönnuna mína á eftir wave

Nr. 3 | posted by: Kalli | 3.07.2006 | 16:12:23 | [+] |

Mitt heimili er búið að ganga í gegnum allt 'non-sticky' pönnuferlið. Við endum alltaf á að éta húðina og vorum ekki hrifin af því. Eftir fund í eldhúsráði heimilisins þá var samþykkt að pönnusteikingar ættu að vera sticky. Í framhaldinu þá keyptum við góða gamaldags stálpönnu sem allt festist við ef maður hefur ekki hugann við það sem maður er að gera. En það er allt í lagi, þegar maður er að elda þá er maður að elda.

Hvað er annars mínútugrill og hvað er samlokugrill? Hver er munurinn á þessu? Ég þekki örbylgjuofna, á einn sem ég nota aldrei, en hitt er eitthvað sem ég kannast ekki við úr mínum litla eldhúsheimi.

Nr. 4 | posted by: AlanHudson | 3.07.2006 | 16:12:40 | [+] |

Samlokugrill er eins og vöfflujárn miðað á samlokur og setur eitthvað mynstur í samlokuna og svona kjaftæði. Mínútugrill er bara plain rifflað.

Nr. 5 | posted by: Kalli | 3.07.2006 | 16:27:46 | [+] |

Samlokugrill: http://www.ht.is/index.php?sida=vara&vara=743175

Mínútugrill: http://www.ht.is/index.php?sida=vara&vara=HD4440

Fyrra er slæmt og seinna er gott.

Nr. 6 | posted by: Kalli | 3.07.2006 | 16:28:52 | [+] |

Magnað. Mamma og pabbi áttu líka nákvæmlega svona Rowenta grill.

Þannig gerði ég þessa merkilegu uppgötvun.

Mínútugrill er bara.. mínútugrill. George Foreman hefur gert góða hluti að selja svoleiðis tæki - þú hlýtur að vita hvað það er.

Nr. 7 | posted by: anna | 3.07.2006 | 16:33:17 | [+] |

Mig langar í pottjárnspönnu, og mun sjálfsagt kaupa mér hana áður en yfir lýkur.

Annars þarf að hugsa soldið vel um svona dót, á vinkonu sem er búin að eiga nákvæmlega svona pönnu mjög lengi, sér ekki á henni. wink

Nr. 8 | posted by: anna | 3.07.2006 | 16:52:19 | [+] |

Pottjárnspönnur endast manni út ævina. Samt aldrei þvo þær með sápu. Halda hitanum lengi. Annars skiftir botninn öllu máli þegar pönnur eru keyptar. Velja ber þykkann. Þessar þunnu verða undnar og skakkar um leið, sérstaklega ef þær fá svona Heitt-Kalt sjokk.

Nr. 9 | posted by: Anna Panna | 3.07.2006 | 19:33:04 | [+] |

Takk fyrir að upplýsa mig. Já auðvitað hef ég séð þetta einhverntíma, en með auglýsingarnar hans George Foremans, það slokknar alltaf á öllum mínum skilningarvitum þegar ég heyri/sé auglýsingar. Það getur verið mjög varasamt þegar ég er undir stýri. Úti að aka sumsé.

Nr. 10 | posted by: AlanHudson | 3.07.2006 | 19:33:39 | [+] |

Það er einmitt mjög þykkur botn á þessum pönnum. Ég gæti allavega ekki verið hamingjusamari með þær. Kannast við "heitt/kalt" sjokkið og forðast alltaf að setja kalt beint á pönnu. Þoli ekki undnar pönnur og potta.

Alan. Við erum að tala um svoleiðis grill. Getur búið til killer samlokur í þessu, plús bara fullt annað skemmtilegt. Ég hef oft og mörgum sinnum grillað á þessu grillmat sem átti að grilla úti.. en svo fór að rigna.

Ísland. Best í heimi!

Nr. 11 | posted by: anna | 3.07.2006 | 19:46:21 | [+] |

Á svona pönnu. Mín er bara pínu ponsu sjúskuð eftir kjúklingaævintýrið um daginn.

Góð panna.

