www.anna.is
ravings of a lunatic
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings of a lunatic movie hall of fame ferilskrá
My God
Þriðjudagur, 04. júlí 2006

Doddi var að taka myndir í gærkvöldi og hér er stækkuð mynd af mér. Ken var sko að hnykla fyrir mig vöðvana.

Annars var ég, rétt í þessu, að festa kaup á vængjum..

wings2.jpg

Nú þarf ég bara að ákveða hvernig engill ég verð. Ætla ég að vera góður engill eða vondur engill? (Vinyl búningur eða silki)

Ég held að ég verði góður engill sem er smá óþekkur.

Stundum.


| anna | 18:45 |
comments

Þú gætir líka verið dáldið Biblíuleg. Svona refsandi engill angel

Nr. 1 | posted by: Kalli | 4.07.2006 | 19:11:56 | [+] |

Flottir vængir smile

Þar sem þeir eru hvítir, þá er það góður engill ( amk í grunninn ). Hvort þú bætir við einhverjum hornum eða öðru púkalegu stöffi er svo algerlega valfrjálst, en 'vondir' vængir verða að vera úr leðri, ekki fjöðrum smile

Góð mynd af þér btw. Doddi með hæfileika sem ljósmyndari er ég farinn að halda happy

Nr. 2 | posted by: Þór | 4.07.2006 | 19:40:47 | [+] |

Ert þú kannski guðfræðingur líka, Þár? doubt

toungue laughing

Nr. 3 | posted by: Kalli | 4.07.2006 | 20:02:20 | [+] |

Ó guð... Þór. Þór ekki Þár embarassed

Where did that come from? doubt

Nr. 4 | posted by: Kalli | 4.07.2006 | 20:10:39 | [+] |

Kalli: nei, en ég er búinn að horfa á alltofmikið af stereótípískum "good vs. evil" bíómyndum smile

Og "Þár" hljómar bara miklu flottara... rímar við hár, knár og fjár... Absakið mig meðan ég stekk niður á Hagstofu og breyti nafninu mínu...

melodramatic

Nr. 5 | posted by: Þór | 4.07.2006 | 20:32:42 | [+] |

Anna:
Þessi mynd sem þú linkar í þarna að ofan er mikið meira *þú* en nokkur önnur mynd sem þú hefur sýnt á þessu bloggi.

Nr. 6 | posted by: Elias | 4.07.2006 | 22:34:14 | [+] |

hvað ætlarðu eiginlega að gera við þessa vængi?

Nr. 7 | posted by: baun | 4.07.2006 | 22:40:29 | [+] |

Kalli. Já þú meinar. Refsandi. Ég gæti kannski notað catwoman svipuna síðan síðast! angel

Takk Þór, Doddi fer oft á kostum með þessa vél. Ættir að sjá sumar hreyfimyndirnar sem hann tekur.

Elías. Já, þetta er náttúrlega ég, held að ég skilji hvað þú átt við. smile

Baun. Ég ætla að nota þessa vængi á grímuballi í haust. Vissirðu að þú ert boðin? wink

Nr. 8 | posted by: anna | 5.07.2006 | 0:57:18 | [+] |

Góðir englar eru bara, eingöngu, og alfarið leiðinlegir. Englar sem líta út fyrir að vera góðir en eru voðalega óþekkir þegar á reynir eru hins vegar skemmtilegir. Kannski er þetta einhver (engla)duld, ég veit það ekki. Einhvernveginn hryllir mig jafn mikið við gegndarlausu og tilefnislausu ofbeldi á la Írak, Ísrael og Dritte Reich annars vegar, og kynlausu himnaríki fáráðlinganna hins vegar. Að þessu sögðu ætti að vera ljóst að ég er hrifinn af gröðum englum, en ekki ofbeldisfullum. Það er því ekki sama óþekkt og óþekkt...
Amen.

