Fimmtudagur, 13. júlí 2006
Ein af skyldum mínum sem nýbakaður óðalseigandi er að fylgjast með eigninni og ég hef ekki mátt vera að því undanfarið.
Virðist hafa fylgt þessu setri eitthvað staff sem hringir í mig daglega og spyr hvort ég ætli ekki að fara að koma. Ég er bara svo upptekin manneskja, má ekkert vera að þessu. Í dag erum við Ken t.d. að fara í heimsreisu um Ísland, nánar tiltekið á Blönduós. Þar er nefnilega ákveðin Harpa sem ég þarf að finna til að geta haft hana með mér á grímuballið.
Það er lélegur engill sem ekki hefur Hörpu.
Hún ætlar að láta okkur Ken eftir rúmið sitt því ég er svo pjöttuð og veðurhrædd að ég vil ekki vera í tjaldi. Ætla meira að segja að taka nýja gasgrillið inn af svölunum því mér skilst að það sé óveður í nánd.
Þegar við erum búin í heimsreisunni gæti farið svo að við skellum okkur aftur á óðalið í nokkra daga til að chilla.
Ken langar í golf.
Mig langar í Ken.
We're outta here.