Pottjárns pönnur og pottar eru hins vegar horror. Fékk heilt sett í brúðkaupsgjöf - allt úr Kúnígúnd. Allt sem snéri að eldamennsku og uppvaski breyttist í pjúra martröð. Því var hent.

Ma og pa áttu svona Rowenta grill líka - sign of the times býst ég við. Þau splæstu líka í rýjateppi á alla íbúðina wink

Galdurinn við mínútugrillin er að þau lokast ekki að aftan og því er hægt að hlaða gúmmulaði á lokurnar.
Það er það eina sem ég kann að búa til.
Þess vegna eru seldar "Lindur" í mötuneytinu hjá Stöð 2.

Nr. 12 | posted by: Lindablinda | 3.07.2006 | 20:50:19 | [+] |

á ákkúrat svona pönnu og hún svínvirkar. passaðu þig samt á að hafa hana ekki lengur en þarf á mesta hita.. pannan er orðin 5 ára gömul og enn festist ekkert í henni.

Nr. 13 | posted by: Langi Sleði | 3.07.2006 | 23:00:45 | [+] |

Ég ólst upp við örbylgjuofna á áttunda og níunda áratugnum (faðir minn hefur alltaf verið mjög framúrstefnulegur) en síðan ég fór að búa um miðjan níunda áratuginn hef ég aldrei haft slíkt á heimilinu.
Núna er ég að skipta öllum teflonpönnum út fyrir stál og pottjárn. Og kannski eina emaljeraða Le Creuset. Ég eldaði á svoleiðis í London og það er bara frábært.

Nr. 14 | posted by: Elías | 4.07.2006 | 0:01:30 | [+] |

a)
Að afþýða: Að snúa einhverju yfir á frummálið aftur, sem einhver annar/önnur hefur þýtt yfir á sitt/eitthvert annað tungumál. Tilgangslaus sýslan, þar sem frumtextinn, þ.e. textinn sem þýddur var í upphafi, liggur fyrir í flestum tilfellum, og því óþarfi að skrifa hann að nýju (þó eru til örfáar undantekningar, þeirra frægust líklega upphaflegu leiðbeiningarnar með jakkawokky-tilbeiðslutitraranum, en þær eru aðeins til á ensku, mongólsku og hollensku, þar eð framleiðendur JTT gleymdu að varðveita orginalinn. Hefur þetta komið sér afar illa þar sem þýðendur hafa greinilega allir misskilið EITTHVAÐ í frumtextanum, sbr. nýlegar fréttir af kollektívri sturlun allt að 76% þeirra sem notað hafa JTT).
b)hugsanleg villa í stafsetningu hugtaksins að "afþíða" sem þýðir "að frysta eitthvað aftur, sem áður var frosið, en hefur þiðnað eða verið þítt í millitíðinni".
c) - sem er líklegasta skýringin, þ.e.a.s. afar algengur samsláttur og ruglingur hugtakanna "að affrysta" og "að þíða" + ypsilonvilla, en ypsilonvillingar eru afar útbreiddir í hinum vestræna heimi. Hér er sumsé slegið saman forskeyti annars hugtaksins (sem, n.b. er það sem átt er við í þessum tilfellum, og svo hinu hugtakinu, sem (forskeytisluast, vel að merkja) á við um það sem er verið að gera með fyrra hugtakinu. Flókið? Ég held nú síður. Sko, maður ímyndar sér bara - eða nei, better not go there...
Nema hvað, að öðru.
i. Örbylgjuofnar. Lifði lengi og vel án slíks apparats. Er með einn slíkan núna, hinsvegar, og hef það áfram helvíti fínt, bara. Nota hann stundum, og hann gerir það sem hann á að gera.
ii. Samlokugrill vs. mínútugrill: No contest, mínútugrillið getur allt það sem samlokugrillið getur, og það miklu betur. Þar að auki getur mínútugrillið gert allskonar hluti sem hitt wimpið getur ekki. Samt er leitun að almennilegum mínútugrillum (tók mig á annað ár að finna substitute fyrir það gamla sem dó), en samlokugrillin ráðast á mann úr annarri hvorri hillu. Go figure.
iii. Ef þú ferð ekki að drepa þetta leiðindagerpi sem þú kallar Ken aftur hið snarasta, þá verð ég að gera það fyrir þig. Nema þú verðir fyrri til og drepir mig auðvitað, sem er alltaf option. Sorrí, but it's a fact - hann er að drepa mig.
Veistu, Ken er svona hálfgert Salem - og bloggið þitt svona hálfgerð nikótínfíkn. Og ég svona nikótínisti sem þoli ekki mentolsígarettur en neyðist til að stela alltaf af þér rettu öðru hvoru - og í hvert skipti hugsa ég, þegar ég laumast í pakkann þinn: Djöfull vona ég að hún sé ekki með Salem núna. Og hvað gerist? Þú ert alltaf með fökking Salem! Fökk.
Þú sem einu sinni - og ekkert fyrir allt of löngu - varst alltaf með alvöru sígarettur... baneitraðar, ávanabindandi og algjörlega brilljant, ert búin að skipta yfir í Salem ...
Æ, mig auman.
Þú ert að verða jafnslæm og fréttastofur þessa lands - alltaf vonast maður eftir að fá eitthvað annað en Salem, en alltaf skal helvítis Baugsmálið dúkka upp.

