www.anna.is
ravings of a lunatic
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings of a lunatic movie hall of fame ferilskrá
Fine
Þriðjudagur, 04. júlí 2006

Alfredo: Just for you, Toto, I'll tell you a story. Let's sit down for a while.

Once upon a time, a king gave a feast for the loveliest princesses in the realm. Now, a soldier who was standing guard saw the king's daughter go by. She was the most beautiful of all and he instantly fell in love. But what is a simple soldier next to the daughter of a king? Well, at last he succeeded in meeting her and told her he could no longer live without her. The princess was so taken by the depth of his feeling that she said to the soldier "If you can wait for 100 days and 100 nights under my balcony at the end I shall be yours."

With that, the soldier went and waited one day, two days, then ten, then twenty. Each evening the princess looked out and he never moved. In rain, in wind, in snow, he was always there. Birds shit on his head, bees stung him but he didn't budge. At the end of 90 nights he had become all dry, all white. Tears streamed form his eyes. He couldn't hold them back. He didn't even have the strength to sleep. All that time, the princess watched him. At long last it was the 99th night.. and the soldier stood up, took his chair, and left.

Toto: What? After all that?
Alfredo: Yes. After all that. And don't ask what it means. I don't know. If you understand it, you tell me.

Mig langaði alltaf að vita hvort ég skildi hvað Alfredo var að fara. Í kvöld horfði ég á Cinema Paradiso, lengri útgáfuna. Uncut, if you will.

Það sem kom aldrei fram í upprunalegu útgáfunni:

Ári seinna - í bíómyndinni.

Toto: Do you remember the story about the soldier and the princess?
Alfredo: Yes.
Toto: Now I know why the soldier left after all that time. Yes. One more night and the princess would be his. But she might have broken her promise and that would have been terrible. It would have killed him. This way, at least, for 99 nights he had lived with the illusion that she was waiting for him.

Ég skil.

Mér finnst upprunalega útgáfan betri, og mun horfa á hana næst. En ég gleymi aldrei því sem ég sá í þessari útgáfu og hún svarar mörgum spurningum. Sem kannski hefði ekkert átt að vera að svara.


| anna | 0:20 |
comments

Ég held að Toto hafi misskilið þetta algjörlega.
Hermaðurinn stóð þarna, rain or shine, shit or no shit, í 99 daga og 99 nætur. Alltaf kom prinsessan út á svalir til að athuga hvort hann væri ekki örugglega að passa sitt.
Væri ég hermaðurinn, þá hefði ég fattað það í allra síðasta lagi eftir 2 sólarhringa, að þetta kvendi væri algjört bitsj, og ekki þess virði að púkka upp á hana. Ég er viss um að hann fattaði það líka. Ástarbríminn rann af honum nokkrum klukkutímum, giska ég á, eftir að hann kom sér fyrir undir svölunum atarna. En þetta var þrjóskur andskoti. Miklu þrjóskari en ég, meira að segja. Og hann ákvað að kenna henni lexíu ...
And the moral of this story is: Það þýðir ekkert að kenna einhverjum prinsessum einhverja lexíu. Þær yppa bara öxlum, þegar maður lætur sig hverfa eftir 99 daga, fá sér kampavínsglas og hringja í vinkonu sína: Djísús, mar, hvað ég hitti steiktan gæja um daginn...
Og ég verð að segja, að miðað við steikingu gæjans, sem stóð þarna eins og fáviti í 99 daga bara til að gefa henni fokkmerki sem hún skildi ekki, þá var hún heppin að þurfa ekki að finna einhverja afsökun til að koma sér undan loforðinu sem hún gaf honum í einhverju bríaríi, bara til að sjá hversu langt hún gæti teymt svona vitleysinga á sínum asnaeyrum...

Nr. 1 | posted by: Tumi | 4.07.2006 | 2:35:44 | [+] |

Þú hefur varla séð myndina. Þetta svar er algert anticlimax.

Nr. 2 | posted by: AlanHudson | 4.07.2006 | 5:04:55 | [+] |

Tumi. Þú hefur greinilega aldrei verið svona ástfangin.

Nr. 3 | posted by: anna | 4.07.2006 | 9:00:57 | [+] |

Skondið að reyna að túlka svona smile Ég held að maður verði að hafa markmið til að lifa góðu lífi. Ef dátinn hefði forðað sér eftir tvo daga, þá hefði hann orðið að finna sér annað markmið. Með þessu móti hafði hann markmið í 99 daga. Skiptir þá öllu máli hvað kom út úr þessu á endanum? Held ekki. Bara eins og veiðimaðurinn, hann nennir ekki að standa dag út og dag inn við á sem gefur stóran lax í hverju einasta kasti. Nei, maður verður að hafa fyrir hlutunum. Stundum skiptir leiðin hreinlega meira máli en sjálfur áfangastaðurinn.

Mér finnst þetta fín saga.

Nr. 4 | posted by: Fríða | 4.07.2006 | 13:18:35 | [+] |

Alveg er ég sammála þér með að hafa markmið í lífinu. Án markmiða skiptir engu máli hvað þú gerir. Ekki satt?

Ég er ekki sammála þér með útkomuna hinsvegar. Vissulega er gaman að þurfa að hafa fyrir hlutunum, því þá kann maður betur að meta þá þegar maður fær þá. Það er nákvæmlega ekkert gaman að setja sér markmið og vinna að því hörðum höndum ef maður uppsker ekki neitt í lokin. Dátinn treysti sér ekki til að höndla útkomuna ef hún var honum í óhag. Hann er í raun eins og hvaða random manneskja á okkar aldri í dag. Þorði ekki að treysta að þetta væri for real, vissi að það myndi ganga frá honum. Walked away áður en það gat gerst.

Þetta er það sem vísindamennirnir tóku ekki með inní reikninginn. Öll gömlu vonbrigði fólksins sem þeir voru að reyna að para saman. Allt vantraustið og varnarmúrana sem fólkið hefur byggt í gegnum tíðina til að hlífa sjálfu sér.

Allir dæma útfrá einhverju.. sem einhver gerði.. einhvertíma.

Nr. 5 | posted by: anna | 4.07.2006 | 13:53:49 | [+] |
post a comment


Muna upplýsingar?












smilie winky colgate happy boogie toungue wahahahaha

angel embarassed doubt silent sad guilty shy sour

hmmm evil gnasher sick drunk what cool wave

weepy melodramatic nerd clown chococat nightmare pirate








Tell me, yes or no.








recent ravings
recent comments
monthly archive

links
blogs
links - web