www.anna.is
ravings of a lunatic
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings of a lunatic movie hall of fame ferilskrá
Ofsastig
Fimmtudagur, 06. júlí 2006

Hafiði ekki heyrt um fólk sem kynntist undir kringumstæðum sem gerði það fokreitt útí hvort annað og endaði á að gifta sig og lifa hamingjusöm til æviloka?

Ég hef heyrt þannig. Hef líka upplifað að þola ekki einhvern við fyrstu kynni og verða svo hrifin viðkomandi. Það gekk samt ekki upp.

Ætli þetta sé tengt því hversu ofsafengnar tilfinningar viðkomandi getur vakið hjá þér? Meina virkar það both ways?

Ef viðkomandi getur gert þig rosalega reiðann, getur hann þá gert þig rosalega hamingjusamann líka?

Nei.. bara að spöklera.

Gerði Ken alveg ofboðslega reiðan í morgun. Hann er reyndar ekkert með sjálfum sér, búin að dreifa sokkum út um alla íbúð og er hættur að ganga frá eftir sig. Orðið erfitt að vekja hann líka.

Líklega er hann að breytast í fávita. Ég þarf eiginlega að hafa samband við BBC.


| anna | 13:12 |
comments

Ætli David Attenborough viti af þessu ?

Nr. 1 | posted by: Þór | 6.07.2006 | 14:15:15 | [+] |

Er hann með sokka á eyrunum? Það er öruggt merki um fávita. Skil ekki þessar stelpur sem leyfa þeim að hössla sig upp á djamminu?

Nr. 2 | posted by: Júlía | 6.07.2006 | 15:36:32 | [+] |

Hvað í ósköpunum gerðirðu, kona?

Nr. 3 | posted by: Kalli | 6.07.2006 | 15:41:02 | [+] |

Æ ég var að vekja hann.

Nr. 4 | posted by: anna | 6.07.2006 | 15:42:34 | [+] |

Djöfull ertu snögg að slíta mönnum út, Anna.

Nr. 5 | posted by: Kalli | 6.07.2006 | 15:48:51 | [+] |

Ég veit. I need a hero.

Nr. 6 | posted by: anna | 6.07.2006 | 15:56:27 | [+] |

Ég held þig vanti ástleitinn cyborg silent

Nr. 7 | posted by: Kalli | 6.07.2006 | 16:08:14 | [+] |

Hvað meinarðu? Ég var ekki að fara fram á refsingar, ef það er það sem þú heldur. Ég var bara að vekja hann!

Nr. 8 | posted by: anna | 6.07.2006 | 16:12:52 | [+] |

Nei, sko Cyborg myndi bara endast betur. En hann yrði samt að vera ástleitinn til að þú myndir nenna að púkka upp á hann.

Nr. 9 | posted by: Kalli | 6.07.2006 | 16:49:22 | [+] |

Það þyrfti þá líklega að vera hægt að prógrammera hann til að breytast alveg þegar maður (kona) verður leiður á honum?

Nr. 10 | posted by: Fríða | 6.07.2006 | 20:39:16 | [+] |

Það er kosturinn við Cyborg. Stingur honum bara í samband við netið og hleður niður nýjustu kynlífsórunum laughing

Nr. 11 | posted by: Þór | 6.07.2006 | 23:52:13 | [+] |

Þessi persónuleikaröskun Kens ber öll merki akút skyrleka. Eina lækningin er að láta hann drekka tvo lítra af vel staðinni mysu á fastandi maga, eða þangað til gulgrænn vökvi fer að leka út um gatið á höfðinu á honum. Þá þarftu að vera snögg að loka gatinu með heftiplástri eða kassalímbandi.

Nr. 12 | posted by: AlanHudson | 7.07.2006 | 4:59:02 | [+] |

Nei, en ég hef heyrt að sjö af hverjum tíu hjónaböndum seú dauð eftir tíu ár. Fólk hangir samt saman af því það hefur ekki efni á að skilja.

Nr. 13 | posted by: Dr. Phil | 7.07.2006 | 7:15:16 | [+] |

Fólk hefur ekki efni á að skilja, eða það hangir saman fyrir börnin. Eins og þeim sé einhver greiði gerður.

Ég held líka að sumir hafi byggt upp svo sterka "ímynd" um gott hjónaband að þeir höndla ekki að feisa lífið án hennar.

Nr. 14 | posted by: anna | 7.07.2006 | 8:57:15 | [+] |

Meirihluti íslensku þjóðarinnar þjáist af skilnaðarfetishi... Það er bara ekki búið að setja þetta orð í örorkusjúkdómapakkann.
Svona svipað var það með bleslind og ofvirk börn... Í gamla daga voru þau bara ruslakallamateríal og kjörbúðardömur, en í dag eru þetta bara fluglæsir rítalíndópistar.

Nr. 15 | posted by: LangiSleði | 7.07.2006 | 9:27:05 | [+] |

Hvað er skilnaðarfetish? Ég skil ekki kommentið þitt.

Nr. 16 | posted by: anna | 7.07.2006 | 9:32:35 | [+] |

LOL
Las færsluna þína aftur og ég veit ekkert hvað ég var að tala um...

Nr. 17 | posted by: LangiSleði | 7.07.2006 | 10:55:44 | [+] |

En hvað er skilnaðarfetish? Mig langar að vita það. smile

Nr. 18 | posted by: anna | 7.07.2006 | 11:39:33 | [+] |
post a comment


Muna upplýsingar?












smilie winky colgate happy boogie toungue wahahahaha

angel embarassed doubt silent sad guilty shy sour

hmmm evil gnasher sick drunk what cool wave

weepy melodramatic nerd clown chococat nightmare pirate








Tell me, yes or no.








recent ravings
recent comments
monthly archive

links
blogs
links - web