Ég held sveimérþá að Ken sé farinn að fara meira í taugarnar á mér en Lifur. Og þá er langt til jafnað.
Svei því.
Hvað hefði Stalín sagt við þessari ósvinnu?
En þar fyrir utan, hvort ertu nú meira svona skinka-ostur-aspas-týpan, eða skinka-ostur-ananas?
Nei, ég var bara svona að spá...

Nr. 15 | posted by: Tumi | 4.07.2006 | 1:25:23 | [+] |

Tumi. Þú ert.. dásamlegur. Mikið kann ég vel við þig. Jájá, ég notaði minn örbylgjuoft milljón sinnum til að afþíða (lol) en aldrei til að afþýða. Blasir við.

Ég er aspas kona. Segir sig í raun og veru sjálft. Hef samt ekkert á móti ananas og get vel borðað hann. En ein af þeim betri samlokum sem ég hef búið til var með aspas og búin til í mínútugrilli.

Segðu mér annað. Hvað gerist ef ég finn alvöru Ken?

Get reyndar sagt þér hvað gerist. Ég kem til með að verða ómöguleg og þar af leiðandi skemmtilegri á blogginu, því ég finn aldrei alvöru Ken. Ég finn bara einhvern mann sem er eins og frummaður og ég ræð ekkert við, mann sem veit ekki hvað tilfinningar eru og og ég verð svo fokking frústreruð alla daga að ég eipa reglulega á blogginu. Samt. Eins furðulegt og það er.. þá er ég ekki eins einmana með Ken hér.

Hversu eigingjarn ertu Tumi? Viltu drepa hann frá mér? Á ég að gera Ken að karlmanni sem þú kannt að meta? Viltu að Ken sé eins og þú? Eða viltu bara hafa mig grátandi eina uppí rúmi með engan nema koddann minn.

----

ps. Hvar finn ég gott mínútugrill? Ég er búin að vera að leita og finn nákvæmlega ekkert. Komin með ógeð af samlokugrillum, sem einmitt gjörsamlega ofsækja mann allstaðar. Já og Tumi. Þú ættir náttúrlega að hætta að reykja og skipta alveg yfir í anna.is.

Nr. 16 | posted by: anna | 4.07.2006 | 1:41:24 | [+] |

M.ö.o. Má ég eiga hann? Bara í smá stund. Við vitum öll hvað gerist á endanum, en þangað til..

..pretty please?