Nr. 9 | posted by: Tumi | 5.07.2006 | 2:27:45 | [+] |

Svo ég bæti því nú við: Hér má auðveldlega skipta út erri fyrir ell; glaðir og graðir englar eru í mínum huga eitt og hið sama, því þótt ég trúi á hvoruga tegundina þá fer þetta tvennt jafn óhjákvæmilega saman og olían og edikið í salatsósunni - jafnvel þótt þetta tvennt renni illa saman samkvæmt efnafræðinni og virðist meira að segja sundrast í raunheimum, þá er salatið ónýtt nema fyrir þessa blöndu.
Ég veit, þetta er vonlaus líking, enda vinaigrette, öfugt við engla (hvernig sem þeir láta), áþreifanlegt fyrirbæri í raunheimum.
En niðurstaðan er samt sem áður sú að englar geta, eðli málsins samkvæmt, aldrei verið illir (fyrir utan fallna engla auðvitað, en það er allt önnur bókmennta- (eða þátta-) gerð og afar ódýr), en það er afar tælandi að ímynda sér að þeir geti verið ofurlítið óþekkir á ákveðnum gleðisviðum...
Annars finnst mér Doritos Chili Cheese dýfan vera sú eina sem púkkandi er upp á, hinar eru bara jukk.
En það er annað mál og öllu alvarlegra, auðvitað.

Nr. 10 | posted by: Tumi | 5.07.2006 | 2:45:12 | [+] |

Besta dýfan er ferska salsaið á Cafê Pacifico.

Fyrir þá sem ekki vita er þetta veitingahúsakeðja (eða hlekkir? held að þau séu bara tvö eða þrjú) í London, Amsterdam og einhvers staðar annars staðar sem ég man ekki hvar. Ég hef borðað í fleiri tug skipta á Cafe Pacifico í London og einu sinni í Amsterdam og þetta er bara besti mexíkanski matur sem hægt er að fá.

Nr. 11 | posted by: Elias | 5.07.2006 | 2:54:52 | [+] |

grímuball í haust? úúú en spennó smile

Nr. 12 | posted by: baun | 5.07.2006 | 8:05:00 | [+] |

þú getur líka leyst þetta englamál með því að vera bara fremur lifaður djammmávur...
mmmm djammmávur... ég elska orð með samhljóðaþrennum í.
Best að fara að rassskella þátttakendann....

Nr. 13 | posted by: lifur | 5.07.2006 | 9:02:59 | [+] |

Anna; dettur mér í hug þegar ég les síðasta komment. Þetta grímuball verður einfaldlega að innihalda leynilifur. Ha?

Nr. 14 | posted by: Harpa | 5.07.2006 | 9:24:53 | [+] |

Meinvilllifur?

Nr. 15 | posted by: Fríða | 5.07.2006 | 10:33:35 | [+] |

Tumi. Heyrist ég vera akkúrat nákvæmlega eins og englar eiga að vera.

Baun. Þetta verður ferlega gaman, a.m.k. mun ég skemmta mér - eins og engill! lol

Harpa. Ja.. í gær fattaði ég að ég þarf Hörpu ef ég ætla að vera engill!

DJAMMMÁVUR!

Spáðu.. kannski kemur Gísli Marteinn og plaffar mig niður ef ég verð með þessa vængi!

Meinvillifur? Hvað er það?

Nr. 16 | posted by: anna | 5.07.2006 | 10:41:09 | [+] |

Svona meinvill í myrkrunum lá

Nr. 17 | posted by: Fríða | 5.07.2006 | 11:57:02 | [+] |

Úúúúú.. nei Lifur ætlar að flýja land þegar þetta grímuball verður.

Ég mun aldrei fyrirgefa honum og þegar ég hitti hann mun ég horfa á hann með þessu augnarráði sem kona notar þegar hún horfir á fjarbýling sinn og hugsar "I blame you for everything".

Nr. 18 | posted by: anna | 5.07.2006 | 12:44:19 | [+] |

Kemur mynd sem sýnidæmi?

