Miðvikudagur, 05. júlí 2006
Anna og Lifur hafa slitið fjarbúðinni!
Fyndið annars með þetta orð "drama". Karlmenn nota það yfir allt sem konur segja sem þeim finnst leiðinlegt að heyra. Konur nota það yfir drama.
Auðvitað voru þetta ekki dramatísk sambandsslit, við Lifur eru agaðir einstaklingar og fullorðið fólk, eins og margoft hefur komið í ljós á öldu þessara ljósvaka. Við elskum hvort annað, og reyndum.. en það gekk ekki upp. Lífið var einfaldlega of erfitt og þjóðfélagið í heild vann að því hörðum höndum að stía okkur í sundur en ég mun aldrei gleyma því síðasta sem Lifur sagði mér:
"ég mun drippla honum Margeiri eftir hellulagðri innkeyrslunni á hverjum morgni í þinni minningu!"
Mun hvísla þetta í hvert sinn sem ég er döpur.
Fyrstu viðbrögð Hörpu:
Harpa says: eru þið skilin í alvörunni?
Anna says: já
Harpa says: æji af hverju?
Harpa says: á ekkert að lappa uppá þetta?
Anna says: lol
Harpa says: þið eruð svo óþroskaðir einstaklingar
Harpa says: venjulegt fólk vinnur í sínum málum
Harpa says: fólk er alveg hætt að tala saman í dag, það er ekki von að þetta endist ekki
Harpa hefur fordóma.
Nánari fréttir væntanlegar.