Nr. 17 | posted by: anna | 4.07.2006 | 1:43:46 | [+] |

Djöfuls snillingur sem þú ert - einsog svo margir fleiri. Hef aldrei komist upp á lagið með það sjálfur að frysta nokkra djöfuls tutlu í örbylgjuofninum mínum. Samt er hann næstum alveg nýr.
Fann mitt mínútugrill í Danaveldi. Fæst sjálfsagt hér líka, ég fann eitt í Raftækjaverslun Íslands í fyrra en kærði mig hvorki um að missa hönd eða fót, hvað þá hvort tveggja, eins og þeir fóru fram á í skiptum fyrir tólið.
Aspaskona, segirðu. Auðvitað ertu aspaskona. Spergilkvendið Anna. Hljómar hættulega ... grænt, einhvernveginn.
Æ læk.
En - don't get me wrong - eða á maður að segja, plís dónt let mí bí misönderstúd - Ken er góður gæi. Þannig. Og mundi ekki trufla mig neitt þótt hann dúkkaði upp öðru hvoru. En ég er bara að eipa, eins og þú og Katrín Jakobs kallið það, á því að varla komi blogg frá þér núorðið nema með einhverju Ken-kjaftæði. Hey, en það er ekki þitt vandamál. Þú bloggar bara um það sem þú vilt.
En ég nenni bara ekki að kóa með þér eins og hinir strákarnir. Kannski af því að ég er ekki að bíða og vona...
Ken er pirrandi. Þessi Ken. Ekki af því að hann er ekki eins og ég vil hafa hann, og ekki af því að ég vilji hafa þig grátandi uppi í rúmi. Síður en svo, ég skal verða fyrstur til að gleðjast með þér ef þú finnur einn alvöruKen, þ.e.a.s. einhvern sem hefur það sem til þarf til að gera þig hamingjusama, hver sem það verður. Og ég er viss um að mér mundi ekki leiðast agnarögn að lesa um það sem út úr því kæmi. En þessi Ken ... Æ, ég veit það ekki.
En, eins og ég segi, þetta er þitt blogg. Ef það gerir þér gott að blogga um Ken, þá bloggarðu um Ken, hvað sem mér eða öðrum kann að finnast um það. En ef þú sérð einhvern sniglast fyrir utan hjá þér með riffil og kíki - þá geturðu verið viss um að þú ert ekki skotmarkið...


Nr. 18 | posted by: Tumi | 4.07.2006 | 1:57:19 | [+] |

Og já, að sjálfsögðu máttu eiga hann eitthvað áfram - ég var í óða önn að svara þér þegar þú bættir þessari beiðni þinni við - eitthvað áfram, sem sagt, því ég fer nú ekki að sniglast með riffil á dagbjartri nóttu...
Maður er enginn asni þótt maður sé í morðhugleiðingum.

Nr. 19 | posted by: Tumi | 4.07.2006 | 2:13:40 | [+] |

Þessi Ken já.

ég skal verða fyrstur til að gleðjast með þér ef þú finnur einn alvöruKen, þ.e.a.s. einhvern sem hefur það sem til þarf til að gera þig hamingjusama, hver sem það verður

Gaman að þessu "ef". Greinilega fleiri en ég sem efast.

Þess vegna þarf ég að hafa hann aðeins áfram. Hjálpar mér að trúa að þessi maður sé actually til. Þ.e., þessi sem gerir mig hamingjusama.

Nr. 20 | posted by: anna | 4.07.2006 | 9:14:43 | [+] |

Já og ég þarf make og model á þessu mínútugrilli Tumi. Ég á handlegg og fót sem ég er ekki að nota hvort sem er.

Nr. 21 | posted by: anna | 4.07.2006 | 9:34:38 | [+] |

Ég hef aldrei átt örbylgjuofn og hef aldrei haft þörf fyrir einn slíkan. Þau eldhústæki sem mig langar í núna eru pastagerðartæki og safapressa.

Ken er Salem, ekki spurning.

Nr. 22 | posted by: María | 4.07.2006 | 14:11:05 | [+] |

OG HVAÐ ER AÐ SALEM! ÞÓ ÞAÐ VÆRI SALEM LIGHTS!

ahhhh.. salem lights.. grr... slef..

lol

Nr. 23 | posted by: anna | 4.07.2006 | 14:17:02 | [+] |

Eitthvað hefur aukist framboðið - og lækkað verðið - á mínútugrillum síðan í fyrra, sýnist mér. Síðast fann ég ekkert nema það dýrasta sem auglýst er hér: http://www.elko.is/subcategory.php?idcat=28&idsubcategory=74
Þannig að þú þarft varla að fórna nema öðruhvoru, handlegg eða fæti - af Margeiri, reikna ég með, fyrst þú ert ekki að nota þessa útlimi sjálf...
Hvort heldurðu að hann vilji frekar missa?
Ef ég þyrfti að velja - tja, ætli ég vildi ekki frekar missa handlegg. Maður verður jú að hafa báða fætur á jörðinni og einn handleggur er feikinóg til að - að - æ, þú veist. Grilla samlokur og svoleiðis...