Nr. 19 | posted by: Kalli | 5.07.2006 | 12:45:26 | [+] |

Ég er ekki viss um að ég geti náð þessu augnarráði nema ég hafi Lifur á staðnum.

Nr. 20 | posted by: anna | 5.07.2006 | 12:46:21 | [+] |

Myndi substitute lifur duga?

Nr. 21 | posted by: Kalli | 5.07.2006 | 12:55:49 | [+] |

Þetta er áhugavert. Ég er eiginlega forvitin að vita hvort ég næ þessum svip svona spontant.

Ég kunni þetta uppá tíu hér í eina tíð.

Nr. 22 | posted by: anna | 5.07.2006 | 12:56:57 | [+] |

Djöfulli eru þetta góðir vængir!

Ég er viss um að þú getir notað þá til að kíkja á mig í Köben wave

Nr. 23 | posted by: Elín | 5.07.2006 | 12:57:12 | [+] |

þú getur æft augnaráðið hér mín kæra: http://www.swiss-magen-darm.com/en/leber.html

... djöfull líturðu annars vel út í dag...

Nr. 24 | posted by: lifur | 5.07.2006 | 13:09:08 | [+] |

Takk skan. Feeling good too.

Still blame you for everything.

Nr. 25 | posted by: anna | 5.07.2006 | 13:13:31 | [+] |

eeehh...
flottir skór, sokkar, buxur, bolur, hár, augu...

hjálp!

Nr. 26 | posted by: lifur | 5.07.2006 | 13:16:59 | [+] |

Hvað ertu að tala um maður?

Nr. 27 | posted by: anna | 5.07.2006 | 13:25:03 | [+] |

ég er bara í skjálfandi meðvirknispanikki að krafsa í "i blame you for everything" bakkann...

Nr. 28 | posted by: lifur | 5.07.2006 | 13:35:25 | [+] |

ahhh..

Ekki láta mig trufla þig, go on please.

hehe

Nr. 29 | posted by: anna | 5.07.2006 | 13:39:34 | [+] |

þú ert með svo fallega lagað milta, ótrúleg hvernig nefið þitt tengist við afganginn af andlitinu og hvílíkar hnésbætur!

Nr. 30 | posted by: lifur | 5.07.2006 | 14:03:53 | [+] |

Af hverju.. er þetta ekki að gera neitt fyrir mig? Ha?

Einu sinni varstu svo klár að slá gullhamra. Hvað gerðist Lifur? HVAÐ HEFUR ORÐIÐ UM OKKUR?

Nr. 31 | posted by: anna | 5.07.2006 | 14:06:04 | [+] |

við höfum gliðnað í sundur eins og sjálf jarðskorpan á þingvöllum...
mér finnst það samt dáldið töff... veit ekki af hverju... einhvern veginn svo dramatískt, tragískt, óafturkræft og stórbrotið!

Nr. 32 | posted by: lifur | 5.07.2006 | 14:12:20 | [+] |

Já. Þetta segir allt sem segja þarf um fjarbúðir.

Ég hef allavega Ken.. (seldi Margeir)

Nr. 33 | posted by: anna | 5.07.2006 | 14:16:35 | [+] |

já fjarbúðin er ekki vænleg til vinnings sem sambandsform framtíðarinnar, en hún var nú djöfull góð á meðan hún entist!

ps. ég veit þú seldir marra, rétt náði að snatcha hann úr hillu góða hriðisins áður en eldri kona með náriðilslegt yfirbragð klófesti hann...

Nr. 34 | posted by: lifur | 5.07.2006 | 15:46:02 | [+] |

Neeeeeii weepy
Við erum að verða vitni af fyrsta fjarskilnaði veraldarvefsins. Leitið ykkur hjálpar! Ég skal koma Ken fyrir kattarnef ef hann er orsökin. Helvítið hann Ken. Ekkert nema snotur snoppa sour

Nr. 35 | posted by: Harpa | 5.07.2006 | 15:56:57 | [+] |

LÁTTU KEN Í FRIÐI HARPA! HANN ER EINI MAÐURINN SEM MIG HEFUR LANGAÐ AÐ BÚA MEÐ Í LANGAN TÍMA!

