Föstudagur, 07. júlí 2006
Nýjasta fíknin mín kostar ca 460 krónur á dag og veldur því að ég er nánast hætt að elda.
Í staðinn fæ ég mér boost fjórum sinnum á dag. Ég fæ mér boost þegar ég vakna, og finn hvernig ég hreinlega lifna öll við orkuinnspýtinguna. Þetta er áhrifaríkara en koffein.
Fæ mér aftur boost þegar ég kem heim í hádeginu, og fæ mér boost þegar ég kem heim úr vinnunni. Fæ mér reyndar stundum kvöldmat - en oftar boost. Ég er fljótari að búa til boost-ið.
Reiknaði út að eitt skammtur kostar mig 115 krónur. Þetta þýðir að ég er líklega búin að borga upp þennan rándýra, dásamlega blandara. Ekkert smá ánægð að hafa keypt mér þessa græju. Þessi blandari er runner up sem bestu kaup ársins árið 2006.
Venjulegt skyr og ávextir. Þetta er eiginlega eins og að breyta vatni í vín. Nema mér finnst vatn ekki vont. Mér finnst skyr, eitt og sér, hinsvegar viðbjóður. Ég nota gamaldags skyr.
Engin sykur. Ekkert rugl.