Nr. 24 | posted by: Tumi | 4.07.2006 | 14:32:22 | [+] |

Já en hvernig mínútugrill áttu? Mér líst rosalega vel á þetta hér:

http://www.ht.is/index.php?sida=vara&vara=HD4440

Held að þetta sé málið.

Ein hönd er feykinóg. Auk þess.. þú gætir alltaf fengið aðstoð.. chococat

Nr. 25 | posted by: anna | 4.07.2006 | 14:35:29 | [+] |

Fyrir þetta grill myndi ég fórna öllum Margeiri og einu nýra.

Nr. 26 | posted by: anna | 4.07.2006 | 14:38:17 | [+] |

Þetta er alveg stórfenglegt grill, og á það sameiginlegt með mínu (sem ég man ekkert hvað heitir, ekki frekar en brauðristin, eldavélin eða örbylgjuofninn - en gott ef það er ekki þýskt) - og hefur það umfram öll grillin hjá Elko að vera ílangt, sem er ótvíræður kostur.
En verðið - jújú, líklega er það þess virði, og Margeir verður bara að bíta í það súra... Hvað hefur hann svo sem að gera með tvö nýru? (eða ertu kannski búin að láta annað þeirra nú þegar í skiptum fyrir blandarann?)

Nr. 27 | posted by: Tumi | 4.07.2006 | 14:46:42 | [+] |

Akkúrat sama og ég hugsaði. Grillið sem ég átti var nefnilega svona í laginu og mér leiðist að troða dótinu í þetta. Þarf pláss.

Svo rignir svo mikið á Íslandi líka. Kjötsneiðar þurfa líka pláss.

Já ég held að þetta sé vel Margeirs virði en ég ætlaði að gefa nýrað úr mér. Sé núna að það er tómt rugl og spái að ég muni jafnvel halda einu nýra úr Margeiri eftir. Gott að eiga varahluti.

Hvernig stendur á því að Íslenska þjóðin virðist svona hrifin af samlokugrillum? Er þetta moldarkofasyndrome eitthvað?

Nr. 28 | posted by: anna | 4.07.2006 | 14:53:00 | [+] |

Þetta þyrfti náttúrulega að rannsaka.

Annars gerði ég samlokur með skinku og osti á Tefal pönnunni minni áðan og þær voru síst verri en af samlokugrillinu. Reyndar meira uppvask en ég er kominn yfir það að fá þunglyndi yfir pönnu og spaða.

Næst þegar ég geri samlokur með þessum hætti verða þær miklu betri því nú veit ég hvernig á ekki að gera þær.

Nr. 29 | posted by: Kalli | 4.07.2006 | 15:49:02 | [+] |

Æ mér finnst þetta verði að vera rifflað, veit ekki af hverju.

Eitthvað úr æsku líklega. Já. Líklega átti ég mínar bestu stundir borðandi samlokur úr rowenta grillinu góða. Ég reyndi að koma því undan þegar pabbi og mamma skildu en það var orðið ónýtt.

Nr. 30 | posted by: anna | 4.07.2006 | 15:50:59 | [+] |

Hi ! Your site is very interesting. Thank you.

Nr. 31 | posted by: JeyZee | 8.07.2006 | 5:57:04 | [+] |

Hi ! Your site is very interesting. Thank you.

Nr. 32 | posted by: Junior | 8.07.2006 | 6:00:52 | [+] |

I'm glad I found your site! It's nice! Please visit my site too:
[@../doorway/blogspot/tr10.txt||7||p-1||1||

Nr. 33 | posted by: Cathy | 27.02.2007 | 5:36:05 | [+] |
post a comment


Muna upplýsingar?












smilie winky colgate happy boogie toungue wahahahaha

angel embarassed doubt silent sad guilty shy sour

hmmm evil gnasher sick drunk what cool wave

weepy melodramatic nerd clown chococat nightmare pirate








Tell me, yes or no.








recent ravings
recent comments
monthly archive

links
blogs
links - web