Þessi fjarbúð var mjög góð á meðan hún entist, en hún sannar líka að fjar er ekki nóg for a lasting relationship.

ps. Hvað varstu látin borga fyrir Margeir?

Nr. 36 | posted by: anna | 5.07.2006 | 16:01:41 | [+] |

mig langar að vita hvernig lifur lítur út, er hann sumsé snotur? clown

Nr. 37 | posted by: baun | 5.07.2006 | 16:04:19 | [+] |

ekki er fjar til fjár.

Nr. 38 | posted by: lifur | 5.07.2006 | 16:11:12 | [+] |

happy

Nr. 39 | posted by: anna | 5.07.2006 | 16:13:05 | [+] |

lifur

Nr. 40 | posted by: Kalli | 5.07.2006 | 16:13:25 | [+] |

Þetta er ekki Lifur, þetta er eitthvað allt annað.

Nr. 41 | posted by: anna | 5.07.2006 | 16:37:00 | [+] |

lifur er bara hugarástand.
bless elskan.

Nr. 42 | posted by: lifur | 5.07.2006 | 16:40:04 | [+] |

Bless baby. Kýldu Margeir frá mér elskan.

Nr. 43 | posted by: anna | 5.07.2006 | 16:45:32 | [+] |

já, ég mun drippla honum Margeiri eftir hellulagðri innkeyrslunni á hverjum morgni í þinni minningu!

viss um að hann fílarða.

Nr. 44 | posted by: lifur | 5.07.2006 | 16:47:49 | [+] |

þið eruð ömurleg! Hugsið bara um sjálf ykkur. Hvað með Margeir sem þarf á ykkur báðum að halda? Hver á að hjálpa honum í köfunaræfingum? Ert þú fær um það lifur? Hélt ekki. Hvernig er forræðismálum háttað? Á meðan það er ekki á hreinu er lágmarkið að þið talist við þangað til niðurstaða er komin í málin.

Piff, unga fólkið í dag. Þekkir ekki orðið samábyrgð og lifir bara fyrir miltað í dag melodramatic

Nr. 45 | posted by: Harpa | 5.07.2006 | 17:00:40 | [+] |

Hættu með þetta drama Harpa, sjís..

Nr. 46 | posted by: anna | 5.07.2006 | 17:01:55 | [+] |

Ken Ken Ken mímímí
Mikið hlakka ég til þegar þú áttar þig á að Ken er ekki bara það sem hann er séður og lærir að þekkja alvöru lifar þegar þú héddna...... sérð þær ekki drunk

Nr. 47 | posted by: Harpa | 5.07.2006 | 17:04:41 | [+] |

ÞETTA ER ALLT ÞINGVÖLLUM AÐ KENNA HARPA! HÆTTU AÐ SKAMMA MIG!

Nr. 48 | posted by: anna | 5.07.2006 | 17:06:31 | [+] |

Þingvöllum, kommon Anna. Hvar voru þeir þegar Ken dúkkaði uppúr rækjupokanum? Það var ekki búið að búa þá til þá!

KEN ÞÚ ERT FJARBÝLISSPILLIR!

Nr. 49 | posted by: Harpa | 5.07.2006 | 17:09:19 | [+] |
post a comment


Muna upplýsingar?












smilie winky colgate happy boogie toungue wahahahaha

angel embarassed doubt silent sad guilty shy sour

hmmm evil gnasher sick drunk what cool wave

weepy melodramatic nerd clown chococat nightmare pirate








Tell me, yes or no.








recent ravings
recent comments
monthly archive

links
blogs
links - web